Sport

Guðmundsdætur verða á­fram í KR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katla og Kara Guðmundsdætur reyna fyrir sér í Bestu deildinni næsta sumar.
Katla og Kara Guðmundsdætur reyna fyrir sér í Bestu deildinni næsta sumar. KR Reykjavík FC

KR-konur unnu sér sæti í Bestu deild kvenna í sumar og forráðamenn liðsins eru byrjaðir að skipuleggja leikmannahópinn. Systur og lykilmenn í liðinu ætla að taka skrefið upp í efstu deild með uppeldisfélaginu,

KR segir frá því á miðlum sínum að systurnar Katla og Kara hafi framlengt samninga sína við KR. Katla hefur samið út árið 2028 og Kara út árið 2029.

Báðar eru þær uppaldar í KR og voru mikilvægir hlekkir í sóknarleik liðsins á tímabilinu. Þær hafa einnig leikið með yngri landsliðum Íslands.

„Það er mikið gleðiefni að halda þeim áfram í svart-hvítu næstu árin,“ segir í fréttinni á miðlum KR.

Báðar voru þær í hópi markahæstu leikmanna liðsins. Kara, sem er sextán ára, skoraði 12 mörk í 18 leikjum en Katla, sem er nítján ára, var með 10 mörk í 18 leikjum. Saman skoruðu þær systur því 22 af 52 mörkum KR í Lengjudeildinni í sumar eða 42 prósent markanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×