Erna Hrönn:
Hljómsveitin Brimbrot heldur hátíðartónleika í Silfurtunglinu þann 7. mars í tilefni útgáfu smáskífunnar “Leyndarmál / Kling Klang”. Þar heiðra strákarnir hina goðsagnakenndu sveit Dáta og mun hinn eini sanni Þórir Baldursson vera sérstakur heiðursgestur á tónleikunum. Bjarni gítarleikari og Bjössi söngvari kíktu í skemmtilegt spjall en þeirra vinskapur á sér langa sögu eins og fram kom í viðtalinu.