Erna Bergmann #3
Í þriðja þætti af Litlu hlutunum hittum við Ernu Bergmann. Eftir mörg ár í skapandi heimi tísku fór hún smám saman að leita að meiri ró og jafnvægi í daglegu lífi — leit sem leiddi hana að yoga, sem hún segir hafa breytt lífi sínu og jafnvel bjargað því. Úr þeirri vegferð varð Swimslow; wellness brand sem sameinar vellíðan, hreyfingu og meðvitaðan lífsstíl, bæði í gegnum sundfata línu og rými þar sem fólk getur komið saman, hægt á sér og tengt betur við sjálft sig. Þátturinn fjallar um hvernig litlu hlutirnir — andardrátturinn, hreyfingin, kyrrðin og augnablikin sem við gefum okkur tíma fyrir — geta smátt og smátt breytt stefnu lífsins