Aston Villa 1 - 1 Leeds United
Aston Villa tapaði mikilvægum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti gegn Leeds United á heimavelli í gær en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Gullfallegt mark Þjóðverjans Anton Stach beint úr aukaspyrnu kom Leeds United yfir í fyrri hálfleik og lengi vel leit út fyrir að það yrði eina mark leiksins. En undir lok venjulegs leiktíma tókst Tammy Abraham að jafna metin fyrir Aston Villa og tryggja þeim eitt stig.