5 pottum lokað
Fimm heitum pottum í Laugardalslaug hefur verið lokað frá og með deginum í dag, ásamt eimbaði og hluta sérklefa. Laugardalslaug er fjölsóttasta laug landsins; í fyrra komu þar um 650 þúsund gestir, eða að jafnaði rúmlega tólf þúsund á viku, og ljóst að þetta snertir marga.