Staðan sögð erfið

Enn einni flugferð Icelandair var aflýst í morgun þar sem flugmenn fengust ekki á vaktina. Ferðin átti að vera til Zurich í Sviss en frá því að kjaradeilu félagsins og flugmanna þess var vísað til ríkissáttasemjara í upphafi mánaðar hefur alls tuttugu brottförum frá Keflavík verið aflýst, eða samanlagt fjörutíu ferðum til og frá landinu. Síðast var fundað í kjaradeilunni á föstudag. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar og staðan er sögð erfið. Flugmenn eru ekki í formlegu verkfalli en hafa ekki verið tilbúnir til þess að selja félaginu frídaga sína til þess hægt sé að manna ferðir.

12
01:00

Vinsælt í flokknum Fréttir