Laun ráðamanna hjá hinu opinbera hækka
Laun helstu ráðamanna og stjórnenda hjá hinu opinbera hækka um 6,5 prósent næstu mánaðamót. Launin eru uppfærð einu sinni á ári í samræmi við meðallaunahækkun ríkisstarfsmanna en síðustu tvö ár hefur verið samþykkt á Alþingi bráðabirgðaákvæði til að takmarka hækkunina.