Fjöruverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn

Fjöruverðlaunin - eða bókmenntaverðlaun kvenna og kvára voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Bókin Hvalbak eftir Maó Alheimsdóttur hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta og í umsögn dómnefndar segir að ritið sé ljóðrænn óður til lands og tungu. Þá hlaut Drífa Viðar eftir Guðrúnu Jónsdóttur, Elísabetu Gunnarsdóttur og Auði Aðalsteinsdóttur Fjöruverðlaunin í flokki fræðibóka. Í flokki barna- og unglingabókmennta þótti Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur standa upp úr.

4
00:45

Vinsælt í flokknum Fréttir