Grænland mikilvægt fyrir íslensk flugfélög
Opnun Kulusuk-flugvallar á Austur-Grænlandi opnaði íslenskum flugfélögum ný tækifæri. Kulusuk er sá flugvöllur Grænlands sem næstur er Íslandi. Í þætti Flugþjóðarinnar um Grænlandsflugið á Sýn+ er meðal annars fjallað um þátt Íslendinga í flugsamgöngum þessa næsta nágrannalands Íslands. Hér má sjá tíu mínútna kafla.