Eiður Smári Guðjohnsen var ráðinn aðalþjálfari FH
Knattspyrnudeild FH tilkynnti í dag þjálfarateymi félagsins til næstu tveggja ára, Eiður Smári Guðjohnsen var ráðinn aðalþjálfari liðsins og honum til aðstoðar verður fyrrum fyrirliðinn, Davíð Þór Viðarsson. Logi Ólafsson verður áfram í Kaplakrika en nú samt tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar FH.