Mótmæla hækkun eldsneytisverð

Tugir rútu-og vörubílstjóra efndu til hægfara mótmæla á hringveginum í París í dag til að mótmæla hækkun eldsneytisverðs. Verð á dísil og olíu hefur rokið upp í kjölfar stríðsins í Mið-Austurlöndum en skipaumferð um Hormússund er ekki örugg. Frönsk stjórnvöld greindu fyrir helgi frá því að þau hygðust grípa til aðgerða til að draga úr hinum skaðlegu áhrifum olíuhækkana á atvinnuvegi landsins.

7
01:04

Vinsælt í flokknum Fréttir