Engin meðalmennska hjá Bradord á móti Snæfelli í síðustu úrslitakeppnum Nick Bradford spilar með Keflavík á móti Snæfelli í þriðja leik úrslitaeinvígis Iceland Express deildar karla á morgun sem ættu að vera slæmar fréttir fyrir Hólmara sem hafa fengið að kenna á snilli Bradford í úrslitakeppninni í gegnum tíðina. Körfubolti 23. apríl 2010 17:30
Njarðvíkingar gefa Keflavík leyfi til að nota Nick Bradford Keflvíkingar hafa fengið leyfi frá Njarðvík til þess að nota Nick Bradford það sem eftir lifir af úrslitaeinvíginu á móti Snæfelli en bandaríski leikmaður liðsins, Draelon Burns, er meiddur. Körfubolti 23. apríl 2010 15:47
Nick Bradford til Keflavíkur - Leysir af Draelon Burns Nick Bradford sem lék með Njarðvík í vetur er genginn til liðs við Keflavík. Hann mun leysa af Draelon Burns sem er meiddur. Körfubolti 23. apríl 2010 15:13
Burns verri í dag en í gær - er í skoðun á sjúkrahúsinu í Keflavík Það er mikil óvissa í kringum framhaldið hjá Draelon Burns, leikmanni Keflavíkur, sem gat aðeins spilað í rúmar 22 mínútur í öðrum úrslitaleik Keflavíkur og Snæfells í gær. Burns skoraði bara átta stig í leiknum og var greinilega meiddur. Körfubolti 23. apríl 2010 13:30
Þriðja mesta sveiflan í sögu lokaúrslitanna Úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í körfubolta í ár hefur byrjað á tveimur stórum heimasigrum og sveiflan hefur verið svo mikil á milli leikja að ástæða er að fletta upp í sögubókunum. Körfubolti 23. apríl 2010 11:00
Hörður Axel: Við spiluðum bara ekki körfubolta. Hörður Axel Vilhjálmsson var með 11 stig og 7 stoðsendingar fyrir Keflavík í kvöld en það dugði þó skammt þegar liðið tapaði með 22 stigum í Hólminum í öðrum úrslitaleik Iceland Express deild. Hörður Axel var líka ekki sáttur í viðtali við Hörð Magnússon í útsendingu Stöð 2 Sport. Körfubolti 22. apríl 2010 21:52
Ingi Þór: Jeb Ivey er ekki að koma til að vinna þetta einvígi fyrir okkur Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var ánægður með frábæran sigur sinna manna á Keflavík í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Snæfellsliðið lék frábærlega og vann sannfærandi 91-69. Körfubolti 22. apríl 2010 21:42
Guðjón Skúlason: Við létum bara valta yfir okkur Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, var mjög ósáttur með frammistöðu sinna manna í Stykkishólmi í kvöld en liðið tapaði þá með 22 stigum á móti Snæfelli og úrslitaeinvígið stendur þar með jafnt 1-1. Körfubolti 22. apríl 2010 21:37
Ivey ævintýrið gekk upp hjá Snæfelli - unnu Keflavík með 22 stigum Snæfellingar jöfnuðu úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn á móti Keflavík með sannfærandi 22 stiga sigri, 91-69, í öðrum leik liðanna í Stykkishólmi í kvöld. Liðin hafa því byrjað lokaúrslitin á því að bursta hvort annað í fyrstu tveimur leikjunum. Næsti leikur er í Keflavík á laugardaginn. Körfubolti 22. apríl 2010 20:32
Nær Jeb Ivey ekki fyrri hálfleiknum? - vélinni frá Stokkhólmi hefur seinkað Það lítur út fyrir að Jeb Ivey ná aðeins seinni hálfleiknum með Snæfelli í kvöld í öðrum leiknum við Keflavík í úrslitaeinvígi Iceland Express deild karla. Snæfell þurfti að skipta um bandaríska leiksjórnandann sinn vegna meiðsla Sean Burton en það gekk illa að koma Ivey til landsins í tíma. Körfubolti 22. apríl 2010 15:30
Magnús Þór: Snæfell er ekkert að fara að stoppa þá Snæfell tekur á móti Keflavík í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Stykkihólmi klukkan 19.15 í kvöld. Keflavík vann fyrsta leikinn með yfirburðum og þegar Fréttablaðið heyrði í gær í Magnúsi Þór Gunnarssyni, fyrrum leikmanni Keflavíkur og núverandi leikmanni Njarðvíkur þá er hann á því að Keflavík vinni úrslitaeinvígið 3-0. Körfubolti 22. apríl 2010 10:00
Jeb Ivey til Snæfells - er í ferju á leiðinni til Stokkhólms Snæfellingar hafa ákveðið að skipta um leikstjórnanda vegna meiðsla Sean Burton. Burton er tognaður illa á ökkla og var aðeins skugginn af sjálfum sér í fyrsta leik úrslitaeinvígis Snæfells og Keflavíkur. Ingi Þór Steinþórsson hefur kallað á Jeb Ivey, fyrrum leikmann KFÍ og Njarðvíkur, til að hlaupa í skarðið fyrir Burton. Þetta kom fyrst fram í viðtalsþætti Valtýs Björns Valtýssonar á X-inu. Körfubolti 21. apríl 2010 15:00
Aðeins tvö lið hafa komið til baka eftir stærra tap í fyrsta leik Keflavík vann 19 stiga sigur á Snæfelli í gær, 97-78, í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Þetta var níundi stærsti sigur í fyrsta leik lokaúrslita í sögu úrslitakeppninnar og aðeins tveimur liðum hefur tekist að koma til baka eftir stærra tap í fyrsta leik. Körfubolti 20. apríl 2010 12:00
Myndasyrpa úr Keflavík Í kvöld hófust lokaúrslitin í úrslitakeppni Iceland Express-deild karla þegar að Keflavík og Snæfell mættust í fyrsta leik úrslitarimmunnar. Körfubolti 19. apríl 2010 22:40
Ingi Þór: Liðið þarf að komast upp á tærnar „Maður er aldrei sáttur við að tapa en við hittum Keflvíkingana í miklum ham og því miður var heildin okkar ekki til staðar,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir tapið í Keflavík í kvöld. Körfubolti 19. apríl 2010 21:31
Guðjón: Spiluðum ágætlega en margt má laga „Heilt yfir spiluðum við leikinn ágætlega. Það er þó margt sem má laga og gera betur, sérstaklega þegar við förum á útivöll," sagði Guðjón Skúlason eftir öruggan sigur Keflavíkur á Snæfelli í kvöld. Körfubolti 19. apríl 2010 21:21
Umfjöllun: Stemningin allan tímann með Keflavík Keflavík vann í kvöld öruggan sigur á Snæfelli, 97-78, í fyrsta leik liðanna í úrslitarimmu þeirra um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Körfubolti 19. apríl 2010 20:54
Fimm hafa verið með í öllum 11 úrslitaleikjum Keflavíkur og Snæfells Keflavík og Snæfell hefja í kvöld sitt fjórða úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn en liðið mættust einnig í lokaúrslitunum 2004, 2005 og 2008. Fimm leikmenn hafa verið með í öllum ellefu leikjum liðanna um Íslandsmeistaratitilinn en bara fjórir þeirra verða með í Toyota-höllinni í Keflavík þegar fyrsti leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld. Körfubolti 19. apríl 2010 17:00
Þrettándu lokaúrslitin hjá Guðjóni - setur nýtt met í kvöld Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, setur nýtt met í kvöld þegar hann tekur þátt í sínum þrettándu lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn annaðhvort sem leikmaður eða þjálfari. Körfubolti 19. apríl 2010 16:00
Ræðst ekki fyrr en í upphitun hvort Sean Burton verði með í kvöld Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, er ekki öruggur með að geta teflt fram bandaríska leikstjórnandanum Sean Burton sem tognaði illa í oddaleiknum á móti KR. Ingi Þór var í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Körfubolti 19. apríl 2010 13:00
Lokaúrslitin hefjast í Keflavík í níunda sinn - fyrsti leikur í kvöld Keflavík og Snæfell leik í kvöld fyrsta leik sinn í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í Toyota-höllinni í Keflavík og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 19. apríl 2010 12:00
Gunnar áfram þjálfari ÍR Gunnar Sverrisson mun halda áfram þjálfun meistaraflokks ÍR í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kemur fram á vefsíðunni karfan.is. Körfubolti 17. apríl 2010 21:37
Pálmi þekkir ekkert annað en að vinna Snæfell-KR seríu Snæfellingurinn Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði eina af stærstu körfunum á lokamínútum oddaleiks KR og Snæfells í DHL-höllinni í gær þegar hann kom sínum mönnum í 84-80. Pálmi var langhæstur í plús og mínus í einvíginu. Körfubolti 16. apríl 2010 16:45
Enginn skorað meira en Sigurður í svona leik í tólf ár Sigurður Þorvaldsson fór á kostum í sigri Snæfells á KR í oddaleik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deild karla í DHl-höllinni í gær. Sigurður skoraði 28 stig í leiknum sem er það mesta sem Íslendingur hefur skorað í oddaleik um sæti í lokaúrslitum síðan árið 1998. Körfubolti 16. apríl 2010 15:45
Bandaríkjamaður tekur við KFÍ Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur samið við bandaríska þjálfarann Bob Jerome Aldridge um að taka við þjálfun liðsins. KFÍ vann sér inn sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Körfubolti 16. apríl 2010 11:11
Snæfellingar sendu meistarana í sumarfrí - myndasyrpa Snæfellingar unnu í gær þriðja leikinn í röð í DHL-höll þeirra KR-inga og tryggðu sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn á móti Keflavík. Snæfell var nærri búið að missa niður 20 stiga forustu í lokaleikhlutanum en hélt út og fagnaði sigri. Körfubolti 16. apríl 2010 09:00
Hlynur: Sólin skín ekki endalaust „Að vinna KR hérna þriðja skiptið í röð í alveg hreint fáranlegri stemningu er svo sannarlega með því sætara," sagði Snæfellingurinn Hlynur Bæringsson eftir magnaðan sigur Snæfells á KR í kvöld. „Það voru forréttindi að fá að taka þátt í þessum leik því stemningin var lygileg." Körfubolti 15. apríl 2010 21:54
Pavel hefur áhuga á að vera áfram hjá KR Leikstjórnandinn Pavel Ermolinskij hefur staðið sig afar vel með KR allt frá því félagið fékk hann til liðsins er lítið var eftir af deildarkeppninni. Hann hefur nánast vaxið með hverjum leik en tilkoma hans dugði KR þó ekki til þess að fara alla leið að þessu sinni. Körfubolti 15. apríl 2010 21:46
Páll hættur að þjálfa KR Páll Kolbeinsson stýrði KR í síðasta skipti í kvöld er KR tapaði fyrir Snæfell í oddaleik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 15. apríl 2010 21:41
Umfjöllun: Úti er best Snæfell er komið í lokaúrslit Iceland Express-deildar karla eftir sigur á KR í rafmögnuðum oddaleik liðanna í DHL-höllinni í Vesturbænum. Lokatölur 83-93 fyrir Snæfell. Körfubolti 15. apríl 2010 21:00