Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Kolbrún María Ármannsdóttir er snúin aftur heim úr atvinnumennsku og hefur samið við lið Tindastóls í Bónus deild kvenna í körfubolta. Körfubolti 10.6.2026 16:00
Hamar og Þór hætta samstarfi Stjórnir körfuknattleiksdeilda Hamars og Þórs hafa ákveðið að ljúka samstarfi félaganna í meistaraflokki kvenna í körfubolta. Þór hefur óskað eftir því að skrá lið til leiks í 1. deild kvenna á næsta tímabili. Körfubolti 10.6.2026 13:28
„Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Eftir sex ár í burtu, sem vægast sagt hafa verið krefjandi, er Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir mætt aftur heim í KR og klár í að stefna hátt í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Körfubolti 9.6.2026 16:48
Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Brittany Dinkins, leikmaður Íslandsmeistara Njarðvíkur og einn af reynsluboltunum í liðinu hefur verið að ala upp dólg í leikmönnum liðsins. Hvatti þá til þess að vera töffara inn á vellinum. Körfubolti 19. maí 2026 06:30
Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík Njarðvíkurkonur fögnuðu Íslandsmeistaratitli sínum í körfubolta í gærkvöld innilega, með bæði hefðbundnum og óhefðbundnum hætti eins og myndaveisla Huldu Margrétar ljósmyndara sýnir. Körfubolti 18. maí 2026 07:30
„Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ Emil Barja, þjálfari Hauka, sagði að hans lið hefði einfaldlega ekki haft nein svör gegn frábærum leik tveimur bestu leikmanna Njarðvíkur í kvöld. Körfubolti 17. maí 2026 23:23
„Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Brittany Dinkins átti í fullu fangi með að halda aftur af gleðitárunum þegar Andri Már greip hana í viðtal strax í leikslok í kvöld. Körfubolti 17. maí 2026 23:17
Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Njarðvíkingar eru Íslandsmeistarar eftir 3-1 sigur á Haukum í einvígi liðanna í úrslitum Bónus-deildar kvenna. Liðin mættust í Njarðvík í kvöld þar sem lokatölur urðu 95-70 og niðurstaðan sanngjarn sigur Njarðvíkur. Körfubolti 17. maí 2026 19:31
Amandine: Einvíginu er ekki lokið Amandine Toi fór mikinn í fjórða leik Hauka og Njarðvíkur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Hún skoraði 17 stig og síðustu stig leiksins til að tryggja sínum konum áframhald í keppninni á sunnudaginn næsta. Haukar unnu leikinn 77-69. Körfubolti 14. maí 2026 21:34
Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Njarðvík tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna fyrr í kvöld. Haukar sáu til þess að úrslitaeinvígið fari í fjóra leiki allavega. Heimakonur læstu varnarleiknum algjörlega og fóru með 77-69 sigur. Fjórði leikurinn verður á sunnudag í Njarðvík. Körfubolti 14. maí 2026 21:18
Ármann yngir upp um þrjátíu ár Hinn 29 ára gamli Friðrik Hrafn Jóhannsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennaliðs Ármanns í körfubolta, til næstu þriggja ára. Körfubolti 13. maí 2026 15:17
„Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Emil Barja, þjálfari Hauka, var að vonum ósáttur með frammistöðu síns liðs í kvöld en hann var þó fyrst og fremst ósáttur með frammistöðu dómaranna að þessu sinni og fannst halla töluvert á sínar konur. Sport 11. maí 2026 23:22
„Það þarf að klára þriðja leikinn“ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með sigurinn í kvöld en vildi meina að mögulega hefði kappið borið fegurðina ofurliði að þessu sinni. Körfubolti 11. maí 2026 22:56
„Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Danielle Rodriguez var mætt í viðtal til Andra Más strax að leik loknum í Njarðvík í kvöld þar sem heimakonur komust í 2-0 í einvígi liðsins um Íslandsmeistaratitilinn gegn Haukum. Körfubolti 11. maí 2026 22:00
Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Njarðvík er komið í algjöra lykilstöðu í einvígi liðsins gegn Haukum í úrslitum Bónus-deildar kvenna eftir 75-70 sigur í Njarðvík í kvöld og staðan því 2-0 í einvíginu. Körfubolti 11. maí 2026 18:46
„Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Það var augljóslega þungt yfir Emil Barja þegar hann mætti til viðtals strax að loknum leik Hauka og Njarðvíkur. Haukar töpuðu leiknum með tólf stigum og elta í þessu úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 8. maí 2026 23:28
Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Njarðvík stal heimavallarréttinum í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna með því að vinna tólf stiga sigur, 80-92, á ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka í fyrsta leik liðanna á Ásvöllum í kvöld. Leikmenn Njarðvíkur mættu mun ákveðnari til leiks og höfðu stjórn á leiknum nær allan tímann. Körfubolti 8. maí 2026 22:57
Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Annað árið í röð dettur Grindavík út í úrslitakeppninni eftir að hafa komist í 2-0 í einvígi. Þorleifur Ólafsson fór yfir ástæðurnar fyrir tapinu fyrir Njarðvík í kvöld og tilkynnti að hann yrði ekki með liðið á næsta ári. Körfubolti 5. maí 2026 21:55
Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Hulda Marí Agnarsdóttir lagði sín lóð á vogaskálarnar til að tryggja Njarðvíkurkonum farseðil í úrslitaeinvígið gegn Haukum þetta tímabilið. Hún skoraði átta stig í 83-72 sigri Njarðvíkinga á Grindavík í oddaleik í undanúrslitum Bónus deildar kvenna. Körfubolti 5. maí 2026 21:17
Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Njarðvík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Farseðillinn var tryggður eftir oddaleik gegn Grindavík í kvöld í IceMar höllinni. Njarðvík kafsigldi Grindavík á löngum köflum og uppskar verðskuldaðan 83-72 sigur. Körfubolti 5. maí 2026 20:53
Trúin og traustið innan hópsins eigi eftir að skila liðinu áfram „Ég er bara fullur tilhlökkunar og ótrúlega spenntur fyrir kvöldinu. Þetta eru sérstakir leikir, oddaleikir, og við fórum í einn slíkan síðastliðið vor og mér finnst stelpurnar hafa sýnt mikla yfirvegun og mikið hugrekki í gegnum það mótlæti sem hefur mætt í þessari seríu,“ segir Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga fyrir oddaleikinn í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindavík í IceMar höllinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Íslands. Sport 5. maí 2026 13:32
„Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ Þegar Hulda María Agnarsdóttir var nýorðin sautján ára setti hún niður risastóra þriggja stiga körfu á ögurstundu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Fjallað er um körfuna hennar Huldu í tólfta þætti Augnablikanna, „Draumaþristur á Eurovision-kvöldi.“ Körfubolti 4. maí 2026 09:00
Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Haukar sýndu mátt sinn og megin þegar liðið bar sigurorð af Keflavík, 72-98, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld. Haukar fara þar af leiðandi með 3-1 sigur af hólmi í einvígi liðinna og eru komnir í úrslit þar sem liðið mætir annað hvort Njarðvík eða Grindavík. Körfubolti 2. maí 2026 21:12
„Vorum alltaf að segja, næsta kerfi, halda áfram og halda haus“ Njarðvík tryggði sér oddaleik í undanúrslitum Bónus deild kvenna þegar þær sóttu góðan sigur í Grindavík 68-72. Danielle Rodriguez var frábær í liði Njarðvíkur og ræddi við okkur eftir leik. Sport 1. maí 2026 21:32