Crystal Palace FC

Crystal Palace FC

Fréttir af enska fótboltaliðinu Crystal Palace FC frá London.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vilja ráða Iraola eða Lampard

Crystal Palace leitar nýs knattspyrnustjóra í kjölfar sigurs liðsins í Sambandsdeildinni í gærkvöld. Oliver Glasner er á förum og Andoni Iraola sagður efstur á lista.

Enski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn

Bruno Fernandes jafnaði stoðsendingamet, Manchester United festi sér 3. sætið og West Ham tók stórt skref í átt að næstefstu deild með tapi gegn Newcastle. Mörkin úr öllum leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi.

Enski boltinn
Fréttamynd

City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace

Manchester City vann 3-0 sigur gegn Crystal Palace í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og er nú tveimur stigum frá toppliði Arsenal þegar tvær umferðir eru eftir. Antoine Semenyo, Omar Marmoush og Savinho skoruðu mörkin en Pep Guardiola hvíldi marga lykilmenn City.

Enski boltinn
Fréttamynd

Þriðji sigur Liverpool í röð

Alexander Isak var á skotskónum þegar Liverpool sigraði Crystal Palace, 3-1, á Anfield í dag. Með sigrinum komst Rauði herinn upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

West Ham felldi Wolves

West Ham United fékk stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Crystal Palace á Selhurst Park í kvöld. Úrslit leiksins þýða að Wolves er fallið eftir átta ár í ensku úrvalsdeildinni.

Enski boltinn
Fréttamynd

Mateta fer ekki til Mílanó

Jean-Philippe Mateta er ekki á leið til AC Milan eftir allt saman. Samkomulag var í höfn við Crystal Palace og franski framherjinn var búinn að semja um launakjör en á síðustu stundu ákváðu stjórnarmenn í Mílanó að bakka út.

Enski boltinn
  • «
  • 1
  • 2