Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður. Innlent 27.10.2026 14:42
Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu. Innlent 27.10.2026 10:07
„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 27.10.2026 08:07
Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Hægt landris mælist áfram við Svartsengi og er jarðskjálftavirkni áfram lítil á Reykjanesskaganum. Hættumat er óbreytt. Innlent 15. september 2026 15:29
Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Erlendir sérfræðingar eru nú staddir hér á landi til að leggja mat á mögulegar aðgerðir til að sækja líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar upp úr sprungu í Grindavík. Innlent 21. ágúst 2026 06:47
Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Landris og kvikusöfnun halda áfram við Svartsengi. Í nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að þróunin sé áfram hæg en stöðug. Innlent 18. ágúst 2026 14:18
Hversu lengi eigum við að bíða? Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að lifa í óvissu mánuðum og árum saman. Að „eiga“ heimili sem þú mátt ekki búa í. Heimili sem þú hafðir ekki val um að flytja úr. Að sjá samfélagið sitt standa tómt og vita á sama tíma að staðan gæti verið allt önnur. Skoðun 10. ágúst 2026 17:01
Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segist ánægður með endurskoðun á gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggi ekki aðeins á vísindalegu mati, heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu. Innlent 6. ágúst 2026 18:11
Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Landris og kvikusöfnun við Svartsengi mælast áfram hæg en stöðug. Líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnjúksgígaröðinasem gæti leitt til eldgoss en jarðskjálftavirkni á svæðinu mælist áfram lítil. Innlent 21. júlí 2026 17:54
„Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Jarðeðlisfræðingur segir mikilvægt að sofna ekki á verðinum þó að ár sé liðið frá síðasta eldgosi á Reykjanesskaga og tekur fram að hann væri hikandi að hafa börn með sér í Grindavík. Enn sé töluverð hætta á eldsumbrotum á svæðinu. Innlent 16. júlí 2026 19:03
„Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Innleiðing á nýju fyrirkomulagi við áhættumat í Grindavík liggur fyrir en bæjarstjóri bindur miklar vonir við árangur breytinganna. Hann segir fyrra áhættumat ekki hafa endurspeglað raunverulegar aðstæður Grindavíkur en markmiðið sé að hefja markvissa uppbyggingu bæjarins. Innlent 16. júlí 2026 14:45
Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Eitt ár er í dag liðið frá því síðast gaus í grennd við Grindavík. Þann 16. júlí í fyrra hófst níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni og lauk því fimmta ágúst, eða um þremur vikum síðar. Innlent 16. júlí 2026 08:21
Svartir svanir á Reykjanesi Að kvöldi 10. nóvember 2023 var Grindavík rýmd. Á fáeinum klukkustundum yfirgáfu um 3.700 manns heimili sín. Bærinn sem þau skildu eftir var annar en sá sem þau höfðu vaknað í um morguninn; sprungur lágu í gegnum götur og garða, landið hafði sigið og undir byggðinni lá kvikugangur. Skoðun 15. júlí 2026 11:31
„Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn. Innlent 12. júní 2026 15:56
Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Tæplega þrjátíu manns komu saman á Austurvelli í hádeginu til að mótmæla samráðsleysi stjórnvalda við Grindvíkinga. Þau telja skilyrði hollvinasamnings Þórkötlu óboðleg. Innlent 12. júní 2026 12:46
Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað. Innlent 10. júní 2026 12:01
Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, skorar á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista. Innlent 10. júní 2026 07:50
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Innlent 9. júní 2026 14:09
„Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ „Beinskeytt var yfirlýsingin en við erum bara komin þangað. Það er bara auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur. Innlent 5. júní 2026 13:04
Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur sakar stjórnvöld um að beita Þórkötlu vísvitandi fyrir sig til að tefja endurreisn Grindavíkur og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim. Innlent 5. júní 2026 10:03
„Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir hollvinasamninga Grindvíkinga við félagið aldrei verið hugsað til fastrar búsetu og að það hafi ávallt komið skýrt fram. Breyting á ákvæðum samninga sé tilraun til að gera það skýrara. Innlent 4. júní 2026 12:38
Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. Innlent 2. júní 2026 21:29
Skjálftahrinan mallar enn Skjálftahrinan við Hellisheiði heldur áfram en auk þess hefur virkni mælst í dag við Kleifarvatn á Reykjanesskaga og á Reykjaneshrygg. Náttúruvársérfræðingur segir virknina vera eðlilega. Innlent 2. júní 2026 16:37
Skjálftahrina úti af Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og hefur stærsti skjálftinn mælst 3,5 að stærð. Ekki mælist órói á svæðinu, að sögn Veðurstofu. Innlent 24. maí 2026 07:55