Vistkerfið er líkami Guðs Einn þáttur jólasögunnar er sá að þegar í ljós kom að María var ófrísk var Jósef miður sín, því hann vissi að hann gat ekki verið faðir barnsins. Bakþankar 27. desember 2017 07:00
Breytingar Framfarir eru fallegt orð. En breytingar eru hvati þeirra og breytingar eiga sér óvini.“ Það er kannski hálf ankannalegt að vitna í Robert F. Kennedy, karlmann sem tilheyrði einni valdamestu ætt Bandaríkjanna, í þessum orðum sem eru skrifuð í tilefni af kvennabyltingu samtímans. Fastir pennar 27. desember 2017 07:00
Lúxusvandi Stundum er engu líkara en að á Íslandi ríki styrjaldarástand, slík eru stóryrðin í opinberri umræðu. Ef einungis væru lesnar fréttir og viðhorfsgreinar mætti halda að hér væri allt á hverfanda hveli. Fastir pennar 23. desember 2017 07:00
Jesús minn Í dag er síðasti dagur reddinga fyrir jólin. Í dag verður því bjargað sem bjargað verður varðandi jólagjafir, skrautið, kortin, matinn, fötin. Á morgun blasir staðreyndin við: Jólin eru komin. Fastir pennar 23. desember 2017 07:00
Þorláksmessa Í dag eru 824 ár liðin síðan Þorlákur biskup Þórhallsson andaðist í Skálholti. Nokkrum árum síðar var ákveðið á Alþingi að leyfilegt væri að heita á biskupinn enda var hann þá talinn heilagur maður. Bakþankar 23. desember 2017 07:00
Jólapistill Eru ekki allir komnir í jólaskap? Þessi pistill birtist 22. desember og hann verður eiginlega að vera um jólin. Þannig er það bara. Það væri hálf skrítið að skrifa um fjárlagafrumvarpið eða samfélagsmiðlabyltingar núna. Ég er líka að skrifa sjálfan mig í jólaskap. Fastir pennar 22. desember 2017 07:00
Friðarjól Mér finnst óskin um frið og farsæld sú allra fallegasta. Ég reyni að hafa hana með á þeim jólakortum sem þó tekst að senda af heimilinu og sendi hana af heilum hug. Ég vildi óska þess að við ættum öll frið; bæði í hjartanu og gagnvart öðru fólki, aðstæðum og reynslu okkar. Bakþankar 22. desember 2017 07:00
Aðhaldsleysi Fjórða árið í röð munu ríkisfjármál auka þenslu í hagkerfinu. Frumvarp fjármálaráðherra til fjárlaga, sem gerir ráð fyrir nokkuð minna aðhaldi en áður var stefnt að, er nú til umræðu í fjárlaganefnd. Fastir pennar 22. desember 2017 07:00
Sirkusinn Vandamálið sem fjölmiðlar glíma við er að stjórnmálin eru leikhús þar sem einlægni er ekki metin að verðleikum. Fastir pennar 21. desember 2017 07:00
Feluleikur um janúarlandslið Handbolti er svo dásamlega skemmtileg íþrótt og nú þegar hann er kominn á Stöð 2 Sport fær hann verðskuldaða athygli. Handboltinn hefur verið að stíga út úr þeim skrýtna fasa sem hann var kominn í og er að nútímavæðast, þó enn sé langt í land. Bakþankar 21. desember 2017 07:00
Saga skiptir máli Við köllum það skort á söguskyni þegar menn gera mistök fyrir þá vandræðalegu sök að þeir virðast ekki þekkja hliðstæðar skyssur fyrri tíðar. Fastir pennar 21. desember 2017 07:00
Tímaskekkja Það er einhver grundvallarvitleysa í tilveru, starfsemi og ákvörðunum kjararáðs. Fastir pennar 20. desember 2017 07:00
Hvert fór hún? Pakkar glitra undir jólatrénu. Rjúpur krauma á pönnunni. Í dag er glatt í döprum hjörtum ómar í útvarpinu. Tár trítlar niður kinnina á pabba, honum finnst lagið svo fallegt. Fjögur kerti loga á skenknum. Jólin. Bakþankar 20. desember 2017 07:00
Flugið lækkað Ef ein stétt á rétt 20 prósenta launahækkun á einu bretti er greinilegt að Icelandair, sem greiðir launin, hefur látið reka á reiðanum - nema kröfur flugvirkja séu útúr kortinu. Fastir pennar 19. desember 2017 07:00
Samglaðst með pólitíkusum Mér finnst ágætt að sjá ný andlit í pólitíkinni en ég finn til mun meiri fögnuðar þegar ég get samglaðst fólki sem er að hætta á þeim vettvangi. Á þessu er þó ein undantekning. Bakþankar 19. desember 2017 07:00
Ofurtölva buffar fartölvu Ég vil ekki gera lítið úr árangri starfsmanna Google og forrits þeirra Alpha Zero sem, að þeirra sögn, kenndi sjálfu sér að tefla í fjóra tíma og rústaði svo besta skákforriti heims. Liðið hjá Google var örugglega að gera eitthvað sniðugt. Fastir pennar 19. desember 2017 07:00
Jólafréttir Innan um fallegar fréttir af piparkökubakstri, jólasveinum og alls konar jólalegum skemmtilegheitum leynast aðrar fréttir miður skemmtilegar og uppörvandi en engu að síður líka árstíðabundnar. Fastir pennar 18. desember 2017 07:00
Besta gjöfin Í aðdraganda jólanna heyrum við oft að samverustundirnar skipti höfuðmáli. Pakkarnir, hátíðarmaturinn og allt annað sem fylgi sé partur af sviðsmynd en ekki aðalatriði. Bakþankar 18. desember 2017 07:00
Víkingur brillerar Það er kannski eðli máls samkvæmt að það sem aflaga fer í samfélaginu ratar fremur í fréttir en þegar allt gengur vel. Bakþankar 16. desember 2017 14:55
Pistill sem þú getur ekki verið ósammála Samkvæmt áreiðanlegum rannsóknum er það sem ég geri hér á síðum Fréttablaðsins einskis virði. Ég gæti allt eins starfað við að grafa skurði og moka ofan í þá aftur. Það skilar engu og skilur ekkert eftir sig. Fastir pennar 16. desember 2017 07:00
Bókabúðir auðga bæinn Ný ríkisstjórn hefur þegar gengið á bak orða sinna. Þrátt fyrir fögur fyrirheit fyrir kosningar og síðan í stjórnarsáttmála liggur fyrir að samkvæmt fjárlögum verður virðisaukaskattur á bækur ekki afnuminn strax. Skoðun 16. desember 2017 07:00
Atferlisrannsókn á mannmaurum Til er fólk, einkum börn í amerískum bíómyndum, sem geymir á gluggakistum í herbergjum sínum glerbúr með mold og maurum. Fastir pennar 15. desember 2017 07:00
Jóla hvað? Er latur að eðlisfari. Leiðist allt óþarfa vesen og tilstand. Skil því engan veginn fólk sem flækir lífið og tilveruna að gamni sínu. Bakþankar 15. desember 2017 07:00
Skiptir máli Skuldabréfaútgáfur ríkisins sæta almennt ekki tíðindum. Þau tímamót urðu hins vegar í vikunni að ríkissjóður gaf út 500 milljóna evra skuldabréf á hagstæðustu kjörum sem hann hefur nokkurn tíma fengið á erlendum fjármagnsmörkuðum. Fastir pennar 15. desember 2017 07:00
Kærleikurinn í umferðinni Það getur reynst nokkuð góður mælikvarði á geðheilsu manna hversu vel þeir kunna að bregðast við áreiti í umferðinni á götum höfuðborgarsvæðisins. Bakþankar 14. desember 2017 07:00
Samstæð sakamál IV Eftir hrunið 2008 varð fljótlega ljóst að þv. ríkisstjórn vildi ekki að erlendir aðilar kæmu að rannsókn málsins. Ég lagði það til í ræðu minni á borgarafundi í Háskólabíói 24. nóvember þá um haustið að óvilhallir útlendingar yrðu hafðir með í ráðum við rannsóknina og aftur í einkasamtali við ráðherra. Ég varð þess áskynja að við þetta var ekki komandi. Fastir pennar 14. desember 2017 07:00
Litlu skrefin Með aukinni umfjöllun um skaðsemi sykurneyslu breytast neysluvenjur almennings. Fastir pennar 14. desember 2017 07:00
Amma og afi Það er mikið álag á mörgum heimilum þessa dagana og þá sérstaklega hjá þeim sem hafa lítið á milli handanna. Fastir pennar 13. desember 2017 07:00
Brauðtertur og tengsl Ég stend úti fyrir dyrum með töskuna mína, svolítið svona eins og ljósmóðir í sveit frá fyrrihluta síðustu aldar, og hringi bjöllunni. Á móti kemur angan af brauðterturúllum í ofni í bland við rakspíra og ilmvötn, skvaldur hinna fullorðnu og hlátrasköll barna. Bakþankar 13. desember 2017 07:00
Við berum ábyrgð Neysluskrímslið bærir á sér, sársvangt og illa fyrir kallað, en skelfur þó af barnslegri eftirvæntingu. Í desember skal stiginn trylltur dans og látið dólgslega. Moll, netbúllur, utanlandsferðir. Einkunnarorð dagsins eru: kaupa, kaupa, kaupa. Bakþankar 12. desember 2017 07:00