Mjófirðingar segja laxeldi geta lyft byggðinni snöggt Mjófirðingum líst vel á ákvörðun atvinnuvegaráðherra að hefja undirbúning laxeldis í Mjóafirði. Ráðgjafi í fiskeldismálum áætlar að fjörðurinn gæti árlega skilað tíu til tólf milljarða króna útflutningsverðmæti. Innlent 26. nóvember 2025 20:20
Andstaða almennings hvati til að búa vel um hnútana Atvinnuvegaráðherra hefur beint því til Hafrannsóknastofnunar að framkvæma burðarþolsmat og koma með tillögur að eldissvæðum vegna laxeldis í Mjóafirði svo hægt verði að bjóða út leyfi næsta vor. Hún boðar frumvarp á nýju ári og segist ekki vera í andstöðu við kjósendur Viðreisnar í málinu. Innlent 26. nóvember 2025 12:14
Hanna Katrín boðar sjókvíaeldi í Mjóafirði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur nú kallað eftir því að Hafrannsóknarstofnun geri burðarþolsmat í Mjóafirði og tillögur að eldissvæðum í firðinum. Innlent 26. nóvember 2025 08:51
Þrjú göt fundust í sjókví í Reyðarfirði Matvælastofnun hefur hafið rannókn eftir að tilkynning barst frá Kaldvík á þriðjudaginn fyrir viku um þrjú göt á nótarpoka einnar kvíar á eldissvæðinu Hafranesi í Reyðarfirði. Innlent 25. nóvember 2025 14:57
Sendi yfirvöldum undirskriftir vegna Fjarðarheiðarganga Undirskriftir 2.729 einstaklinga til stuðnings Fjarðarheiðargöngum milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar hafa verið sendar rafrænt til samgönguyfirvalda. Keppni í söfnun undirskrifta milli stuðningshópa tveggja mismunandi jarðgangakosta á Austurlandi heldur áfram á netinu en tólf dagar eru frá því innviðaráðherra voru afhentar 2.133 undirskriftir til stuðnings Fjarðagöngum, tvennum göngum milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar um Mjóafjörð. Innlent 25. nóvember 2025 10:40
Að gefnu tilefni – Upplýsingar um Fjarðarheiðargöng Fjarðarheiðargöng eru eitt af mikilvægustu samgönguverkefnum á Austurlandi. Öryggi vegfarenda er ein helsta ástæða framkvæmdarinnar ásamt því að tryggja aðgengi að mikilvægri heilbrigðisþjónustu allan ársins hring. Skoðun 18. nóvember 2025 07:01
Tveir ekki í öryggisbelti Ökumaður og fjórir farþegar voru fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Öxi í gærkvöldi. Aðeins þrír voru í öryggisbeltum og einn farþegi festist undir bílnum þegar hann valt. Innlent 18. nóvember 2025 00:08
Fjarðarheiðargöng komin ofar í undirskriftakeppni Fylgismenn Fjarðarheiðarganga hafa náð að safna fleiri undirskriftum en fylgismenn Fjarðaganga í ákafri keppni í söfnun undirskrifta sem stendur núna yfir á Austurlandi. Þar takast á stuðningshópar tveggja mismunandi jarðgangakosta í fjórðungnum. Innlent 17. nóvember 2025 21:21
Lögreglumenn náðu stjörnuhrapi á eftirlitsmyndavél Lögreglumenn í eftirlitsferð á Austurlandi urðu vitni að stjörnuhrapi sem svo heppilega vildi til að festist á filmu eftirlitsmyndavélar lögreglubílsins. Innlent 15. nóvember 2025 23:46
Áköf undirskriftakeppni hafin vegna jarðganga Áköf keppni eru hafin í söfnun undirskrifta milli stuðningsmanna tveggja mismunandi jarðgangakosta á Austurlandi, annarsvegar Fjarðarheiðarganga og hinsvegar Fjarðaganga. Samtímis býður Vegagerðin út verkhönnun Fljótaganga, jarðganga á Norðurlandi, sem gæti bent til þess að þau verði næst í röðinni og tekin fram fyrir göng á Austfjörðum. Innlent 15. nóvember 2025 20:10
Safna undirskriftum til að styðja Fjarðarheiðargöng Undirskriftasöfnun er hafin á netinu til stuðnings Fjarðarheiðargöngum, milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar. Upphafsmaður hennar er Lárus Bjarnason, fyrrverandi sýslumaður á Seyðisfirði. Innlent 14. nóvember 2025 13:15
Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Innviðaráðherra segir stefnt að því að framkvæmdir við næstu jarðgöng á Íslandi hefjist árið 2027. Ráðherranum voru í dag afhentar yfir tvö þúsund undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að taka svokölluð Fjarðagöng á Mið-Austurlandi fram yfir Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar. Innlent 13. nóvember 2025 22:43
Gul viðvörun á Austfjörðum Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna norðvestan hvassviðris eða storms á Austfjörðum á morgun. Veður 11. nóvember 2025 12:23
Kristmundur verður lögreglustjóri á Austurlandi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Kristmund Stefán Einarsson í embætti lögreglustjóra á Austurlandi. Skipun Kristmundar tekur gildi þann 1. nóvember næstkomandi. Innlent 27. október 2025 17:22
Nýr lögreglustjóri á Austurlandi verði skipaður á allra næstu dögum Stefnt er að því að skipað verði í embætti lögreglustjórans á Austurlandi á allra næstu dögum, en þrír sóttu um embættið sem auglýst var laust til umsóknar í sumar. Staða lögreglustjórans á Austurlandi hefur verið laus síðan í vor eftir að fyrrverandi lögreglustjóri hvarf til annarra starfa, og hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra verið settur lögreglustjóri í umdæminu síðan. Innlent 23. október 2025 14:19
Umferðarslys á Fagradal og veginum lokað Veginum um Fagradal hefur verið lokað vegna umferðarslyss sem þar varð síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi standa enn yfir aðgerðir á vettvangi og hafa sjúkrabílar sótt slasað fólk á vettvang en ekki er talið að um alvarleg meiðsl sé að ræða, þó einhver. Nokkur vetrarfærð er á svæðinu og hefur fjallvegum í nágrenninu einnig verið lokað vegna ófærðar. Innlent 22. október 2025 14:52
Kókaín, MDMA og mikið magn ketamíns í Norrænu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö stór fíkniefnamál sem tengjast komu Norrænu til Seyðisfjarðar í september. Alls varða málin 27 kíló af kókaíni, ketamíni og MDMA. Aldrei hefur meira magn ketamíns verið haldlagt í einu. Innlent 14. október 2025 10:21
Breyta eftirliti með hraða í Fáskrúðsfjarðargöngum Meðalhraðaeftirlit verður tekið í notkun í Fáskrúðsfjarðargöngum á morgun. Myndavélar á hvorum enda ganganna mæla meðalhraða bílanna og gæta að því að fólk aki ekki of hratt. Innlent 13. október 2025 11:08
Hafa þurft að sjóða vatnið í 79 daga Á síðustu fjórum árum hefur íbúum á Stöðvarfirði verið ráðlagt að sjóða vatnið sitt í alls 79 daga vegna sex mengunartilfella í vatnsbóli bæjarins. Þrjú af sex tilfellunum komu upp á síðustu þremur mánuðum. Innlent 6. október 2025 16:41
Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Heilbrigðiseftirlit Austurlands ráðleggur íbúum á Stöðvarfirði að sjóða vatn eftir að sýni úr vatnsbóli bentu til þess að mengun hefði borist í það í miklu vatnsveðri síðustu daga. Óhætt er sagt að nota vatn ósoðið til annars en neyslu. Innlent 3. október 2025 11:55
Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Leikskóladeild Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á Stöðvarfirði verður að öllu óbreyttu lokað vegna mönnunarvanda. Foreldrar barnanna þurfa að keyra börnin sín á leikskóladeild skólans á Breiðdalsvík. Innlent 2. október 2025 21:39
Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur tekið ákvörðun um að leggja tveimur skipum í flota samstæðunnar. Ákvörðunin er hluti hagræðingaraðgerða til að bregðast við samdrætti aflaheimilda, áhrifum af hækkun á kostnaðarliðum og breytingum á rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja. Viðskipti innlent 29. september 2025 16:31
„Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Íbúi á Stöðvarfirði segist langþreytt eftir að hafa neyðst til að sjóða allt sitt neysluvatn í tvo mánuði. Hún biðlar til stjórnvalda að taka málum er varða neysluvatn alvarlega og segir ljóst að eitthvað þurfi að breytast. Innlent 28. september 2025 19:27
Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var í gær kölluð út vegna aflvana báts sem staddur var um fimmtíu kílómetra norðaustur af Norðfirði. Fjórir voru um borð í fiskibátnum en engin yfirvofandi hætta var á ferð. Innlent 28. september 2025 09:00
Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Samningar hafa náðst í kjaradeilu Rafiðnaðarsambands Íslands og AFLs við Alcoa og hefur fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu um verkfall því verið aflýst. Innlent 19. september 2025 13:51
Austurland lykilhlekkur í varnarmálum Ísland hefur ákveðið að auka framlag sitt til varnarmála í ljósi breyttrar alþjóðlegrar stöðu og aukinnar áherslu á öryggismál. Það er skiljanleg og nauðsynleg ákvörðun, því við þurfum að axla okkar hlut í alþjóðlegu samstarfi og tryggja öryggi landsins. Skoðun 18. september 2025 13:02
Íbúar þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn Íbúar á Stöðvarfirði þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn, þar sem öll sýni „komu vel út“ eftir sýnatöku á þriðjudag. Frá þessu greinir í tilkynningu frá skrifstofu bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Innlent 18. september 2025 08:51
Sýkt vatnsból á Stöðvarfirði eigi brátt að heyra sögunni til E. coli sýkingar í neysluvatni Stöðvarfjarðar ættu brátt að heyra sögunni til en bæjarstjórn hefur fest kaup á sérstöku tæki til hreinsunar vatnsins. Tvær sýkingar í vatnsbólinu hafa komið upp á rúmum mánuði en bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir von á búnaðinum til landsins í næsta mánuði. Innlent 13. september 2025 14:16
Búin að sjóða vatn í rúman mánuð og segir íbúa ekki treysta vatnsbólinu Í annað sinn á rúmum mánuði þurfa íbúar Stöðvarfjarðar að sjóða neysluvatn eftir að E Coli sýking kom upp. Íbúi á svæðinu segir bresti í upplýsingagjöf sveitarfélagsins og að traustið gagnvart vatnsbólinu sé lítið. Innlent 12. september 2025 13:31
E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði Niðurstöður Heilbrigðiseftirlits Austurlands staðfesta að kólí og E.coli hafi greinst í neysluvatninu á Stöðvarfirði. Nauðsynlegt er að sjóða allt vatn til neyslu. Innlent 11. september 2025 14:52