Webber vann í Brasilíu Mark Webber hjá Red Bull varð hlutskarpastur í Brasilíukappakstrinum í Formúlunni í dag. Þetta var lokamót tímabilsins og fyrsti sigur Webber. Formúla 1 27. nóvember 2011 18:06
Vettel ánægður eftir hafa slegið met Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Brasilíu í dag. Hann náði besta tíma og sló met sem hann átti með Nigel Mansell hvað besta árangur í tímatöku á sama ári varðar. Formúla 1 26. nóvember 2011 21:48
Vettel náði besta tíma í tímatökunni og setti nýtt met Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.181 úr sekúndu á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull. Jenson Button náði þriðja besta tíma á McLaren. Formúla 1 26. nóvember 2011 19:29
Vettel fljótastur á lokaæfingunni og getur slegið met í tímatökunni Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Jenson Button á McLaren varð annar og var 0.087 úr sekúndu á eftir Vettel, en Mark Webber á Red Bull náði þriðja besta tíma. Hann var 0.137 úr sekúndu á eftir Vettel. Formúla 1 26. nóvember 2011 14:21
Hamilton fljótastur á annarri æfingunni í dag Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.167 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bull varð 0.195 á eftir Hamilton. Webber hafðii áður náð besta tíma á fyrri æfingu dagsins. Formúla 1 25. nóvember 2011 17:41
Webber fljótastur á fyrstu æfingunni fyrir lokamótið í Brasilíu Mark Webber á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Síðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Formúla 1 25. nóvember 2011 13:57
Kubica ekki tilbúiinn að keppa í Formúlu 1 í upphafi næsta tímabils Robert Kubica tilkynnti Formúlu 1 liði Renault í dag, að þrátt fyrir að hann sé í öflugri endurhæfingu, þá sé oft snemmt fyrir að hann skuldbinda sig til að keppa í Formúlu 1 í upphafi næsta keppnistímabils. Kubica meiddist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með Renault á þessu keppnistímabili og liðið hefur beðið eftir fréttum af Kubica vegna næsta árs. Kubica telur sig þurfa lengri tíma til að ná fullri heilsu. Formúla 1 23. nóvember 2011 17:15
Barrichello vill ekki hætta í Formúlu 1 Rubens Barrichello verður á heimavelli í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu um næstu helgi með Williams liðinu, en liðið hefur ekki framlengt samning hans til næsta árs enn sem komið er svo vitað sé. Hefur liðið m.a. rætt við Kimi Raikkönen um möguleikann á því að aka með liðinu á næsta ári. Formúla 1 22. nóvember 2011 17:15
Pedro de la Rosa keppir með HRT liðinu næstu tvö árin Spánverjinn Pedro de la Rosa hefur skrifað undir tveggja ára samning við HRT Formúlu 1 liðið sem keppnisökumaður og ekur með liðinu 2012 og 2013. Hann hefur starfað með McLaren liðinu frá 2003 sem vara- og þróunarökumaður og keppti í nokkrum mótum með liðinu, auk þess að aka með Sauber um tíma sem keppnisökumaður. Formúla 1 21. nóvember 2011 17:45
Vergne fljótastur þriðja daginn í röð og ánægður með frammistöðu sína Jean Eric Vergne frá Frakklandi reyndist fljótastur í dag á æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí. Hann náði líka besta tíma á mánudag og þriðjudag, en æfingadagurinn í dag var sá síðasti á dagskrá. Æfingarnar notuðu liðin m.a. til að gefa ungum ökumönnum tækifæri um borð bílum sínum. Vergne var með besta tíma í dag á undan Bretanum Sam Bird á Mercedes, en Frakkinn Jules Bianchi náði þriðja besta tíma á Ferrari. Formúla 1 17. nóvember 2011 17:24
Bottas vonast til að hafa sannað sig fyrir Williams Valtteri Bottas frá Finnlandi ók Williams Formúlu 1 bíl á æfingum í Abú Dabí i gær og fyrradag, en Williams liðið er enn að skoða hvaða ökumaður verður hjá liðinu á næsta ári við hlið Pastor Maldonado. Bottas er einn af mörgum ungum ökumönnum sem hefur fengið að spreyta sig á æfingum Formúlu 1 liða í Abú Dabí. Formúla 1 17. nóvember 2011 13:21
Bianchi í mikilvægri vinnu með Ferrari Formúlu 1 lið héldu áfram að prófa unga ökumenn um borð í bílum sínum á Abú Dabí brautinni í dag eins og í gær. Frakkinn Jean Eric Vergne a Red Bull náði aftur besta tíma á Yas Marina brautinni. Landi hans Jules Bianchi sem er varaökumaður Ferrari náði næstbesta tíma. Ökmenn eru m.a. að prófa Pirelli dekk fyrir næsta ár á æfingunum í Abú Dabí. Formúla 1 16. nóvember 2011 20:30
Williams staðfestir viðræður við Raikkönen Frank Williams hefur staðfest ári í viðtali við MTV3 sjónvarpsstöðina í Finnlandi að lið hans sé í viðræðum við Finnann Kimi Raikkönen um að aka með liðinu í Formúlu 1 á næsta ári. Oscar Saari, sem er Formúlu 1 sérfræðingur stöðvarinnar ræddi við Williams um áhuga hans á Raikkönen og hann sagði að það væri ekkert leyndarmál að liðið hefði mikinn áhuga á Raikkönen Formúla 1 16. nóvember 2011 11:45
Formúlu 1 lið að meta hæfileika ungra ökumanna Formúlu 1 lið gáfu ungum ökumönnum tækifæri á Formúlu 1 tveimur æfingum í Abú Dabí í dag og verða æfingar næstu tvo daga til viðbótar. Liðin nota æfingarnar til að meta hæfileika ungra ökumanna með framtíðina í huga eða til að prófa ýmislegt í búnaði bíla sinna. Formúla 1 15. nóvember 2011 17:48
Enn óljóst með endurkomu Kubica Eric Boullier framkvæmdarstjóri Renault Formúlu 1 liðsins segir að liðið sé enn að bíða og sjá hvort Robert Kubica keppi með liðinu i Formúlu 1 á næsta ári. Kubica slasaðist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með liðinu í ár og hefur verið í endurhæfingu eftir óhappið. Formúla 1 15. nóvember 2011 10:15
Möguleiki Vettel á að jafna met Schumacher úr sögunni í ár Christian Horner, yfirmaður meistaraliðs Red Bull sagði Sebastian Vettel hafa verið vonsvikinn eftir keppnina í Abu Dabí í gær eins og allt liðið. Vettel féll úr leik í fyrsta hring eftir að afturdekk hvellsprakk og engin skýring hefur enn fundist á því hvað var þess valdandi. Vettel var í fyrsta sæti þegar dekkið sprakk. Formúla 1 14. nóvember 2011 15:22
Whitmarsh: Frábært að sjá báða ökumenn McLaren á verðlaunapallinum Lewis Hamilton vann sinn sautjánda sigur með McLaren í gær, þegar hann kom fyrstur í endamark í Formúlu 1 mótinu í Abú Dabí í gær. Martin Whitmarsh, yfirmaður liðsins segir að Hamilton hafi ekið óaðfinnanlega, en liðsfélagi hans Jenson Button varð þriðji í keppninni. Formúla 1 14. nóvember 2011 13:30
Alonso vill huga að næsta keppnistímabili sem fyrst Fernando Alonso á Ferrari veitti Lewis Hamilton mesta keppni í dag í Formúlu 1 mótinu í Abú Dabí í dag, en Hamilton vann sinn þriðja sigur á árinu þegar hann kom fyrstur í endamark í mótinu. Alonso sagðist hafa ekið hvern hring í mótinu eins og um tímatöku hefði verið að ræða, til að halda í við Hamilton. Formúla 1 13. nóvember 2011 22:47
Vettel féll úr leik í fyrsta skipti á árinu eftir að dekk sprakk Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel féll úr leik í fyrsta hring í kappakstrinum í Abú Dabí í dag, eftir að afturdekk sprakk skömmu eftir að keppendur voru ræstir af stað. Bíllinn snerist útaf brautinni, en það er óljóst er hvað olli því að dekkið sprakk, því Vettel lenti ekki í stamstuði við neinn annan keppanda í upphafi mótsins. Hann hafði verið fremstur á ráslínu og var í forystu í kappakstrinum þegar dekkið sprakk. Formúla 1 13. nóvember 2011 20:50
Lewis Hamilton vann í Abú Dabí Bretinn Lewis Hamilton, Mclaren, vann kappaksturinn í Abú Dabí í dag, en þetta er í þriðja sinn á tímabilinu sem hann fer með sigur af hólmi. Formúla 1 13. nóvember 2011 20:09
Hamilton: Sigur er góður fyrir sálina Lewis Hamilton á McLaren vann sinn þriðja sigur á Formúlu 1 keppnistímabilinu í dag, þegar hann kom fyrstur í endarmark á Yas Marina brautinni í Abú Dabí. Hann tileinkaði móður sinni sigurinn þegar hann var kominn í endmark. Formúla 1 13. nóvember 2011 18:29
Vettel: Mjög ánægður með að ná besta tíma Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í dag og jafnaði um leið met sem Nigel Mansell setti árið 1992, þegar hann náði fjórtán sinnum besta tíma í tímatöku. Vettel verður því fremstur á ráslínu í kappakstrinum á sunnudag og það er í fjórtánda skipti á árinu sem hann verður í þeirri stöðu í Formúlu 1 móti á árinu. Formúla 1 12. nóvember 2011 21:16
Vettel fljótastur í tímatökunni í Abú Dabí og jafnaði met Mansell Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Yas Marina brautinni í Abu Dabí í dag. Hann var 0.141 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren og Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.150 úr sekúndu á eftir Vettel. Vettel hefur fjórtán sinnum náð besta tíma í tímatöku á árinu. Formúla 1 12. nóvember 2011 14:43
Hamilton fljótastur á lokæfingunni í Abú Dabí Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinn í Abu Dhabi í dag. Hann varð 0.427 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bull var með þriðja besta tíma og var 0.451 á eftir Hamilton. Formúla 1 12. nóvember 2011 11:41
Hamilton sneggstur á seinni æfingunni í Abú Dabí Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í dag, en liðsfélagi hans hjá McLaren liðinu, Jenson Button náði næstbesta tíma. Hamilton ók á tímanum 1.39.586, en Button var 0.199 úr sekúndu á eftir honum Formúla 1 11. nóvember 2011 14:38
Button fljótastur á fyrstu æfingunni í Abú Dabí Jenson Button á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í morgun, en næstsíðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Formúla 1 11. nóvember 2011 10:51
Rosberg framlengdi samning sinn við Mercedes liðið Nico Rosberg hefur framlengt samning sinn við Mercedes Formúlu 1 liðið og í frétt á autosport.com segir að umræða hafi verið um það síðustu mánuði að hann færi til Ferrari í framtíðinni, en nú er ljóst að hann hefur framlengt samning sinn við Mercedes til loka 2013 í það minnsta. En í fréttatilkynningu frá Mercedes er rætt um samning sem nær til loka 2013 og framyfir þann tíma, sem gæti þýtt að hann eigi val á að vinna lengur með Mercedes samkvæmt frétt autosport.com. Formúla 1 10. nóvember 2011 16:00
Grosjean fær tækifæri á æfingum með Renault Heimsmeistarinn í GP 2 mótaröðinni 2011, Romain Grosjean mun aka með Renault liðinu á æfingu á föstudegi í þeim tveimur Formúlu 1 mótum sem eftir eru. Næsta mót er í Abú Dabí um næstu helgi. Grosjean er varaökumaður Renault liðsins, en Bruno Senna og Vitaly Petrov eru aðalökumenn þess. Formúla 1 9. nóvember 2011 06:30
Button: Yas Marina brautin tilkomumikil Jenson Button hjá McLaren varð í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel á Red Bull í síðustu Formúlu 1 keppni, sem var í Indlandi á nýrri braut og Button keppir í Abú Dabí um næstu helgi. Button er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna, en Vettel er þegar orðinn heimsmeistari ökumanna. Formúla 1 8. nóvember 2011 11:30
Hamilton vill vinna tvö síðustu mótin Lewis Hamilton hjá McLaren hefur unnið tvö Formúlu 1 mót á þessu keppnistímabili og vill ljúka því með því að vinna tvö síðustu mót ársins. Fyrra mótið er í Abu Dabí um næstu helgi, á Yas Marina-brautinni, en það síðara fer fram í Brasilíu. Formúla 1 7. nóvember 2011 19:00