

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Lentu í Eyjum vegna gangtruflana
Lítilli vél á leið til Skotlands var lent í Vestmannaeyjum í morgun.

Hljóðlátasta þota heims þurfti hálfa flugbrautina
Nýjasta stolt kanadískrar flugvélaframleiðslu, stærsta farþegaþota Bombardier, millilenti í Reykjavík eftir flugprófanir og sýningarflug í Evrópu.

Stærsta þota Bombardier mátar Reykjavíkurflugvöll
Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld verða sýndar myndir af flugvélinni og rætt við flugstjórann.

Starfsmenn WOW safna peningum fyrir Kristján og fjölskyldu
Starfsmenn WOW air hafa hrint af stað söfnun til að safna gjaldeyri fyrir Kristján Björn Tryggvason og fjölskyldu hans.

Farþegafjöldi WOW air í september vex um 165 prósent
WOW air flutti 192.860 farþega til og frá landinu í september.

Stjórnvöld dragbítur á eðlilega þróun
Stjórnvöld verða að gyrða sig í brók og marka stefnu í uppbyggingu ferðaþjónustu til lengri tíma. Spár um fjölgun ferðamanna hafa einkennst af skammsýni sem gæti reynst dýrkeypt. Gríðarleg uppbygging er í farvatninu hjá WOW air, ful

Icelandair hefur áætlunarflug til Philadelphia
Átjándi áfangastaður flugfélagsins í Norður-Ameríku.

Icelandair hefur áætlunarflug til Tampa á Flórída á næsta ári
Flogið verður tvisvar á viku milli Keflavíkur og Tampa International Airport frá og með 7. september 2017.

Íslendingar fljúga í Karíbahafi
Félagið heitir Dominican Wings og er dótturfélag litháíska flugfélagsins Avion Express. Um síðustu helgi flaug Airbus 320 vél Dominican Wings jómfrúarflug sitt frá Santo Domingo, höfuðborg Dómíniska lýðveldisins til Miami í Bandaríkjunum.

Ábyrgð stjórnarmanna
Mér, sem hluthafa í Icelandair hf. og fjárfesti á íslenskum hlutabréfamarkaði, finnst ég geta gert þá kröfu að fólk sem tekur sæti í stjórnum skráðra íslenskra fyrirtækja og fer þar meðal annars fyrir öðrum hagsmunum en sínum eigin, viti betur en svo að selja, í félagi þar sem það situr í stjórn, á síðasta degi ársfjórðungsins, það eru ekki góðir stjórnarhættir.

Gagnrýnir sölu á bréfum stjórnarmanns í Icelandair
Svanhildur segir í harðorðri grein að sala Katrínar Olgu Jóhannesdóttur á bréfum í félaginu skömmu áður en uppgjörstímabili lauk sé til marks um að hún láti eigin hagsmuni ganga fyrir hagsmunum fyrirtækisins.

Neikvæðni einkenndi markaði
Valdimar Ármann, framkvæmdastjóri sjóða hjá GAMMA, segir að eftir góða byrjun á mörkuðum í upphafi hausts hafi samverkandi fréttir og áhyggjur hafa haft neikvæð áhrif á stemninguna í lok mánaðarins, en svo hafi birt aftur til um helgina og léttara yfir mörkuðum á ný í byrjun þessarar viku.

Stórkostleg ljósmynd tekin í Njarðvík: „Eins og sprengingar fyrir ofan hausinn á okkur“
Halldór Guðmundsson var með myndavélina á lofti í Njarðvík í morgun og náði mögnuðu skoti.

Hlutabréf í Icelandair rjúka upp
Hlutabréfin hafa hækkað um rúmlega fjögur prósent í morgun.

Áætla 4,2 milljónir farþega árið 2017
Gert er ráð fyrir að flugáætlun Icelandair verði um 13 prósent umfangsmeiri árið 2017 en á þessu ári.

Bréfin hríðféllu eftir sölu Olgu
Gengi hlutabréfa í Icelandair Group lækkaði um 4,89 prósent í kjölfar þess að Katrín Olga Jóhannesdóttir, athafnakona og stjórnarmaður Icelandair Group, seldi 400 þúsund hluti í félaginu.

Reyndur fréttaljósmyndari segir yfirvöld hindra starf fjölmiðla
„Það er komin einhver ósýnileg hönd sem hefur þann mátt að setjast í ritstjórnarstól og hefur komið því inn hjá fjölmiðlum að þeim komi hlutirnir ekkert við,“ segir fréttaljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson.

Gæslan kvaddi goðsögn í lifanda lífi
Hetja, þjóðareign og goðsögn í lifanda lífi. Þannig er Benóný Ásgrímssyni flugstjóra lýst, en hann lét af störfum hjá Landhelgisgæslunni í dag eftir 50 ára feril. Sjálfur er Benóný þó hógværðin uppmáluð og segir það einfaldlega hluta af starfinu að bjarga mannslífum.

Sala flugvélaeldsneytis á Íslandi tvöfaldaðist á sex árum
Sala á eldsneyti á flugvélar hérlendis jókst um 90 prósent milli áranna 2009 og 2015, fór úr 116 þúsund tonnum í 220 þúsund tonn.

Minniháttar bilun olli 20 tíma seinkun á flugi Wow Air
Farþegar sumir óhressir í Leifsstöð.

Erlendir ferðamenn eyða sem aldrei fyrr hér á landi
Talsverð aukning er á eyðslu ferðamanna hér á landi á milli ára.

Þjálfaður sporhundur tekur þátt í leitinni að Guðmundi
Yfir 50 björgunarsveitarmenn taka nú þátt í leitinni að Guðmundi L. Sverrissyni, 54 ára karlmanni, sem lögreglan á Vestfjörðum lýsti eftir fyrr í dag en síðast er vitað um ferðir Guðmunds milli klukkan þrjú og fjögur í nótt á Patreksfirði.

Millilandaflug milli Egilsstaða og London undir væntingum
Gert var ráð fyrir 35 flugferðum milli London og Egilsstaða í sumar. Aðeins níu ferðir voru þó farnar. Verkefnisstjóri til þó að mikilvægt skref hafi verið stigið í sumar í eflingu millilandaflugs frá Egilsstaðaflugvelli.

Karlmaður dó í flugi Wow Air á leið til Íslands: Farþegar reyndu fyrstu hjálp
Lögregla var með töluverðan viðbúnað vegna málsins á Keflavíkurflugvelli.

„Ég flýg aldrei aftur með WOW“
Farþegi með flugi WOW Air til Rómar hefur ekki enn fengið töskuna sína eftir sex daga dvöl á Ítalíu. Hann heldur heim á morgun.

Farþegaflugvél með bilaðan hreyfil lendir á Keflavíkurflugvelli
Flugvél af gerðinni Boeing 767 lendir innan skamms á Keflavíkurflugvelli en tilkynnt var um vélarbilun fyrr í dag. Vélin er frá flugfélaginu WestJet og var á leiðinni frá London til Edmonton. Um borð eru 258 farþegar.

Tæplega fimmtungi fleiri farþegar
Í ágúst flutti félagið 484 þúsund farþega í millilandaflugi.

Tæplega 60 prósenta aukning í sætaframboði í vetur
Farþegum mun í vetur standa til boða beint flug til 57 áfangastaða og munu fjórtán flugfélög sinna fluginu.

Flugmódel af Geysi flýgur í fyrsta sinn
Eftirlíking af Loftleiðavélinni Geysi, sem brotlenti á Vatnajökli haustið 1950, þykir eitt glæsilegasta flugmódel sem smíðað hefur verið.

Ölvaður um borð í flugvél
Farþegi í vél WOW air var ölvaður og með leiðindi um borð.