Bolt skokkaði í mark | Gatlin á besta tímanum Jamaíkamaðurinn Usain Bolt virtist ekki hafa mikið fyrir því að tryggja sér sigur í sínum riðli í undanúrslitum 100 metra hlaups karla á Ólympíuleikunum. Justin Gatlin frá Bandaríkjunum hljóp þó á besta tímanum. Sport 5. ágúst 2012 20:00
Gelana sigraði í maraþonhlaupi kvenna Tiki Gelana frá Eþíópíu kom fyrst í mark í maraþonhlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í London í dag. Sport 5. ágúst 2012 13:30
Coe: Bolt ennþá sigurstranglegastur Usain Bolt er ennþá sigurstranglegastur í 100 metra hlaupi karla þrátt fyrir mikla samkeppni frá samlöndum sínum og sérstaklega heimsmeistaranum Yohan Blake, segir Sebastian Coe, Ólympíuráðherra Breta. Sport 5. ágúst 2012 09:00
Farrah fyrstur Breta til þess að vinna gull í 10 km hlaupi Mo Farrah varð í kvöld fyrsti Bretinn til þess að vinna tíu kílómetra hlaup á Ólympíuleikunum. Þessi 29 ára hlaupari kláraði hlaupið á tuttugu og sjö og hálfri mínútu og vann þar með sitt fyrsta Ólympíugull. Sport 4. ágúst 2012 21:42
Pistorius í sögubækurnar á ÓL Suður-Afríski spretthlauparinn, Oscar Pistorius, skráði sig í sögubækurnar í dag þegar hann varð fyrsti maðurinn sem keppir í spretthlaupi á Ólympíuleikum þrátt fyrir að hafa misst báða fæturna. Sport 4. ágúst 2012 15:30
Bolt flaug áfram í undanúrslit Fljótasti maður jarðar, Usain Bolt, stóð undir nafni og flaug áfram í undanúrslit í 100 metra spretthlaupi karla á Ólympíuleikunum nú fyrr í dag. Sport 4. ágúst 2012 12:42
Majewski varði Ólympíutitil sinn í kúluvarpi Pólverjinn Tomasz Majewski varði Ólympíutitil sinn í kúluvarpi karla með kasti upp á 21.89 metra í úrslitunum í kvöld. Sport 3. ágúst 2012 21:45
Árekstur Þormóðs við brasilíska tröllið | Myndasyrpa Þormóður Jónsson mátti sætta sig við tap gegn Brasilíumanninum Rafael Silva í 32-manna úrslitum í +100 kg flokki í júdókeppni Ólympíuleikanna í dag. Sport 3. ágúst 2012 21:00
Ásdís verður fánaberi Íslands Ásdís Hjálmsdóttir, keppandi í spjótkasti kvenna, verður fánaberi Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í London föstudaginn 27. júlí. Sport 26. júlí 2012 13:39
Engir Ólympíuleikar vegna kynþáttaníðs Grísku þrístökkskonunni Pasaskevi Papachristou hefur verið vikið úr Ólympíuhópi Grikkja vegna skrifa sinna á samskiptavefinn Twitter. Reuters greinir frá þessu. Sport 25. júlí 2012 22:09
Nýjar reglur um þjófstart teknar upp á ÓL í London Usain Bolt, heimsmethafi í 100 metra hlaupi karla, náði ekki að verja heimsmeistaratitil sinn í greininni á síðasta HM í Suður-Kóreu þar sem hann var dæmdur úr leik fyrir þjófstart. Atvikið vakti upp ýmsar spurningar varðandi harðar þjófstarts reglur IAAF, Alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Og IAAF hefur nú slakað aðeins á reglugerðinni fyrir Ólympíuleikana sem hefjast um helgina í London. Sport 25. júlí 2012 11:00
Bolt ætlar sér að hlaupa á 9,4 sek á ÓL í London Spretthlauparinn Usain Bolt ætlar sér að bæta heimsmetin sem eru í hans eigu í 100 m og 200 metra hlaupi á Ólympíuleikunum sem hefjast í London um næstu helgi. Jamaíkumaðurinn telur að hann geti komið í mark í 100 metra hlaupinu á 9,4 sekúndum og það met verður aldrei bætt að mati Bolt. Sport 24. júlí 2012 12:00
Usain Bolt er viss um sigur í spretthlaupunum á ÓL í London Usain Bolt er handviss um að hann geti endurtekið leikinn frá því á Ólympíuleikunum í Peking þar sem hann sigraði í 100 og 200 metra hlaupi – og setti heimsmet í báðum greinum. Bolt leggur nú lokahönd á undirbúning sinn fyrir titilvörnina en Ólympíuleikarnir verða settir í London á föstudag. Sport 23. júlí 2012 12:15
Carolina Klüft missir af Ól vegna meiðsla Carolina Klüft, fyrrum ólympíumeistari í sjöþrautt kvenna, verður ekki með á ólympíuleikunum sem hefjast í Lnndon um næstu helgi. Klüft, sem er frá Svíþjóð, meiddist á aftanverðu læri hefur keppt í langstökki undanfarin misseri eftir að hún hætti að einbeita sér að sjöþrautinni. Sport 23. júlí 2012 10:45
Guðmundur Sverrisson fékk brons á Norðurlandamóti 22 ára og yngri Guðmundur Sverrisson, ÍR, hafnaði í 3. sæti á Norðurlandamóti 22 ára og yngri en hann kastaði 74,09 metra og bætti sig um tvo metra. Sport 22. júlí 2012 16:00
Góður árangur Stefaníu og Sveinbjargar Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr FH tryggði sér í gær Norðurlandameistaratitil kvenna 22 ára og yngri í langstökki en keppt er í Jessheim í Noregi. Sport 22. júlí 2012 10:00
Einar Daði og Sveinbjörg keppa í Noregi Fjölþrautarfólkið Einar Daði Lárusson úr ÍR og Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr FH verða á meðal keppenda á Nordic Baltic frjálsíþróttamótinu í Jessheim í Noregi um helgina. Sport 21. júlí 2012 07:00
Dagskrá íslensku keppendanna á Ólympíumótinu Íþróttasamband fatlaðra birtir á heimasíðu sinni í dag dagskrá íslensku keppendanna á Ólympíumóti fatlaðra sem hefst í London 31. ágúst. Sport 18. júlí 2012 19:45
Trausti og Hafdís stálu senunni á meistaramóti Íslands í frjálsum Trausti Stefánsson úr FH sló heldur betur í gegn á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum um helgina en hann vann í 100, 200 og 400 metra spretthlaupi og hirti því þrenn gullverðlaun. Sport 15. júlí 2012 15:41
Nárameiðsli angra Powell | Verður klár í London Jamaíski spretthlauparinn Asafa Powell er hættur við keppni á Demantamótinu sem fram fer í London um helgina. Kappinn einbeitir sér að því að ná sér heilum fyrir Ólympíuleikana sem hefjast á sama stað 27. júlí. Sport 13. júlí 2012 18:00
Ásdís og Óðinn keppa á Meistaramótinu um helgina Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fer fram í 86. skipti á Laugardalsvelli um helgina. 160 keppendur eru skráðir til leiks þeirra á meðal Ólympíufararnir Ásdís Hjálmsdóttir og Óðinn Björn Þorsteinsson. Sport 13. júlí 2012 16:30
Bestu tímar ársins hjá Hafdísi og Trausta í Gautaborg Hafdís Sigurðardóttir úr UFA og Trausti Stefánsson úr FH náðu sínum bestu tímum á árinu í 400 metra hlaupi á Gautaborgarmótinu í frjálsum íþróttum um helgina. Sport 10. júlí 2012 18:15
Sveinbjörg bætti sinn besta árangur Sveinbjörg Zophaníasdóttir bætti um helgina sinn besta árangur í sjöþraut þegar hún varð í öðru sæti á móti í Belgíu. Sport 8. júlí 2012 17:09
Bætir Kári Steinn Íslandsmetið í götuhlaupi á Akureyri? Kári Steinn Karlsson, Íslandsmethafi í maraþonhlaupi karla, stefnir að því að slá brautarmetið á Íslandsmeistaramótinu í 10 km. götuhlaupi sem fram fer á Akureyri fimmtudaginn 5. Júlí. Það er Ungmennafélag Akureyrar sem hefur umsjón með Íslandsmeistaramótinu sem er hluti af dagskrá Akureyrarhlaups UFA, Átaks og Íslenskra verðbréfa. Sport 3. júlí 2012 19:00
Pistorius fékk silfurverðlaun en missti af Ólympíusæti Suður-Afríski hlauparinn Oscar Pistorius, sem keppir með koltrefjafætur frá stoðtækjafyrirtækinu Össuri, hljóp 400 metrana á afríska meistaramótinu í frjálsum íþróttum í dag á 45,52 sekúndum. Hann var 0,22 sekúndum frá því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í London. Sport 29. júní 2012 19:30
Næstbesta stökk Kristins á árinu dugði ekki - endaði í 28. sæti á EM Kristinn Torfason úr FH endaði í 28. sæti í undankeppninni í langstökki á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Helsinski í Finnlandi. Kristinn var síðasti íslenski keppandinn á mótinu. Sport 29. júní 2012 12:25
Þráinn: Vorum búnir að búa Einar Daða undir ýmislegt en ekki þetta Einar Daði Lárusson, tugþrautarmaður, lenti í þeirri leiðinlegu stöðu að langt kast hans í kringlukastkeppni dagsins var dæmt ógilt. Þjálfari hans, Þráinn Hafsteinsson, segir atvikið hafa sett Einar Daða aðeins út af laginu. Sport 29. júní 2012 07:00
Einar Daði: Rosalega gaman að keppa fyrir framan allt þetta fólk Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttamaður úr ÍR, lauk í dag sinni fyrstu tugþraut á stórmóti í frjálsum íþróttum. Einar Daði hafnaði í 13. sæti á Evrópumeistaramótinu í Helsinki með 7.653 stig sem er hans næstbesti árangur í þraut. Sport 28. júní 2012 18:12
Einar Daði í 13. sæti í tugþraut á EM í frjálsum ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson endaði í 13. sæti á Evrópumótinu í frjálsum en hann endaði þrautina á því að fá 684 stig í lokagreininni sem var 1500 metra hlaup. Sport 28. júní 2012 16:56
Einar Daði í tólfta sæti fyrir lokagreinina Einar Daði Lárusson, frjálsíþróttamaður úr ÍR, kastaði lengst 51,75 metra í spjótkastinu í tugþrautarkeppninni á Evrópumótinu í Helsinki. Einar Daði hlaut 615 stig fyrir vikið og er áfram í 12. sæti. Sport 28. júní 2012 15:43