Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Stjarnan 29-32 | Haukar í úrslit en Stjörnumenn bitu frá sér Haukar voru með fimm marka forystu eftir fyrri leikinn gegn Stjörnunni í undanúrslitum Olís-deildarinnar og kláruðu einvígið í kvöld en Stjörnumenn bitu frá sér. Handbolti 11. júní 2021 20:50
„Sófa þjálfarar sjá ekki að það eru aðrir leikmenn sem búa til færin fyrir mig" Stjarnan unnu Haukana 29-32. Þau úrslit dugðu hinsvegar ekki til og fóru Haukarnir áfram í úrslitaeinvígið eftir að hafa unnið leikinn í Garðabænum með fimm mörkum.Tandri Már Konráðsson leikmaður Stjörnunnar var svekktur með niðurstöðuna en þó stoltur af sínu liði. Handbolti 11. júní 2021 20:13
Eyjamenn hafa ekki tapað á Hlíðarenda í fjögur ár en þurfa 3-4 marka sigur Valur og ÍBV spila í kvöld seinni leik sinn í undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta. Valsmenn hafa þriggja marka forskot síðan úr fyrri leiknum í Vestmannaeyjum. Handbolti 11. júní 2021 14:02
Krían mun taka þátt í efstu deild á næstu leiktíð Hið stórskemmtilega lið Kríu gerði sér lítið fyrir og vann sér inn sæti í Olís-deild karla í handbolta fyrir skömmu. Ekki var öruggt að félagið myndi þiggja sætið en það hefur nú verið staðfest. Handbolti 10. júní 2021 21:21
Bjarki Már markahæstur á meðan Oddur og félagar misstu sigur niður í jafntefli Bjarki Már Elísson var markahæstur í sigri Lemgo á Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Oddur Gretarsson og félagar hans í Balingen-Weilstetten gerðu á sama tíma jafntefli við Coburg 2000. Handbolti 10. júní 2021 19:31
Alexander á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Flensburg-Handewitt vann tveggja marka sigur á Stuttgart, 32-30, er liðin mættust í Íslendingaslag í þýska handboltanum. Handbolti 9. júní 2021 18:30
Staðfesta það að Agnar Smári verður í banni á föstudaginn Valsmaðurinn Agnar Smári Jónsson mun ekki spila með Val í seinni leiknum á móti ÍBV í undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta. Handbolti 9. júní 2021 15:55
Björgvin um sparkið í höfuð Péturs: Allir hoppa aðeins lengra og aldrei viljaverk Björgvin Páll Gústavsson var flottur í marki Hauka í gærkvöldi þegar liðið fór langt með að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu í Olís deild karla í handbolta með fimm marka útisigri á Stjörnunni. Björgvin var líka í aðalhlutverki í umdeildasta atviki leiksins. Handbolti 9. júní 2021 11:00
„Þú ert búinn að skipta þér af öllu“ Kostuleg samskipti Róberts Arons Hostert, leikmanns Vals, og dómarans Antons Gylfa Pálssonar voru til umræðu í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir sigur Vals á ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla. Handbolti 9. júní 2021 09:31
Patrekur: Hrikalega ánægður með félagið Stjörnuna í dag Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur að tapa með fimm marka mun, 23-28, fyrir Haukum í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í kvöld. Hann sagði hins vegar að dagurinn hefði verið góður fyrir félagið Stjörnuna. Handbolti 8. júní 2021 22:45
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Haukar 23-28 | Haukar komnir með annan fótinn í úrslit Haukar unnu sinn fimmtánda leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Stjörnunni, 23-28, í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Haukar fara því með fimm marka forskot í seinni leikinn á Ásvöllum á föstudaginn kemur. Handbolti 8. júní 2021 22:44
Umfjöllun: ÍBV - Valur 25-28 | Valsmenn fara með þrjú mörk úr Eyjum Valur vann frábæran sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum er liðin mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Rosaleg dramatík átti sér stað undir lok leiks sem þýðir að Valur er þremur mörkum yfir fyrir síðari leik liðanna. Handbolti 8. júní 2021 21:00
Ómar Ingi frábær er Magdeburg sá til þess að Kiel komst ekki á toppinn Ómar Ingi Magnússon var að venju allt i öllu er Magdeburg vann Kiel með einu marki í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 34-33 Magdeburg í vil en gestirnir hefðu farið á toppinn með sigri. Handbolti 8. júní 2021 20:30
ÍBV áminnt vegna andstyggilegra hrópa „Það er ólíðandi að leikmenn og fjölskyldur þurfi að sitja undir svona á leikjum. Það getur ekki gengið upp til lengdar,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, um hegðun stuðningsmannahóps ÍBV á leikjum við FH. Handbolti 8. júní 2021 14:02
Valsmenn þurfa að gera það í næstu leikjum sem þeim tókst ekki í vetur ÍBV tekur á móti Val í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta en það lið sem hefur betur samanlagt út úr tveimur leikum spilar til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 8. júní 2021 13:31
Hafa unnið leiki með 10,6 marka mun að meðaltali eftir að hafa marið Stjörnuna Í fyrsta leik sínum í undanúrslitum úrslitakeppninnar í sögu félagsins mætir Stjarnan deildarmeisturum Hauka sem hafa unnið fjórtán leiki í röð. Handbolti 8. júní 2021 12:45
„Finnst ég vera einn besti hornamaðurinn í þýsku deildinni“ Bjarki Már Elísson kveðst ánægður í herbúðum Lemgo en hefur áhuga á að reyna sig á stærra sviði. Handbolti 8. júní 2021 11:15
Grínið sem varð að veruleika Síðustu dagar hafa verið ansi góðir fyrir Bjarka Má Elísson og félaga í þýska handboltaliðinu Lemgo. Á fimmtudaginn unnu þeir ævintýralegan sigur á Kiel í undanúrslitum bikarkeppninnar og á föstudaginn varð Lemgo svo bikarmeistari í fyrsta sinn síðan 2002 eftir sigur á Melsungen. Handbolti 8. júní 2021 10:01
KA/Þór stelpur gerðu það sem ekkert annað Íslandsmeistaralið hefur gert Fall var heldur betur fararheill fyrir leikmenn KA/Þórs í úrslitakeppni Olís deildar kvenna í handbolta. Handbolti 7. júní 2021 16:31
Aldís svaraði kalli Rutar í lokasókninni Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði markið sem gulltryggði KA/Þór fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins. Handbolti 7. júní 2021 15:30
Átján ára ísköld á ögurstundu Hin átján ára Rakel Sara Elvarsdóttir átti stóran þátt í fyrsta Íslandsmeistaratitli KA/Þórs og sýndi oft stáltaugar þegar mest var undir í úrslitakeppninni. Handbolti 7. júní 2021 14:03
Einar Andri um undanúrslitin í Olís-deild karla: Þetta eru bara tveir leikir og það getur allt gerst Einar Andri Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, fór yfir leikina sem eru framundan í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Hann telur að fyrirkomulag mótsins í ár geti spilað stóra rullu. Handbolti 6. júní 2021 18:59
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - KA/Þór 23-25 | KA/Þór Íslandsmeistari í fyrsta sinn KA/Þór varð í dag Íslandsmeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Val, 23-25, í Origo-höllinni. Akureyringar unnu einvígið, 2-0. Handbolti 6. júní 2021 18:40
Liðsheildin í þessu liði er mögnuð Matea Lonac markmaður KA/Þór var í skýjunum með Íslandsmeistaratitilinn eftir leik. Sport 6. júní 2021 18:21
Spennt að komast norður og fagna með fólkinu Aldís Ásta Heimisdóttir hefur spilað frábærlega í úrslitaeinvíginu gegn Val. Hún skoraði 6 mörk í dag og var í skýjunum með Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 6. júní 2021 18:15
KA/Þór voru langbestar á tímabilinu og áttu þetta skilið Ágúst Þór Jóhannsson þjáfari Vals var súr með silfrið eftir að hafa tapað úrslitaeinvíginu gegn KA/Þór. Handbolti 6. júní 2021 18:05
Engin bikarþynnka hjá Lemgo og Alexander á toppnum Bjarki Már Elísson og lærisveinar í Lemgo urðu bikarmeistarar í vikunni en það stöðvaði ekki Lemgo lestina í dag sem vann sigur, 32-25, á Nordhorn-Lingen. Handbolti 6. júní 2021 15:38
Lið KA/Þórs getur í dag orðið það tólfta í sögunni til að fagna Íslandsmeistaratitli Deildarmeistarar KA/Þórs geta í dag orðið tólfta félagið frá upphafi til að fagna Íslandsmeistaratitli í handbolta kvenna, með sigri á Val. Handbolti 6. júní 2021 10:31
Aron ekki með þegar Barcelona tryggði sig í úrslit Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona eru skrefi nær spænska bikarmeistaratitlinum í handbolta eftir öruggan sextán marka sigur í undanúrslitum keppninnar í kvöld. Handbolti 5. júní 2021 21:01
Kristján Örn og félagar í góðum málum fyrir lokaumferðina Íslenski landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC AIX unnu mikilvægan sigur í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Handbolti 5. júní 2021 20:09