Gerum betur og setjum heilsuna í forgang Sífellt fleiri gera sér betur grein fyrir því hvað geðheilbrigði skiptir okkur öll miklu máli með sama hætti og líkamlegt heilbrigði. Landssamtökin Geðhjálp ýttu úr vör í upphafi þorrans árlegu 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín og er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Lífið samstarf 29.1.2025 13:13
„Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Ebba Guðný Guðmundsdóttir hefur áralanga reynslu og þekkingu á heilsueflandi eiginleikum eplaediks og mælir eindregið með Apple Cider töflunum frá New Nordic fyrir þá sem vilja bæta meltinguna og draga úr óþægindum sem stafa af of litlu magni magasýra. Lífið samstarf 29.1.2025 08:56
Helmingur labbar út þegar komið er að því að teygja Sigrún Kjartansdóttir jóga- og bandvefslosunarkennari segir að langflestum hætti til þess að teygja ekki nóg eða alls ekkert eftir æfingar. Hún segir að það hafi gríðarleg áhrif á vellíðan. Lífið 28.1.2025 17:00
Einn af hverjum tuttugu fór í ljós á síðustu tólf mánuðum Hlutfall þeirra sem hafa farið í ljós síðustu tólf mánuði á Íslandi er nú fimm prósent og er það einu prósentustigi lægra en í síðustu könnun sem gerð var 2022. Innlent 22. janúar 2025 14:31
Þúsund skref aukalega skila 15 prósent lægri dánartíðni Þúsund skref aukalega á dag lækka dánartíðni fólks um fimmtán prósent. Þetta kemur fram í rannsókn þar sem tvö hundruð og tuttugu þúsund manns var fylgt eftir um árabil. Endurhæfingarlæknir segir að öll viðbótarhreyfing bæti lífslíkur fólks, sérstaklega eldri hópa. Innlent 21. janúar 2025 13:32
Svar við greininni „Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu“ Í ljósi greinar sem fjallaði um skrif okkar „Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu“ finnst okkur mikilvægt að koma neðangreindum punktum á framfæri. Skoðun 21. janúar 2025 08:31
Ofsafengin sjálfsrækt getur reynst stórskaðleg Hafrún Kristjánsdóttir íþróttasálfræðingur segir of algengt að fólk taki sjálfsrækt alltof alvarlega og mikilvægari þættir sitji á hakanum. Þetta má heita óvænt útspil í þá þann mikla og árlega líkams- og sjálfsræktarham sem runnið hefur á landann eftir jól og áramót. Lífið 20. janúar 2025 13:41
Kjartan og Tekla tækla yfirþyngd og orkuleysi Lífsstílslæknarnir Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla Hrund Karlsdóttir lækna meðal annars yfirþyngd og þreytu og orkuleysi. Vala Matt hitti þau í Íslandi í dag í síðustu viku. Lífið 20. janúar 2025 13:33
Góð tilfinning að endurheimta styrkinn Ásgeir Þór Árnason hefur mætt reglubundið í Osteostrong einu sinni í viku í tvö ár. Lífið samstarf 20. janúar 2025 08:33
Einföld atriði fyrir aukna vellíðan í skammdeginu Nú þegar hátíðarhöldin og allt sem þeim fylgir eru fyrir bí er gott að byrja nýja árið á smá sjálfsást og núllstillingu. Janúar getur reynst erfiður mánuður fyrir marga og því er mikilvægt að hlúa að andlegu hliðinni og einblína á það sem veitir manni gleði og eykur vellíðan. Lífið 20. janúar 2025 08:01
Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu Hópur tíu lækna með „áhuga og þekkingu á lífsstíls– og samfélagssjúkdómum og rannsóknum þeim tengdum“, eins og þeir segja, skrifa grein um mettaða fitu og upplýsingaóreiðu sem þarf svara við. Skoðun 19. janúar 2025 22:01
Svar við „Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu“ Í vísindum fylgjum við gögnum – ekki hlutdrægni né titlum. Skoðun 17. janúar 2025 17:03
Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu Þann 14.12 s.l. Birtist hér grein undir yfirskriftinni “Af hverju að valda upplýsingaóreiðu um mettaða fitu”, þar sem ráðleggingar yfirvalda um að fólk dragi úr neyslu mettaðrar fitu eru ítrekaðar. Skoðun 17. janúar 2025 12:01
Hugræn endurforritun er toppurinn á tindinum Hulda Ólafsdóttir og Matthildur Pálsdóttir eru báðar klínískir dáleiðendur og sérfræðingar í Hugrænni endurforritun frá Dáleiðsluskóla Íslands. Hulda starfar á Akureyri en Matthildur á Selfossi. Lífið samstarf 17. janúar 2025 08:30
Sagði engum frá nema fjölskyldunni Alexandra Helga Ívarsdóttir athafnakona og eiginkona Gylfa Þórs Sigurðssonar knattspyrnumanns segist hafa fundið á sér að það væri eitthvað sem hún þyrfti að athuga þegar þau hjónin hugðu á barneignir. Alexandra segir skrítið að vera tilbúin í barneignir en upplifa það svo mánuð eftir mánuð að ekkert gerist. Lífið 16. janúar 2025 14:37
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már mælir með Nutrilenk Gold Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, hefur prófað margar lausnir við eymslum og álagi sem fylgja íþróttinni, en fullyrðir að ekkert hafi skilað jafn góðum árangri og Nutrilenk Gold. Lífið samstarf 16. janúar 2025 08:46
Ofurfæðis súkkulaðikaka slær í gegn í skammdeginu Heilsukokkurinn Jana Steingríms sérhæfir sig í hollum en skemmtilegum uppskriftum sem geta sannarlega lífgað upp á svartasta skammdegið. Uppskriftir 15. janúar 2025 16:33
Vetrarfjallamennska – öryggisreglur Fleiri og fleiri stunda nú fjallamennsku allt árið um kring og þar með vetrarfjallamennsku. Áður fyrr var það einkum björgunarsveitarfólk sem stundaði vetrarfjallamennsku en Ferðafélag Íslands og fleiri útivistarfélög og gönguklúbbar bjóða nú upp á dagskrá gönguferða yfir veturinn. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands skrifar hér um öryggi á fjöllum. Lífið samstarf 15. janúar 2025 08:40
Snýst ekki bara um að vera með flottan rass Að vera með flottan rass snýst ekki bara um útlit. Sérfræðingur í hreyfingu og líkamsbeitingu hvetur fólk til þess að virkja rassvöðvana. Vanvirkir rassvöðvar hafi víðtæk áhrif á stoðkerfið, hreyfigetu og andlega heilsu. Lífið 15. janúar 2025 07:00
„Ég borða allt nema lík og líkamsvessa“ „Ég borða allt nema lík og líkamsvessa,“ segir Rósa Líf Darradóttir læknir og vegan aðgerðasinni. Hún stóð í stafni vitundavakningar í desember undir yfirskriftinni „Það á enginn að vera hryggur um jólin.“ Lífið 14. janúar 2025 15:00
Guðrún losnaði við uppþemdan maga og léttist líka Nú eftir hátíðirnar eru margir með uppþemdan maga eftir jólaátið. Salt og sykurát og óhollustu. Lífið 13. janúar 2025 15:01
Fimmtán daga föstu Reynis að ljúka Reynir Traustason, sem um næstu mánaðarmót lætur af störfum sem ritstjóri Mannlífs, er nú í miðri föstu og hann lætur vel af sér. Lífið 13. janúar 2025 14:45
Fjölbreyttar leiðir til að fara inn í nýtt ár Janúar er mánuður markmiða hjá ótal mörgum og líkamsræktarstöðvar yfirfyllast á fyrstu dögum ársins. Þó getur reynst þrautinni þyngri að viðhalda markmiðum eða ásetningi fyrir árið. Sömuleiðis hentar markmiðasetning ekki öllum en Lífið á Vísi ræddi við nokkra einstaklinga um það hvernig þeim finnst best að byrja árið. Lífið 13. janúar 2025 07:01
Kveður samfélagsmiðla fyrir fullt og allt Jovana Pavlovic mannfræðingur hefur sagt skilið við samfélagsmiðla fyrir fullt og allt. Hún segir miðlana hafa haft neikvæð áhrif á andlega heilsu hennar og að þeir hafi verið farnir að hafa einum of mótandi áhrif á samskipti hennar við aðra. Hún segist finna fyrir miklum fráhvarfseinkennum. Lífið 11. janúar 2025 07:00