Hollywood

Hollywood

Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

Fréttamynd

Etur kappi við Obama og Reynolds

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bautista hleypur í skarðið

Leikarinn Dave Bautista hefur verið ráðinn til að leika stríðsguðinn Kratos í sjónvarpsþáttum byggðum á tölvuleiknum God of War eftir að Ryan Hurst, sem átti upphaflega að fara með hlutverkið, slasaðist alvarlega í tökum. Bautista mun þar leika á móti Ólafi Darra Ólafssyni í hlutverki þrumuguðsins Þórs.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Lofar að minnast Panettiere á­vallt af virðingu

Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 

Lífið
Fréttamynd

Leik­konan var úr­skurðuð látin á vett­vangi

Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi.

Lífið
Fréttamynd

Nicole er fyrir norðan

Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar.

Lífið
Fréttamynd

Bestu hlut­verk Hayden Panettiere

Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Leik­konan Hayden Panettiere er látin

Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6.

Lífið
Fréttamynd

Adam Driver mættur í Marvel-heiminn

Adam Driver er formlega orðinn hluti af Marvel-heiminum en hann mun leika illmennið Mr. Sinister í nýrri kvikmynd um ofurhetjurnar X-Men. Fleiri þekktir leikarar á við Kit Connor og Saide Sink bætast í hópinn.

Lífið
Fréttamynd

Barbie-framhald í upp­námi vegna launakrafa

Barbie var aðsóknarmesta mynd ársins 2023, tilnefnd til fjölmargra verðlauna og olli hálfgerðu Barbie-æði. Fljótlega eftir frumsýninguna hófust viðræður um gerð framhaldsmyndar. Nú þremur árum síðar er Barbie 2 í lausu lofti vegna hárra launakrafa leikstjórans Gretu Gerwig, handritshöfundarins Noah Baumbach og stjarnanna Margot Robbie og Ryan Gosling.

Lífið
Fréttamynd

Robbie Williams ein­hverfur

Breski popparinn Robbie Williams segist nýlega hafa verið greindur með einhverfu. Hann fagnar greiningunni, segir hana útskýra margt í lífi sínu og noti hana reglulega sem afsökun í félagslegum aðstæðum. Williams hefður áður opnað sig um ADHD-greiningu sína, þunglyndi, víðáttufælni,  vímuefnaneyslu og slæma líkamsímynd.

Lífið
Fréttamynd

Ber­skjölduð og ótta­slegin eftir skilnaðinn og fram­tíðin ó­ráðin

Leikkonan Nicole Kidman segir síðasta ár lífs síns hafa verið erfitt en hún skildi við kántrístjörnuna Keith Urban í september síðastliðnum. Það hafi engu breytt að hafa skilið einu sinni áður og upplifunin væri alveg jafn ný fyrir henni. Hún giftist Tom Cruise þegar hún var 23 ára gömul og man varla hvernig lífið var fyrir frægðina.

Lífið
Fréttamynd

Office-stjarna með ó­læknandi krabba­mein

Lucy Davis, sem er hvað þekktust fyrir að leika Dawn Tinsley, ritara í bresku Office, er með ólæknandi krabbamein. Þessu greindi leikkonan, sem er 53 ára gömul, frá í færslu á Instagram í dag og sagðist hún reyna að lifa sínu besta lífi á meðan hún getur það.

Lífið
Fréttamynd

Usher þver­tekur fyrir klónið

Tónlistarmaðurinn Usher segist alls ekki hafa ráðið tvífara eða hannað klón af sjálfum sér til að stíga á svið á tónleikum hans á dögunum. Ásakanirnar fóru á flug á samfélagsmiðlum eftir að tónleikagestur birti myndband af flutningi hans og fjölmargir skrifuðu undir að þetta gæti ómögulega verið Usher.

Lífið
Fréttamynd

Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“

Hollywood-stjarnan Brad Pitt segist byrjaður að drekka áfengi á ný eftir að hafa verið edrú síðustu sjö ár. Hann nýtti sér tólf spora kerfið í kjölfar skilnaðar við leikkonuna Angelinu Jolie fyrir um tíu árum og hefur reglulega talað opinberlega um edrúmennskuna. Hann reyni að gæta hófs í drykkjunni.

Lífið
Fréttamynd

Ódys­seifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo

Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ben Jones er látinn

Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Aubrey Plaza orðin mamma

Grínistinn og leikkonan Aubrey Plaza er orðin móðir. Hún eignaðist frumburð sinn, litla stúlku, í lok júlí með leikaranum Christopher Abbott.

Lífið
Fréttamynd

Raye og Jordan ást­fangin í rússíbana

Breska tónlistarbomban Raye virðist hafa fundið ástina í örmum leikarans Michael B. Jordan. Þau skelltu sér saman í rússíbanagarð í Los Angeles um helgina og virtust sannarlega njóta samveru hvors annars. 

Lífið