Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. Erlent 11. apríl 2026 21:15
Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979. Erlent 11. apríl 2026 15:33
Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran. Erlent 10. apríl 2026 08:50
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9. apríl 2026 23:51
Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því. Erlent 9. apríl 2026 07:45
Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarískan herafla munu verða áfram við Íran þar til skilmálar „hins raunverulega samkomulags“ milli Bandaríkjanna og Íran hafa verið uppfylltir. Forsetinn er þarna að vísa til þess að deildar meiningar virðast uppi varðandi það um hvað var samið. Erlent 9. apríl 2026 07:39
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8. apríl 2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8. apríl 2026 17:13
Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Samkomulag um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran markar á engan hátt lausn á átökunum í Miðausturlöndum segir prófessor í sagnfræði. Það sé áhyggjuefni að Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur og beiti alvarlegum hótunum í því skyni að fá andstæðinga til þess að beygja sig undir sitt vald. Innlent 8. apríl 2026 13:17
Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Leiðtogar víða um heim hafa lýst ánægju sinni með hið tveggja vikna vopnahlé sem komið er á milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar. Stjórnvöld í Kína sögðust í morgun myndu halda áfram að greiða fyrir viðræðum til að koma á friði og þá sögðust ráðamenn í Japan hafa væntingar um að vopnahléið myndi leiða til varanlegrar lausnar. Erlent 8. apríl 2026 09:48
Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fallist á tillögu um tveggja vikna vopnahlé í Íran með því skilyrði að stjórnvöld séu reiðubúin að hleypa skipum óáreittum í gegnum Hormússund á ný. Stjórnvöld í Íran segjast hafa samþykkt miðlunartillögu Pakistans. Erlent 7. apríl 2026 22:47
Hegðun Trumps vonbrigði Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, telur að kjósendur Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna stríðsreksturs stjórnvalda í Íran. Hann segir málflutning forsetans óboðlegan. Innlent 7. apríl 2026 21:03
Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Bandaríkjaforseti virðist hóta kjarnorkustríði á hendur Íran í vanstilltri færslu á samfélagsmiðli. Þar fullyrðir hann að „heil siðmenning deyi út í nótt“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt. Erlent 7. apríl 2026 14:44
Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu. Erlent 7. apríl 2026 06:33
Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði írönsku þjóðina vilja heyra í sprengjuregni vegna þess að hún vill vera frjáls. Þungar loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels séu Írönum til gagns. Erlent 6. apríl 2026 16:52
Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tillögur að samningi um tafarlaust vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran hefur verið komið á stríðandi aðila. Pakistanar, Egyptar og Tyrkir freista þess að binda enda á átökin áður en Trump lætur til kastanna koma og gerir stórtækari árásir á raforkuinnviði í Íran. Erlent 6. apríl 2026 14:24
Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Íranski byltingarvörðurinn segir í yfirlýsingu að Majid Khademi, forstjóri yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, hafi verið felldur af Ísraelsher og Bandaríkjaher. Ísraelsmenn gangast við þessu en varnarmálaráðherrann Israel Katz og Ísraelsher lýstu yfir ábyrgð í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum. Erlent 6. apríl 2026 09:36
Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Bandaríski flugliðinn sem bjargað var í Íran er alvarlega særður, að sögn Donald Trump Bandaríkjaforseta. Bandarískir ráðamenn segja Bandaríkjaher hafa sprengt eigin flugvélar og þyrlur í björgunaraðgerðinni vegna bilana sem komu upp. Íranir vilja meina að þeir hafi grandað vélunum. Erlent 5. apríl 2026 15:33
„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný. Erlent 5. apríl 2026 12:27
Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Bandaríkjaher tókst í gær að bjarga bandaríska flugliðanum sem hefur verið týndur í Íran síðan á föstudag, þegar bandarísk orrustuþota var skotin niður yfir Íran. Íranir og Bandaríkjamenn kepptust við að vera fyrstir til að finna hann. Erlent 5. apríl 2026 07:43
Gefur skít í helvítishótanir Trumps Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa. Innlent 4. apríl 2026 22:10
„48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Íranir hafa til mánudags til þess að opna Hormússund á ný eða gera einhvers konar samkomulag við Bandaríkin, annars fer allt í bál og brand. Svo hljóðar nýjasta hótun Bandaríkjaforseta, sem hefur þó lítið sem ekkert tjáð sig um týnda bandaríska flugmanninn sem Bandaríkjaher og Íranir keppast um að finna. Erlent 4. apríl 2026 18:10
Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Það er liðinn rúmur mánuður síðan stríðið hófst í Íran og Mið Austurlöndum. Trump hefur opinberlega sett fram eftirfarandi markmið. Í fyrsta lagi að gera kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Írans óvirka. Skoðun 4. apríl 2026 11:01
Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Donald Trump Bandaríkjaforseti vildi ekki tjá sig um mögulegar afleiðingar þess að flugmaður sem saknað er eftir að orrustuþota var skotin niður yfir Íran komi til skaða. Erlent 3. apríl 2026 23:09
Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Önnur bandarísk herþota er sögð hafa hrapað á Persaflóasvæðinu í dag. Flugmaðurinn er sagður heill á húfi og ekki í haldi Írana. Erlent 3. apríl 2026 19:05
Einum úr áhöfninni bjargað Íranski herinn skaut bandaríska herflugvél af gerðinni F-15 yfir miðhluta landsins í dag. Leit að áhöfninni stendur yfir en öðrum áhafnarmeðlimi af tveimur hefur verið bjargað. Erlent 3. apríl 2026 13:05
Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nær öllum markmiðum sínum með stríðinu í Íran náð og að það nálgist endalok sín. Stríðinu lyki innan næstu tveggja til þriggja vikna sagði forsetinn án þess að gefa það upp hvernig til þess kæmi. Erlent 2. apríl 2026 11:33
Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur. Erlent 1. apríl 2026 10:53
Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn munu „yfirgefa“ Íran innan tíðar og að hernaðaraðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur. Þá segir hann aðalmarkmiðum hafa verið náð, það er að segja að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn. Erlent 1. apríl 2026 07:04
„Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki. Erlent 31. mars 2026 12:53