Tólf greindust með veiruna innanlands í gær Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru fimm í sóttkví en sjö utan sóttkvíar. Innlent 17. júlí 2021 10:54
Alvarlegt ástand í Afríku: „Sökin er alfarið ríku landanna“ Ástandið vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar versnar sífellt í Afríku en í síðustu viku fjölgaði dauðsföllum um 43 prósent í heimsálfunni. Heilbrigðiskerfi margra ríkja eru að þrotum komin en ekkert útlit er fyrir að lát verði þar á. Erlent 16. júlí 2021 21:44
Eiffel-turninn opnaður á ný Einn allra vinsælasti ferðamannastaður Frakklands, Eiffel turninn í París, var opnaður að nýju í dag eftir níu mánaða lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Turninn var opnaður þrátt fyrir að sóttvarnaraðgerðir hafi verið hertar nokkuð í vikunni vegna Delta-afbrigðisins. Erlent 16. júlí 2021 21:32
Segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum Yfirlæknir ónæmisfræðideildar á Landspítalanum segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum vegna nýrrar stöðu í faraldri kórónuveirunnar hér á landi. Hann telur sterkar líkur á að fólk þurfi endurbólusetningu gegn nýjum afbrigðum á borð við hið bráðsmitandi delta afbrigði. Innlent 16. júlí 2021 19:30
„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni“ Eyjólfur Ásberg Halldórsson, sem hafði verið bólusettur gegn Covid-19, segist hafa fagnað of snemma en hann greindist með veiruna eftir að hann kom heim frá Spáni fyrr í mánuðinum. Hann hvetur fólk til að fara varlega áfram. Innlent 16. júlí 2021 18:43
Smit um borð í Viking Jupiter og engum hleypt í land Eitt smit hefur verið staðfest um borð í skemmtiferðaskipinu Viking Jupiter sem liggur við höfn á Akureyri. Innlent 16. júlí 2021 15:53
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. Viðskipti innlent 16. júlí 2021 14:36
Starfsmaður á Jómfrúnni greindist með smit Starfsmaður Jómfrúarinnar greindist með kórónuveirusmit í gær og voru 24 starfsmenn veitingastaðsins sendir í skimun vegna smitsins. Þeir hafa allir verið bólusettir líkt og sá smitaði sem mætti síðast í vinnuna á mánudag. Einn starfsmaður hefur verið sendur í sóttkví. Innlent 16. júlí 2021 14:16
Leggur til að aðgerðir verði hertar á landamærum á ný Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst leggja til breytingar á sóttvarnaaðgerðum á landamærum í ljósi fjölgunar tilfella síðustu daga. Hann vinnur nú að minnisblaði til ráðherra en vill ekki gefa upp hverjar tillögur hans verða. Innlent 16. júlí 2021 11:51
Forsetinn þakkar heilsugæslunni en segir verk að vinna í baráttu við veiruna „Kæru vinir. Bólusetningu vegna heimsfaraldurs er núna lokið í bili. Sú aðgerð tókst með eindæmum vel, meðal annars vegna þess að landsmenn áttuðu sig vel á nauðsyn þess að grípa til varna af því tagi.“ Innlent 16. júlí 2021 10:47
Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær og voru fjórir utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Innlent 16. júlí 2021 10:30
„Þessar tölur sýna það ótvírætt að bólusetningin virkar“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, segir það alveg ljóst að virkni bóluefnanna sé gríðarlega góð. Innlent 15. júlí 2021 21:05
Segir virkni bóluefna ekki eins góða og vonast var til Sóttvarnalæknir segir virkni bóluefna gegn kórónuveirunni ekki eins góða og vonast var til. Þá hafi heilsufar áhrif á virkni bólusetninga. Hann íhugar nú að leggja það til að allir sem koma til landsins verði krafðir um neikvætt PCR próf. Tíu fullbólusettir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar. Innlent 15. júlí 2021 19:31
Nýjar aðgerðir kynntar á Kanaríeyjum Nýjar aðgerðir voru kynntar á Kanaríeyjum rétt í þessu og má ætla að hópur Íslendinga hafi fylgst stressaður með, þar sem margir hafa bókað sér ferð í sólina í sumar. Erlent 15. júlí 2021 18:56
Farþegar skemmtiferðaskips hugsanlega sekir um sóttvarnabrot á Djúpavogi Aðgerðastjórn Lögreglustjórans á Austurlandi hefur hugsanlegt sóttvarnarbrot til rannsóknar eftir að farþegar skemmtiferðaskips fóru í land á Djúpavogi án leyfis. Einn farþegi skipsins greindist smitaður af Covid-19 í fyrradag. Innlent 15. júlí 2021 18:27
Metfjöldi látinna af völdum ofneyslu fíkniefna í Bandaríkjunum Alls létust 92 þúsund manns í Bandaríkjunum vegna of stórs skammts fíkniefna á Covid-árinu 2020. Það er mesti fjöldi sem látist hefur í Bandaríkjunum á einu ári af völdum fíkniefna. Erlent 15. júlí 2021 18:08
Aðgerðir ekki hertar: Flest smit undanfarna daga af delta-afbrigðinu Frá 1. júlí hafa 23 einstaklingar greinst með Covid-19 hér innanlands, flest af völdum delta-afbrigðisins svokallaða. Sóttvarnalæknir er ekki með tillögur að hertum sóttvarnaraðgerðum að svo stöddu, en það gæti breyst. Innlent 15. júlí 2021 11:30
Bólusetning með breyttu sniði í haust Í gær fór fram síðasta fjöldabólusetningin í Laugardalshöll og hér eftir verður bólusetning á höfuðborgarsvæðinu með breyttu sniði. Innlent 15. júlí 2021 11:29
Tíu greindust með Covid-19 innanlands í gær Tíu greindust með Covid-19 innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. Innlent 15. júlí 2021 10:58
Smitaður á siglingu við Íslandsstrendur Farþegi í skemmtiferðaskipinu Viking Sky hefur verið greindur með Covid-19 smit. Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannvarnadeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Innlent 15. júlí 2021 10:33
Svona var 183. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verða á kunnuglegum stað klukkan 11 í dag á Höfðatorgi. Þá fer fram upplýsingafundur vegna kórónuveirufaraldursins sem boðað var til í gær. Innlent 15. júlí 2021 08:24
Hætt að afhenda lögreglu vottorð hælisleitenda í bili Óvissa er uppi um hvort Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu megi afhenda lögreglu bólusetningarvottorð einstaklinga eins og stofnunin gerði í tilfelli tveggja Palestínumanna sem voru sendir úr landi í síðustu viku. Heilsugæslan hefur ákveðið að verða ekki við fleiri slíkum beiðnum lögreglunnar fyrr en skorið verður úr um þetta atriði. Innlent 15. júlí 2021 06:00
Þjóðin ætti að fara í viðbragðsstöðu eftir smit síðustu daga Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist áhyggjufullur vegna þeirra Covid-smita sem blossað hafa upp í samfélaginu síðustu daga. Hann segir fulla ástæðu til að vera á tánum núna. Innlent 14. júlí 2021 22:00
Sjokk fyrir alla að bólusettur hafi smitast Rekstrarstjóri Bankastræti Club, þar sem upp kom smit hjá starfsmanni sem var á vakt á föstudags- og laugardagskvöld, segir það hafa verið mikið sjokk að bólusettur starfsmaður hafi smitast. Hún telur ekki að smitið muni hafa áhrif á rekstur staðarins en hann verður opinn um næstu helgi. Lífið 14. júlí 2021 20:50
Tilbúið samþykki Fyrir stuttu var síðasti hópbólusetningardagurinn hér á höfuðborgarsvæðinu, í það minnsta um stundir. Því var slúttað með bravör, með lifandi tónlist og plötusnúði. Bólusetningarátakið hér á höfuðborgarsvæðinu hefur einmitt einkennst af einhvers konar stemmningu, árshátíðar- eða útskriftarstemmningu. Fyrsti stóri bólusetningardagurinn var mjög sérstakur, hátíðarstemmning með dramatískri tangótónlist kammersveitar Sinfóníuhljómsveitarinnar. Skoðun 14. júlí 2021 20:01
Langþráð frí eftir „vertíð“ í bólusetningum Gleði og tilhlökkun var einkennandi hjá starfsfólki í Laugardalshöll sem stóð sína síðustu vakt þar í dag – að öllu óbreyttu. Fjöldabólusetningum er nú lokið og þó bólusetningum verði framhaldið þá verða þær með breyttu sniði í haust. Innlent 14. júlí 2021 19:15
Afgangsbóluefni fer til landa sem á þurfa að halda Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bóluefni sem verði afangs verði gefið þeim þjóðum sem á þurfi að halda. Innlent 14. júlí 2021 15:39
Þórólfur áhyggjufullur og boðar til upplýsingafundar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar á morgun vegna varhugaverðrar stöðu eftir fjölgun Covid-19 smita utan sóttkvíar hér á landi síðustu daga. Innlent 14. júlí 2021 15:38
Smitin sem greindust í fyrradag eru af delta-afbrigði veirunnar Kórónuveirusmitin tvö sem greindust í fyrradag eru af delta-afbrigði veirunnar. Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna í samtali við fréttastofu. Innlent 14. júlí 2021 15:37
Með hiksta í rúma tíu daga og kominn á sjúkrahús Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur verið lagður inn á sjúkrahús. Hann er sagður finna til í maganum eftir að hafa verið með hiksta í meira en í tíu dag. Hann var lagður inn á hersjúkrahús í Brasilíu, höfuðborg Brasilíu, og á að vera undir eftirliti lækna í minnst tvo sólarhringa. Erlent 14. júlí 2021 15:10