PSG fær að hvíla sig fyrir Liverpool-leikinn Franska liðið Paris Saint Germain er þegar komið með forskot á Liverpool fyrir leiki liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 26.3.2026 17:01
Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Knattspyrnugoðsögnin John Toshack, sem gerði garðinn frægan með Liverpool og velska landsliðinu á sínum tíma, hefur verið greindur með heilabilun en þetta staðfestir sonur hans Cameron. Enski boltinn 25.3.2026 23:15
Tíu flottustu mörk Salah í enska boltanum Í gær greindi Mohamed Salah frá því að hann myndi yfirgefa herbúðir Liverpool eftir yfirstandandi tímabil. Salah hefur verið á meðal bestu leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár og skorað mörk í öllum regnbogans litum. Hér neðar í fréttinni má sjá tíu flottustu mörk hans í deildinni. Enski boltinn 25.3.2026 09:26
Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Liverpool brást mjög harkalega við kynþáttafordómum gagnvart leikmanni félagsins eins og sést vel í harðorðri yfirlýsingu enska úrvalsdeildarfélagsins. Enski boltinn 20. mars 2026 18:30
Býst við því að Salah jafni sig fljótt Mohamed Salah mun ekki spila með Liverpool gegn Brighton um helgina en þjálfarinn Arne Slot býst ekki við því að hann verði jafn lengi frá og aðrir leikmenn sem lenda í vöðvameiðslum. Enski boltinn 20. mars 2026 12:32
Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Brentford, Everton, Newcastle og fleiri lið gætu horft til þess möguleika á lokaspretti ensku úrvalsdeildarinnar að mögulega gæti 7. sæti dugað til að komast inn í sjálfa Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 20. mars 2026 09:01
Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, sagði að „stærsta áskorun“ þjálfaraferils síns hafi verið Liverpool undir stjórn Jürgen Klopp, ekki Real Madrid, eftir að Manchester City tapaði 5-1 samanlagt fyrir spænska liðinu í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 19. mars 2026 07:03
Missti næstum því fingur á móti Liverpool Noah Lang, leikmaður Galatasaray, endaði á sjúkrahúsi eftir Meistaradeildarleik liðsins á móti Liverpool á Anfield í gærkvöldi. Fótbolti 19. mars 2026 06:31
„Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var skiljanlega mjög kátur eftir 4-0 sigur á Galatasaray í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en Liverpool fór örugglega áfram í átta liða úrslitin. Enski boltinn 18. mars 2026 23:12
„Við hefðum getað unnið 10-0“ Hugo Ekitike skoraði annað mark Liverpool í 4-0 sigri á Galatasaray í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld en markið átti mestan þátt í að brjóta niður tyrkneska liðið. Fótbolti 18. mars 2026 22:43
Salah bætti fyrir vítaklúðrið og Liverpool raðaði inn mörkum í seinni Liverpool tryggði sér örugglega sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield í kvöld eftir 4-0 sigur á tyrkneska félaginu í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum. Fótbolti 18. mars 2026 21:55
Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Liverpool er ekki sama fótboltalið og áður og í augum sumra er eins og það hafi hreinlega verið slökkt á áræðni, ákefð og grimmd leikmanna liðsins. Einn besti miðjumaður sögunnar segir að þetta blasi við þeim sem vilji sjá það. Enski boltinn 18. mars 2026 07:01
Isak sást á æfingu Liverpool Alexander Isak sást á æfingu Liverpool í dag þar sem leikmenn liðsins voru að undirbúa sig fyrir seinni leikinn á móti Galatasaray í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem fram fer annað kvöld. Enski boltinn 17. mars 2026 17:16
Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Dominik Szoboszlai skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu um helgina en það dugði Liverpool ekki til sigurs. Liðið mætti ísköldu Tottenham-liði á heimavelli en tókst samt ekki að landa sigri. Vonbrigðin voru gríðarleg hjá stuðningsfólki Liverpool en sá ungverski biðlar til stuðningsmannanna og skorar á þá að standa með liðinu. Enski boltinn 17. mars 2026 07:01
Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Liverpool er að eignast nýjasta landsliðsmanninn sinn en sá er þó ekki mikið til umræðu meðal stuðningsmanna félagsins nema kannski þeirra allra hörðustu. Enski boltinn 16. mars 2026 20:32
Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Jamie Carragher fór ófögrum orðum um frammistöðu Liverpool í jafnteflinu gegn Tottenham í dag. Hann segist ekki vita hver ástæðan fyrir óförum Liverpool á tímabilinu sé. Enski boltinn 15. mars 2026 23:31
„Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Dominik Szoboszlai, markaskorari Liverpool, var afar ósáttur eftir 1-1 jafnteflið við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann segir að ef Liverpool heldur áfram á sömu braut yrði gott fyrir liðið að komast í Sambandsdeild Evrópu. Enski boltinn 15. mars 2026 19:55
Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Richarlison tryggði Tottenham sitt fyrsta stig undir stjórn Igors Tudor er hann jafnaði á lokamínútunni gegn Liverpool á Anfield í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 1-1. Enski boltinn 15. mars 2026 16:00
Einkaviðtal við Cody Gakpo: „Það eru miklar væntingar frá öllum“ Kjartan Atli Kjartansson fékk einkaviðtal við Liverpool-framherjann Cody Gakpo og spurði hann spjörunum úr. Liverpool er enn með í enska bikarnum og Meistaradeildinni sem og að berjast um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Enski boltinn 13. mars 2026 10:30
„Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Mohamed Salah var tekinn af velli eftir klukkutíma leik þegar Liverpool tapaði 1-0 á móti Galatasaray í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 11. mars 2026 12:32
Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fjórir fyrstu leikirnir í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar fóru fram í gær en nú má sjá mörkin úr þeim hér inni á Vísi. Fótbolti 11. mars 2026 08:53
Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi Liverpool mátti sætta sig við eins marks tap í fyrri leik sínum gegn Galatasaray í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 1-0 sigur Galatasaray. Fótbolti 10. mars 2026 19:39
Sögulegt kvöld í vændum hjá Salah? Með því að byrja leik Liverpool gegn Galatasaray í Meistaradeild Evrópu nú fyrir skemmstu varð Mohamed Salah leikjahæsti leikmaður Liverpool í sögu aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu með áttatíu og einn spilaðan leik í keppninni fyrir félagið. Salah gæti bætt við öðrum merkum áfanga í kvöld. Fótbolti 10. mars 2026 17:45
Alisson ekki með gegn Galatasaray en meiðslin ekki alvarleg Liverpool verður án brasilíska markvarðarins Alissons í fyrri leiknum gegn Galatasaray í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 10. mars 2026 10:30