G20 stefna að kolefnishlutleysi „um miðja þessa öld eða fyrr“ Leiðtogar G20-ríkjanna, helstu iðnvelda heims, náðu í morgun saman um að skuldbinda sig til að ná kolefnishlutleysi „um miðja þessa öld eða fyrr“. Þessi fyrirheit eru talin munu gefa tóninn fyrir Loftslagsrástefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem var sett í Glasgow í morgun. Erlent 31. október 2021 12:38
Hvað er COP26? Ríki heims þurfa að bretta upp ermarnar og auka metnað í aðgerðum sínum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að hægt verði að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sem hefst um helgina getur varpað ljósi á hversu alvara þeim er með fögrum fyrirheitum um kolefnishlutleysi. Erlent 30. október 2021 11:31
Við hverju má búast á COP26? COP26 er gríðarlega mikilvæg stund fyrir Bretland og heiminn allan. Það eru margir sem trúa því að þetta sé síðasta raunverulega tækifærið okkar til að ná stjórn á loftslagsbreytingum og stöðva þau hrikalegu áhrif sem þær hafa nú þegar á plánetuna okkar í formi alvarlegra flóða, storma og skógarelda. Skoðun 29. október 2021 17:00
Ráðherra lagði áherslu á græna orku á ráðherrafundi um loftslagsmál Ráðherra sagði frá áherslum og aðgerðum Íslands varðandi loftslagsmál og staðfesti að Ísland styður metnaðarfullar loftslagsaðgerðir. Heimsmarkmiðin 29. október 2021 14:00
Bein útsending: Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, er heiðursgestur á málþingi um loftslagskreppuna og framtíðina sem er haldið í Þjóðminjasafni Íslands í dag. Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi hér á Vísi. Innlent 29. október 2021 13:00
Áætlun Biden felur í sér stærstu fjárfestingu í loftslagsaðgerðum í sögu Bandaríkjanna Frumvarp sem Hvíta húsið kynnti í gær felur í sér stærstu fjárfestingu í endurnýjanlegum orkugjöfum í sögu Bandaríkjanna. Enn liggur þó ekki fyrir hvort að samstaða náist innan Demókrataflokkinn um frumvarpið. Erlent 29. október 2021 11:56
Telja blekkjandi að tala um tengitvinnbíla sem „nýorkubíla“ Íslensk stjórnvöld ættu að hætta að nota hugtakið nýorkubíla þar sem undir það falla bílar sem brenna bensíni- og olíu. Náttúruverndarsamtök Íslands telja hugtakið blekkjandi og að það hjálpi ekki til við orkuskipti. Innlent 29. október 2021 10:21
Olíurisar sakaðir um lygar líkt og tóbaksforstjórarnir Forsvarsmenn stærstu olíufyrirtækja Bandaríkjanna neituðu því að fyrirtæki þeirra dreifðu upplýsingafalsi um loftslagsbreytingar þegar þeir báru eiðsvarnir vitni fyrir bandarískri þingnefnd í gær. Þingmenn sökuðu þá um að ljúga líkt og forstjórar tóbaksfyrirtækja lugu um skaðsemi reykinga á sínum tíma. Erlent 29. október 2021 09:17
Biden sækir G20-fund og hittir páfann fyrir loftslagsráðstefnuna Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til Evrópu þar sem hann verður viðstaddur tvo fundi á næstu dögum. Forsetinn byrjar í Róm þar sem G20 ríkin hittast til að ræða skattamál og þá mun hann hitta Frans Páfa í Vatíkaninu en Biden er aðeins annar kaþólikkinn í sögu Bandaríkjanna sem sest á forsetastól. Erlent 29. október 2021 07:01
Fimmtíu manna sendinefnd á leið á loftslagsráðstefnuna í Glasgow Umhverfissamtök segja íslensk stjórnvöld þurfa að gera mun betur í loftslagsmálum og krefjast þess að atvinnugreinum verði sett skýr losunarmörk. Þetta kemur fram í afdráttarlausri áskorun þeirra í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar COP26 í Glasgow. Innlent 28. október 2021 22:16
Olíuforkólfar svara fyrir upplýsingafals um loftslagsbreytingar Æðstu stjórnendur Exxon Mobil og annarra olíurisa koma fyrir bandaríska þingnefnd til að svara spurningum um hvernig olíufyrirtækin gerðu lítið úr viðvörunum um loftslagsbreytingar og dreifðu upplýsingafalsi um áratugaskeið. Forstjóri Exxon neitaði því að fyrirtæki hans hefði dreift falsi um loftslagsmál. Erlent 28. október 2021 15:07
Risaeðla varar þjóðir heims við útrýmingu Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) gaf út í dag myndband í tengslum við herferð í tilefni af G20 leiðtogafundinum og loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Heimsmarkmiðin 28. október 2021 14:03
Rannsóknir samhljóða um ábyrgð manna á hlýnun Yfir 99,9% allra ritrýndra loftslagsvísindarannsókna sem hafa verið birtar frá 2012 telja menn ábyrga fyrir hnattrænni hlýnun sem á sér stað á jörðinni. Það er enn hærra hlutfall en í þekktri rannsókn sem vitnað hefur verið til um vísindalega vissu fyrir orsökum loftslagsbreytinga. Erlent 27. október 2021 15:32
Stefna áströlskum stjórnvöldum vegna aðgerðaleysis í loftslagsmálum Frumbyggjar á tveimur afskekktum eyjum hafa stefnt áströlsku ríkisstjórninni fyrir að hafa látið hjá liggja að vernda þá fyrir loftslagsbreytingum sem ógna nú heimkynum þeirra. Erlent 27. október 2021 08:42
Orkuskipti – stóra tækifærið fyrir Ísland Hagnýting jarðefnaeldsneytis hefur gegnt lykilhlutverki í samfélagsþróun síðustu tvær aldir. Nú er velferð mannkyns ógnað vegna áhrifa losunar koltvísýrings sem fylgir bruna á kolum, jarðgasi og olíu. Skoðun 27. október 2021 08:01
Nýju fötin keisarans Jukka Heinonen, prófessor við Umhverfis- og byggingaverkfræðideild Háskóla Íslands hefur rannsakað neyslutengda losun gróðurhúsalofttegunda Íslendinga. Skoðun 26. október 2021 15:31
Nýjar losunarskuldbindingar duga ekki til að ná markmiðum Nýjar og endurskoðaðar skuldbindingar nægja ekki til þess að uppfylla ákvæði Paríssamningsins um loftslagsbreytingar. Þetta kemur fram kemur í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, skýrslu sem Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir sláandi vakningu. Erlent 26. október 2021 14:38
Yfirvöld í Sádí-Arabíu stefna að kolefnishlutleysi Yfirvöld í Sádí-Arabíu tilkynntu að þau hyggjast stefna að kolefnishlutleysi landsins fyrir árið 2060. Ríkið er eitt það umfangsmesta í heimi í olíuframleiðslu. Erlent 23. október 2021 14:00
Meina þingmenn það sem þeir sögðu? Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Miðað við þau áform sem eru á teikniborðinu stefnir heimurinn í að framleiða rúmlega tvöfalt meira jarðefnaeldsneyti árið 2030 en þarf til að halda hlýnun Jarðar innan við 1,5°C Skoðun 21. október 2021 13:00
Bein útsending: Kapphlaup að kolefnishlutleysi Útsendingin hefst klukkan 14 og stendur til kl 16. Samstarf 21. október 2021 11:01
Gagnaleki varpar ljósi á tvöfeldni ríkja í loftslagsmálum Mikill fjöldi skjala sem lekið var til breska ríkisútvarpsins varpar ljósi á það hvernig ríkari þjóðir heimsins hafa reynt að setja þrýsting á Sameinuðu Þjóðirnar í loftslagsmálum. Erlent 21. október 2021 06:54
Fyrirhuguð framleiðsluaukning jarðefnaeldsneytis ósamrýmanleg loftslagsmarkmiðum Áætlanir ríkisstjórna heimsins gera ráð fyrir aukningu á framleiðslu jarðefnaeldsneytis næsta áratuginn. Þessi staðreynd er algerlega ósamræmanleg því samkomulagi flestra ríkja að reynt verði að sporna við hlýnun jarðarkringlunnnar. Erlent 20. október 2021 10:23
Veruleg, skaðleg áhrif loftslagsbreytinga Manneskjur hafa áhrif á jörðina og jörðin svo áhrif á manneskjurnar. Áhrifin á manneskjur birtast þó ekki með jöfnum hætti en áframhaldandi útblástur gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum og ófullnægjandi viðbrögð við loftslagsvánni bitna verr á því fólki sem þegar er í viðkvæmri stöðu. Skoðun 20. október 2021 09:00
Laufléttir gervihnettir á stærð við þvottavél skoða Reykjanesgosið Fjórtán gervihnettir á stærð við þvottavél auðvelduðu íslenskum vísindamönnum að meta umfang og hegðun eldgossins á Reykjanesi betur en fyrri eldgos. Tæknin getur einnig nýst vð mat á áhrifum loftslagsbreytiinganna. Innlent 19. október 2021 19:21
Biður forseta loftslagsráðstefnunnar um að úthýsa olíuforkólfum Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, hefur sent forseta loftslagsráðstefnunnar COP-26 sem fer fram í Glasgow í næsta mánuði um að sparka fulltrúum mengandi iðnaðar út af gestalista ráðstefnunnar. Innlent 19. október 2021 10:46
Á annað hundrað milljóna í hættu vegna þurrka, flóða og hita Allt að 118 milljónir Afríkubúa sem búa við örbirgð verða í hættu vegna þurrka, flóða og öfgahita fyrir lok þessa áratugs verði ekki gripið til mótvægisaðgerða samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) um áhrif loftslagsbreytinga í álfunni. Erlent 19. október 2021 09:25
Sorphirðumenn Glasgow í verkfalli á meðan risafundurinn er Sorphirðumenn Glasgow-borgar í Skotlandi hafa samþykkt að fara í vikuverkfall, á sama tíma og risaloftlagsráðstefnan COP26 verður haldin í borginni. Erlent 18. október 2021 23:21
Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. Erlent 16. október 2021 12:58
Ekki lengur hrópandinn í eyðimörkinni Lisa Murkowski öldungardeildarþingmaður Republikana fyrir Alaska mætti áhugaleysi og jafnvel efasemdum um raunveruleika loftlagsbreytinganna innan flokksins þegar hún hóf að vekja athygli á málefnum norðurslóða á Bandaríkjaþingi. Hún hefur sótt Hringborð norðurslóða frá upphafi og segir stöðuna hafa breyst mikið í dag. Erlent 16. október 2021 10:00
Hungurvísitalan 2021: Vannærðum fjölgar hratt Samkvæmt öðru heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna á hungri að vera útrýmt í heiminum árið 2030. Heimsmarkmiðin 15. október 2021 12:54