Mýr­dals­hreppur

Mýr­dals­hreppur

Mannfjöldi: 965 (2025). Flatarmál: 749 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Vík í Mýrdal, Dyrhólahreppur, Hvammshreppur.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Brot­lenti í djúpu gili

Aðstæður voru erfiðar þegar maður sem hrapaði í svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag var sóttur af Landhelgisgæslunni. Hann hafði brotlent í djúpu gili. Hann var með meðvitund þegar hann fannst.

Innlent
Fréttamynd

Vara við hættu­legum að­stæðum við Sólheimajökul

Undanfarnar vikur hafa orðið verulegar breytingar við sporð Sólheimajökuls sem hafa gert aðkomu að jöklinum erfiðari og varasamari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á gangandi veg­faranda við Vík

Mikil ferðahelgi fer nú í hönd enda bæjarhátíðir og útilegur víða í öllum landshlutum. Umferðin hefur verið nokkuð þung um allt land. Á Suðurlandi urðu tvö umferðarslys í morgun. Allt hefur gengið vel á höfuðborgarsvæðinu þó að nokkrir hafi verið gripnir við of hraðan akstur.

Innlent
Fréttamynd

Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli

Endalok Klausturbleikju gætu þýtt fall annarrar eldisstöðvar í Skaftárhreppi, Lindarfisks í Meðallandi. Eigendur þeirrar stöðvar lokuðu bleikjuvinnslustöð sinni í Vík í Mýrdal, í trausti samstarfs við Klausturbleikju, en hafa núna í staðinn opnað barinn Syndabælið í vinnsluhúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Þegar hljóð og mynd fara ekki saman

Þegar hljóð og mynd fer ekki saman er eðlilegt að spyrja sig spurninga. Núverandi ríkisstjórn hefur haft háleit markmið og ekki farið leynt með það að þau ætli sér að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangnagerð og almennt í samgöngumálum.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­göngu­mál á Suður­landi

Nú liggur fyrir Alþingi og Umhverfis og Samgöngunefnd ný samgönguáætlun. Fyrir mig og marga fleiri Sunnlendinga sem höfum áhuga á bættum og öruggari samgöngum eru það mikil vonbrigði að engin verk sem kveður að skuli vera á áætlun á svæðinu allt frá Ölfusá og austur í Hornafjörð á fyrsta hluta áætlunarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

„Þarf maður að fara að finna ein­hverja nýja fjöru?“

Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg.

Innlent
Fréttamynd

„Stuðlabergið er bara komið út í sjó“

Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka.

Innlent