Tvennt getur verið rétt á sama tíma Það er hægt að aðhyllast aukið alþjóðasamstarf og samstöðu með líkt þenkjandi ríkjum, meðal annars með því að vilja þétta böndin við Evrópu og sjá hvað okkur sem þjóð býðst ef við eigum sæti við borðið – en um leið vilja verja fullveldi okkar og sjálfstæði, íslenska menningu og tungu. Það er engin mótsögn í því vera sjálfstæð þjóð og vera virk í alþjóðasamstarfi. Þvert á móti. Fyrir smáþjóð eins og Ísland er virk þátttaka í alþjóðasamfélaginu einmitt forsenda þess að við getum varið okkar hagsmuni, gildi og lífskjör. Skoðun 1.4.2026 11:30
Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur. Erlent 1.4.2026 10:53
„Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki. Erlent 31.3.2026 12:53
Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. Erlent 16. mars 2026 06:38
Sjálfstæðisbaráttan tekur á sig nýja mynd Álitaefnið er ekki hvort Ísland eigi að eiga samskipti við aðrar þjóðir, heldur hver skuli fara með ákvörðunarvaldið í þeim samskiptum. Spurningin sem lögð var fram árið 1795 lifir því enn. Samstarf við aðrar þjóðir er nauðsynlegt en samruni við yfirþjóðlegt vald er allt annar handleggur. Reynsla sögunnar bendir eindregið til þess að áhyggjur af fullveldi þjóðarinnar hafi ekki alltaf verið ástæðulausar. Umræðan 6. mars 2026 07:53
Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir. Erlent 4. mars 2026 14:50
Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, dregur ekkert úr andstöðu sinni við árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran, þrátt fyrir að Bandaríkjaforseti hafi hótað að skera á viðskiptatengsli við Spán vegna hennar. Erlent 4. mars 2026 11:03
„Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir auknum þrýstingi á Rússa. Það sé besta leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu og segir hann að ráðamenn í Rússlandi virði ekkert nema styrk. Hann sagði árásir Rússa á óbreytta borgara í Úkraínu vera gífurlega umfangsmiklar. Rússar hefðu notað sex þúsund sjálfsprengidróna í janúar. Erlent 14. febrúar 2026 13:12
Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. Erlent 14. febrúar 2026 10:40
Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig. Innlent 14. febrúar 2026 07:56
„Þá er Ísland kannski næsti biti“ Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. Innlent 13. febrúar 2026 20:47
Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Miklar sviptingar hafa átt sér stað hvað varðar langvarandi gott samband Bandaríkjanna og Evrópu. Ráðamenn í Evrópu spyrja sig hvort þeir geti yfir höfuð enn treyst á Bandaríkjamenn. Erlent 13. febrúar 2026 16:08
Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Utanríkisráðherra sótti í dag fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel. Ráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn en Þorgerður Katrín segir að engu að síður hafi jákvæð skref verið tekin í vinnuhópi Danmerkur, Grænlands og Bandaríjkanna um málefni Grænlands. Innlent 12. febrúar 2026 18:47
Staða Íslands í breyttum heimi Umræða um framtíð Íslands ætti að snúast um tímasetningu, hagsmuni og ábyrgð. Spurningin er ekki hvort Ísland eigi að vinna þétt og náið með Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess – það gerum við nú þegar – heldur hvort rétt sé að breyta grundvallarforsendum samstarfsins einmitt á þeim tíma þegar kerfið sjálft er í uppnámi. Umræðan 12. febrúar 2026 07:39
Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleypt af stokkunum verkefninu Vörður norðurslóða (e. Arctic sentry) sem er ætlað að auka eftirlit og umsvif hersveita og efla viðbragðsgetu bandalagsins í norðri. Utanríkisráðherra er mætt til Brussel og segir að Íslendingar muni finna fyrir hinu aukna umfangi. Innlent 11. febrúar 2026 20:20
Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga. Erlent 11. febrúar 2026 07:54
Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa komist að samkomulagi um að koma aftur á formlegum og stöðugum samskiptum milli hernaðaryfirvalda ríkjanna. Tilkynnt var um þetta í kjölfar funda fulltrúa Bandaríkjanna og Rússlands á hliðarlínum viðræðna um Úkraínu í Abu Dhabi. Erlent 6. febrúar 2026 07:31
Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt. Innlent 4. febrúar 2026 08:43
Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Varðberg, dómsmálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið halda fund í Norræna húsinu á milli klukkan 12:00 og 13:00 um áfallaþol Íslands. Kynnt verður áfangaskýrsla stjórnvalda sem byggir á sjö grunnviðmiðum Atlantshafsbandalagsins um áfallaþol en hún markar einn áfanga í vinnu stjórnvalda að heildstæðri kortlagningu, stefnumótun og tillögum að aðgerðum til að efla áfallaþol samfélagsins. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 29. janúar 2026 11:30
Segir Trump ekki reiðan Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sé ekki reiður Íslandi. Trump talaði nokkrum sinnum í síðustu viku, á tveimur mismunandi dögum, um Ísland. Í einu tilfelli talaði hann um að vegna Íslands væri öðrum leiðtogum í Atlantshafsbandalaginu illa við sig og að Ísland hefði leitt til lækkana á mörkuðum vestanhafs. Erlent 28. janúar 2026 17:40
Svíar líta til kjarnorkuvopna Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna. Erlent 27. janúar 2026 22:50
Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. Erlent 26. janúar 2026 23:01
Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Of snemmt er að segja til um hvort viðræður Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra NATO séu jákvætt skref í samskiptum Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland á meðan lítið er vitað um innihald rammasamkomulagsins, að sögn utanríkisráðherra. Innlent 22. janúar 2026 18:09
Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Formaður landsstjórnar Grænlands segist lítið vita um innihald rammasamkomulags Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO). Viðræður þeirra hafa leitt til stiglækkunar í samskiptum Bandaríkjanna við Grænland, Danmörku og önnur bandalagsríki í Evrópu. Erlent 22. janúar 2026 17:11