Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Fimmtán mínútur liðu frá því að útkall barst um að maður hefði fallið í Ölfusá í gær þar til liðsmenn Björgunarfélags Árborgar höfðu náð honum upp í bát sinn. Tilkynnt var í morgun að maðurinn hefði látist. Innlent 20.7.2026 16:36
Sá sem féll í Ölfusá er látinn Einstaklingur sem fluttur var á Landspítala í gærkvöldi eftir að hafa fallið í Ölfusá er látinn. Innlent 20.7.2026 10:47
Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Íbúar Flóahrepps vilja flestir ekki sameinast öðru sveitarfélagi. En, ef til þess kæmi, myndu þeir helst vilja sameinast Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Innlent 9.7.2026 22:37
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir 24.6.2026 21:01
Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Guðmundur Oddgeirsson vegfarandi segist nú hafa verið fastur í bílalest á Þjóðvegi 1 í 45 mínútur. Hann er búinn að missa af tíma hjá lækni en hann er að koma í borgina frá Þorlákshöfn. Hann er ósáttur. Innlent 18. maí 2026 12:08
Lokatölur í Ölfusi: Sjálfstæðismenn bæta við sig manni Sjálfstæðismenn unnu mikinn kosningasigur í Ölfusi í sveitarstjórnarkosningunum í dag. Sjálfstæðismenn bættu við sig manni og eru nú með fimm fulltrúa í sjö manna sveitarstjórn. Innlent 17. maí 2026 00:44
Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Landsréttur taldi ekki sannað að einstaklingur sem dæmdur var í héraði fyrir peningaþvætti í tengslum við mannránið á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni hafi haft vitneskju um að reikningsupplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti. Innlent 15. maí 2026 00:15
Oddvitaáskorunin: „Sveitastjórinn“ myndi elta ræturnar Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14. maí 2026 18:33
Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða í síðdegis. Einn sem hlaut dóm í héraði var sýknaður og dómar þriggja sem dæmdir voru fyrir manndráp voru mildaðir um eitt til tvö ár. Ung kona sem var sýknuð í héraði var aftur á móti sakfelld fyrir hlutdeild í frelsisviptingu og dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Innlent 13. maí 2026 15:47
Í liði bæjarstjórans – eða ekki? Þegar ég flutti í Þorlákshöfn sem unglingur skömmu eftir aldamót var bærinn allt annar er hann er í dag. Lýsisbrælan hékk yfir og mér leist sannast sagna lítið á þetta vindbarða pláss – við fyrstu sýn. En ég lærði fljótt að fólkið er gott í Þorlákshöfn og samfélagið samheldið. Í bænum er gott að búa og þar var gott að vera ungmenni. Skoðun 12. maí 2026 13:33
Svona gekk að flytja vindmyllurnar Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 7. maí 2026 21:02
Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. Innlent 7. maí 2026 14:05
Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld. Innlent 6. maí 2026 22:33
Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Verkalýðsdagurinn er venju samkvæmt haldinn hátíðlegur víða um land í dag, 1. maí. Það var meðal annars haldinn baráttufundur verkalýðsfélaga á Ingólfstorgi, kröfuganga niður Skólavörðustíginn og verkalýðskaffi í Iðnó. Á Selfossi var dagskráin engu síðri. Innlent 1. maí 2026 16:18
Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Eden Mining ehf., sem hefur helst það verkefni með höndum að vera milliliður fyrir Sjöunda dags aðventista við námugröft, vill ekki að mál sem nokkrir aðventistar höfðuðu á hendur fyrirtækinu rati fyrir dómstóla. Innlent 27. apríl 2026 14:37
Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Fiskeldisfyrirtækið First Water hefur lokið um ellefu milljarða króna fjármögnun, en um er að ræða útgáfu um sex milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd sé af núverandi hluthöfum félagsins og um fimm milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka. Viðskipti innlent 22. apríl 2026 14:35
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. Innlent 21. apríl 2026 22:10
Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi á áttunda tímanum í kvöld. Einn var í bílnum en sá komst út úr honum af sjálfsdáðum. Innlent 21. apríl 2026 21:31
Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu. Innlent 20. apríl 2026 22:12
Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Hleri farþegaferjunnar Herjólfs, þaðan sem bílar fara um borð og frá borði, bilaði og opnaðist ekki í kvöld þegar ferjan var komin í land í Þorlákshöfn. Innlent 19. apríl 2026 21:32
Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Landgræðsla í Þorlákshöfn á sér langa og merkilega sögu. Í aldanna rás hefur mikið magn sands borist upp úr fjörunni austan við byggðina og úr Ölfusárósi. Skoðun 17. apríl 2026 11:18
Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir Orkuveituna hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Það eigi enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir verði staðfestar verði það stórkostleg tíðindi fyrir þjóðina. Innlent 16. apríl 2026 08:30
Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Heilmikil ábyrgð fylgir því að vera kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og því er mikilvægt að fólk sem velst til þeirra starfa vandi til verka, komi fram af virðingu og segi satt og rétt frá. Sjálfstæðisflokkur hefur verið við völd í Sveitarfélaginu Ölfusi síðustu tvö kjörtímabil eða frá sveitarstjórnarkosningum árið 2018. Ekki er hægt að segja að sá hópur sem með völdin hefur farið síðustu ár hafi alltaf vandað sig í samskiptum eða komið fram af fullri virðingu við fólk sem lagt hefur sig fram við að vinna samfélaginu gagn. Skoðun 16. apríl 2026 06:47
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. Innlent 15. apríl 2026 18:07
Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða hófst í Landsrétti í morgun. Þar freista þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson þess að fá sautján ára fangelsisdómum fyrir manndráp hnekkt og Matthías Björn Erlingsson fjórtán ára dómi. Ríkissaksóknari lætur reyna á sýknu ungrar konu sem var ákærð fyrir að lokka fórnarlambið út af heimili sínu. Þá er hlutur ungs karlmanns sem var sakfelldur fyrir peningaþvætti undir en ákvörðun refsingar hans var frestað í héraði. Innlent 15. apríl 2026 10:10