Skagafjörður

Skagafjörður

Mannfjöldi: 4.316 (2025). Flatarmál: 5.543 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Sauðárkrókur, Hofsós, Varmahlíð, Hólar í Hjaltadal.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaup­fé­laginu

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjársvik sem beindust að bróður hans. Á árunum 2016 til 2021 sveik maðurinn út vörur úr verslunum Kaupfélags Skagfirðinga, það eru Skagfirðingabúð, Verslun Eyri og Bifreiðaverkstæði kaupfélagsins. Það gerði hann með því að skuldfæra vörur á viðskiptareikning sem hann hafði vitneskju um.

Innlent
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Að fljóta sofandi að feigðar­ósi?

Kosningar eru krossgötur. Þetta eru tímamót þar sem við þurfum að spyrja okkur stórra spurninga og ég ætla að byrja á þeirri spurningu sem brennur á mér. Er Skagafjörður að fljóta sofandi að feigðarósi?

Skoðun
Fréttamynd

Sig­fús Péturs­son Álftagerðisbróðir látinn

Sigfús Pétursson, tenór og Álftagerðisbróðir, lést á sunnudag á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Greint er frá andláti hans á vef Feykis. Þar kemur fram að hann var fæddur 23. apríl 1943 og hafi verið nýorðinn 83 ára. Útför Sigfúsar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 15. maí.

Lífið
Fréttamynd

Hólastóllinn

Til allra velunnara Hólastaðar! Senn líður að ögurstund þar sem yfirvöld véla þessa stundina með fjöregg Háskólans á Hólum.

Skoðun
Fréttamynd

Hólar í hjarta­stað

Staðurinn tekur á móti okkur með opinn faðm. Þvílík staðarsýn. Þar gengur allt svo snilldarlega upp. Byggingafræðilegt meistaraverk! Stundum er talað um þessa mynd sem framhliðina á póstkorti. Þarna á bakvið er heilt þorp, háskólaþorp. Í merki Háskólans á Hólum kemur fram ártalið 1106 og stafurinn H eins og hann birtist okkur í Guðbrandsbiblíu.

Skoðun
Fréttamynd

Drengurinn kominn heim til sín

Drengur á fjórða aldursári sem ekið var á fyrir utan söluskála Olís í Varmahlíð í Skagafirði fyrir rúmum tveimur vikum hefur verið útskrifaður af Landspítalanum. Hann er kominn heim í faðm föður síns og móður.

Innlent
Fréttamynd

Drengurinn kominn af gjör­gæslu­deild

Drengurinn sem varð fyrir bíl við söluskála í Varmahlíð hefur verið útskrifaður af gjörgæslu og liggur nú á almennri sjúkradeild. Móðir drengsins hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi.

Innlent
Fréttamynd

Syrtir að í sögu Hóla í Hjalta­dal

Þessi hugsun hefur síðasta árið gerst áleitin, horfandi upp á umhirðuleysi og niðurlægingu hinnar ytri ásýndar Hólastaðar. Nú virðist einnig vegið þungt að innri gerð háskólasamfélagsins á Hólum.

Skoðun
Fréttamynd

Of stór biti að kyngja án íbúa­kosningar

„Ég er mjög óánægður með þá ákvörðun meiri­hluta sveitar­stjórnar Skaga­fjarðar að veita ekki íbúum mögu­leika á að kjósa um menningar­hús,“ segir Daniel Þór Gunnars­son sem hugðist með undir­skriftasöfnun þrýsta á um íbúa­kosningu sem sveitar­stjórn Skaga­fjarðar sló út af borðinu á mið­viku­dag.

Innlent
Fréttamynd

Menningar­húsið fer ekki í íbúakosningu

Einar Einars­son, for­seti sveitar­stjórnar Skaga­fjarðar, lét á fundi hennar í gær færa til bókar að það verði „gleði­dagur“ þegar starf­semi hefst í fyrir­huguðu menningar­húsi á Sauðárkróki. Meiri­hlutinn felldi síðan til­lögu um íbúa­kosningu um bygginguna sem Einar segir að verði „glæsi­leg menningar­miðstöð.“

Innlent
Fréttamynd

Kolin hitna undir menningar­húsinu á Króknum

Sveitar­stjórn Skaga­fjarðar fjallar í dag um fyrir­hugaða undir­skriftasöfnun vegna byggingar um­deilds menningar­húss á Sauðárkróki. Jóhanna Ey Harðar­dóttir, full­trúi Byggðalista, segist vona að söfnunin verði samþykkt átaka­laust.

Innlent
Fréttamynd

Hólar í Hjalta­dal: Við getum gert betur

Í febrúar 2017 fluttum við hjónin í Skagafjörð, nánar tiltekið heim að Hólum í Hjaltadal. Í kjölfarið fór ég að kynna mér staðinn betur og varð hissa á því hversu fáir þekkja til hans og vita af þessum sögufræga stað, þar á meðal ég sjálf.

Skoðun
Fréttamynd

Þrjár nýjar renni­brautir á Sauð­ár­króki í sumar

Þrjár nýjar rennibrautir verða teknar í notkun í sundlauginni á Sauðárkróki í sumar. Sú hæsta er 65 metra löng með fjórum slaufum og er lokuð. Önnur rennibrautin er breið og opin og 8,5 metra löng. Sú þriðja er fimm metra löng, lokuð og er aðeins í eins metra hæð og því fyrir yngstu börnin.

Innlent
Fréttamynd

Íbúa­kosning væri ein­föld sátta­leið í Skaga­firði

„Ég hef fulla trú á því að niður­staða kosninga muni leiða í ljós and­stöðu við Menningar­húsið í núverandi mynd,“ segir Sauðkrækingurinn Daniel Þór Gunnars­son, vongóður um að undir­skriftasöfnun geti þrýst á lausn harka­legrar deilu um nýtt menningar­hús í Skagafirði með íbúa­kosningu sam­hliða sveitar­stjórnar­kosningunum í maí.

Innlent