Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.


Fréttamynd

Tíðindi í vændum: Boðar borgar­stjórnar­flokkinn á fund

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun boða  borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Nokkrir hlut­falls­lega á pari við Heiðu

Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu.

Innlent
Fréttamynd

Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti

Vel fór á með oddvitum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar á tveggja tíma hádegisfundi að sögn Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segir þó enga sérstaka niðurstöðu liggja fyrir hvað varðar myndun meirihluta og segist þurfa að ráða ráðum sínum hvað varðar næstu skref.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgun hælis­leit­enda í Reykja­nes­bæ sé engin

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­menn verði að hætta að vera litlir í sér

Meðal ástæðu þess að dregist hefur að mynda tveggja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í borginni er að sumir Sjálfstæðismenn eru enn hræddir við „vókið,“ að mati Björns Inga Hrafnssonar aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins. Hann telur að þegar Sjálfstæðismenn nái jarðsambandi muni þeir mynda tveggja flokka meirihluta í Reykjavík með Miðflokknum og segir menn verða að hætta að vera litlir í sér. Geri þeir það ekki gætu þeir allt eins myndað meirihluta með Samfylkingunni.

Innlent
Fréttamynd

Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum

Aukin kjörsókn umfram meðalaukningu í Grafarvogi og í Úlfarsárdal skilaði Sjálfstæðisflokki níunda manninum inn í borgarstjórn. Þetta segir Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur í samtali við Vísi. Kjörsókn jókst um 3,7% í Reykjavík milli borgarstjórnarkosninga 2022 og 2026. En breytingin var afar misjöfn milli hverfa borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Hildur Björns undir hnaus­þykkum feldi

Sá á kvölina sem á völina hefur sjaldan átt eins vel við og um þá stöðu sem Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, er í nú um stundir. Fulltrúar annarra flokka bíða þess sem verða vill, misrólegir.

Innlent
Fréttamynd

Sól­veig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil

Kosningavakan á laugardagskvöld var með öflugra móti á Sýn. Áður en kjörstaðir lokuðu var haldið Gott kosningakvöld með Hraðfréttabræðrum, Sveppa og fjölda góðra gesta. Rýnt var í tölur í setti, fréttamenn fóru víða um höfuðborgarsvæðið og á Vísi voru færð nýjustu tíðindi af stöðu mála.

Lífið
Fréttamynd

Vilja halda sam­starfinu á­fram þrátt fyrir mikið fylgis­tap

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili. Flokkarnir töpuðu báðir verulegu fylgi milli kosninga, en meirihlutinn hélt samt velli.

Innlent
Fréttamynd

„Aðal­lega að meta þessa tvo kosti“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin.

Innlent
Fréttamynd

Stuð í kosningavökum flokkanna

Stjórnmálaflokkar héldu kosningavökur um land allt á laugardagskvöldið til að fagna niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga. Fréttastofa Sýnar kíkti í fjölmargar kosningavökur á höfuðborgarsvæðinu og var gríðarleg stemming víða.

Lífið
Fréttamynd

„Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Reykjavíkurborg, segir í pistli að örðugt gæti reynst fyrir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna, að ganga til meirihlutasamstarfs við Miðflokkinn í ljósi þess hvernig þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir létu í aðdraganda kosninga.

Innlent
Fréttamynd

„Ætlið þið í pottinn?“

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, spurði glettin hvort Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, ætluðu saman í pottinn þegar verið var að ræða um opnunartíma sundlauga í Silfrinu í gær. Grínið vakti hugrenningatengsl við Vítalíu-málið sem skók þjóðina fyrir fjórum árum.

Lífið
Fréttamynd

Sam­fylkingin í Reykja­vík þurfi að byggja aftur upp traust

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík.  Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka. 

Innlent