Færir nýársboðið fram á þrettándann Nýársboð forseta verður haldið á þrettánda degi jóla frekar en á nýársdag eins og hefð gerir ráð fyrir. Forsetaritari segir þetta gert til þess að komast til móts við ábendingar gesta sem vilji frekar verja nýársdegi með fjölskyldu sinni. 21.12.2025 21:05
Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan þrjú vegna bílveltu á þjóðveginum skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Fjórir erlendir ferðamenn hafa verið fluttir á sjúkrahús og er einn þeirra alvarlega slasaður. 21.12.2025 19:07
Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Tveggja ára drengur er látinn eftir fall úr fjölbýlishúsi í íbúðahverfinu Høje Gladsaxe á höfuðborgarsvæði Kaupmannahafnar í Danmörku í dag. Málið er rannsakað sem manndráp, að sögn lögreglu. 21.12.2025 18:34
Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Nú mega karlar heita Arin og Draumur, konur heita Love og Harne og kvár heita Ranimosk og Tóní. Þetta kemur fram í nýjum úrskurðum mannanfnanefndar, sem hafnaði þó beiðni um eiginnafnið Óðin og millinafnið Guðmundsen. 21.12.2025 18:15
Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Hver er fallegasta nýbygging ársins? En sú ljótasta? Hópurinn Arkitektúruppreisnin á Íslandi stendur einmitt fyrir opinni atkvæðagreiðslu um fallegustu og ljótustu nýbyggingar 2025. 21.12.2025 17:39
Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Hið minnsta sextán skrár hafa verið fjarlægðar af opinni vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins sem höfðu verið opinberaðar í gær í tengslum við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Þar á meðal hefur skjal sem sýndi ljósmynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta horfið af vefsíðu ráðuneytisins, en ekki liggur fyrir hvers vegna. 20.12.2025 23:44
Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Dóra Jóhannsdóttir, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Húsó, hefur birt bréf frá Bandalagi íslenskra listamanna sem lýsir stuðningi við mál hennar en RÚV og Glassriver hafa ekki brugðist við kröfu hennar um að nafn hennar verði birt í tengslum við Húsó. Hún segir að sér hafi verið boðnir samningar með greiðslu upp á fjórar milljónir, sem hún hafi hafnað. 20.12.2025 22:26
Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Stefán Ernir Valmundarson, útvarpsstjóri Sýnar, furðar sig á því að Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, hafi þegar gefið út að ekki standi til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir að lagaheimild um slíkt hafi verið boðuð. Sá fyrrnefndi skrifar skoðanagrein á Vísi þar sem hann segir rökrétt að ríkið dragi sig úr samkeppnisrekstri þar sem einkamarkaður standi vaktina af fagmennsku. 20.12.2025 21:42
Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Þrír erlendir ríkisborgarar munu þurfa að dúsa í gæsluvarðhaldi fram yfir áramót þar sem lögregla grunar þá um hafa komið hingað til lands til að fremja auðgunarbrot og hafa háar fjárhæðir af öldruðu fólki. 20.12.2025 21:06
Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bandaríkjamenn hafa stöðvað og lagt hald á skip á alþjóðahafsvæði undan strönd Venesúela en þetta gerist aðeins nokkrum dögum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti setti hafnbann á öll olíuflutningaskip til og frá Venesúela sem sæta refsiaðgerðum. 20.12.2025 20:42