Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Vegna veðurs biður lögregla ferðalanga um að huga að því að leggja fyrr af stað um páskana, þar sem gular veðurviðvaranir taka gildi á mánudag, annan í páskum. Viðvaranirnar verða mögulega færðar upp á appelsínugult. 4.4.2026 19:05
Viðreisn býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur og brúarhönnuður, leiðir lista Viðreisnar á Akranesi. Flokkurinn býður fram í fyrsta sinn í kaupstaðnum. 4.4.2026 18:34
„48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Íranir hafa til mánudags til þess að opna Hormússund á ný eða gera einhvers konar samkomulag við Bandaríkin, annars fer allt í bál og brand. Svo hljóðar nýjasta hótun Bandaríkjaforseta, sem hefur þó lítið sem ekkert tjáð sig um týnda bandaríska flugmanninn sem Bandaríkjaher og Íranir keppast um að finna. 4.4.2026 18:10
Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að margt komi til greina til að draga úr verðbólgu, en ekki skattalækkanir; þær „vinni beinlínis gegn Seðlabankanum“. Hann telur að ríkið geti ekki eitt og sér lækkað verðbólgu í landinu. „Þjóðarsátt væri góð,“ segir hann. 1.4.2026 00:08
Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Evrópusambandið fylgir fordæmi Íslands og hefur heimilað ofveiði á makríl í Norður-Atlantshafi, þvert á ráðleggingar vísindamanna og Alþjóðahafrannsóknarráðsins. Framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries lýsir áhyggjum af framtíð makrílstofnsins og segir ljóst að með þessu áframhaldi geti stofninn ekki endurnýjað sig. 31.3.2026 23:05
Mesta kvikusöfnun til þessa Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos. 31.3.2026 20:09
Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Starfsmenn tæknirisans Anthropic virðast óvart hafa lekið frumkóða risamállíkansins Claude Code. Lekinn ætti ekki að hafa nokkur áhrif á notendur en hann sviptir þó hulunni af tæknilausnum fyrirtækisins. 31.3.2026 19:33
Læknir ákærður fyrir manndráp og fjármálaráðherra í kröppum dansi Héraðssaksóknari hefur ákært Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Fimm önnur andlát voru til rannsóknar hjá lögreglu en voru felld niður. Í kvöldfréttum verður fjallað um málið sem Skúli er nú ákærður fyrir og farið yfir feril málsins. 31.3.2026 18:12
Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um líkamsárás með vopnum. Tveir voru handteknir á vettvangi og vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins. 31.3.2026 17:25
Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Auður Kristín Árnadóttir, stjórnarmaður í Hampiðjunni, hefur fengið hlutabréf í félaginu fyrirframgreiddan arf sem nema rúmlega hálfum milljarði króna. 24.3.2026 21:51