Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum rýnum við í ágreininginn í viðræðum BSRB og sveitarfélaganna en í morgun sleit sáttasemjari viðræðum fulltrúa þeirra eftir aðeins klukkustundar fund, þar sem ekkert nýtt kom fram. 6.6.2023 18:01
Farþegum fjölgaði um sextán prósent milli ára Heildarfjöldi farþega Icelandair var um 366 þúsund í maí, sextán prósent fleiri en í maí í fyrra þegar farþegar voru 316 þúsund. Sætaframboð í maí jókst um ellefu prósent miðað við fyrra ár. 6.6.2023 17:47
Ekið á barn á miðri skólalóð: „Stálheppin að krakkinn sé á lífi“ Faðir níu ára stúlku vakti athygli á því í gær að ekið hafði verið á dóttur hans á krossara á miðri skólalóð Hörðuvallaskóla í fyrradag. Hann hvetur foreldra til þess að brýna fyrir börnum sínum að fara varlega á ökutækjum og vera ekki á ökutækjum, sem ætluð eru utanvegaakstri, innanbæjar. 6.6.2023 07:51
Smábátur strandaði við Arnarstapa Smábátur strandaði skammt innan við Arnarstapa á tíunda tímanum í kvöld. Einn var um borð í bátnum og hann komst í land af sjálfsdáðum og var fluttur á sjúkrastofnun á Ólafsvík. 5.6.2023 23:53
Segja aðgerðir ríkisstjórnarinnar endurnýtt efni Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur kynnti í dag aðgerðapakka, sem ætlað er að slá á verðbólguna og koma til móts við þá sem farið hafa verst út úr henni. Formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka segja fátt nýtt felast í aðgerðapakkanum og segja hann jafnvel endurunnið efni. 5.6.2023 23:44
Íslandsklukkan hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar Íslandsklukkan í sviðsetningu leikhópsins Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið, hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar í ár, flestar allra sýninga ársins. Tilkynnt var um tilnefningar til íslensku sviðslistaverðlaunanna í kvöld. 5.6.2023 23:43
Einn fluttur á bráðamóttöku vegna áreksturs Fyrir skömmu varð árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í Reykjavík. Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar en hann er ekki alvarlega slasaður. 5.6.2023 20:36
Leikstjóri Grimmdar dæmdur fyrir umfangsmikinn fjárdrátt Anton Ingi Sigurðsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Grimmd, hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjárdrátt og peningaþvætti. Hann er dæmdur fyrir að hafa ráðstafað miðasölutekjum upp á milljónir króna með ólögmætum hætti. 5.6.2023 19:58
Ballið búið í Háskólabíói Sena hefur ákveðið að segja upp leigusamningi sínum um rekstur kvikmyndahúss í Háskólabíói frá og með næstu mánaðamótum. Framkvæmdastjóri Smárabíós, sem var þar til nýverið framkvæmdastjóri kvikmyndasviðs Senu, segir að aðsóknin hafi hreinlega ekki verið næg. 5.6.2023 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórnin boðar aðhald og ætlar að spara þrjátíu og sex milljarða með nokkrum aðgerðum til að sporna gegn verðbólgu og frekari vaxtahækkunum. Þá hefur verið ákveðið að draga úr launahækkun æðstu embættismanna. Við ræðum við forsætisráðherra um fyrirhugaðar aðgerðir og verðum í beinni frá Alþingi með formönnum Samfylkingar og Flokks fólksins í kvöldfréttum Stöðvar 2. 5.6.2023 17:59