Sigurjón Bragi náði áttunda sæti Sigurjón Bragi Geirsson náði áttunda sæti í Bocuse d´Or heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu sem lauk í Lyon dag. Keppnin er sú virtasta í heiminum á sviði matreiðslu. 23.1.2023 20:51
Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. 23.1.2023 20:15
Lögreglan hefur nú heimild til að nota rafbyssur Ný reglugerð dómsmálaráðherra um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna var birt í Stjórnartíðindum í dag og tekur þegar gildi. Helst breytingin frá fyrri reglugerð er heimild til handa lögreglunni til að nota svokölluð rafvarnarvopn, rafbyssur í daglegu máli. 23.1.2023 19:09
Skilorðsbundin refsing fyrir vörslu grófs teiknaðs barnakláms Karlmaður var á dögunum dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa haft í vörslum sínum þónokkuð magn teiknaðs barnaníðsefnis. Í dómi segir að efnið hafi verið af afar grófu tagi. 23.1.2023 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Efling boðar til ótímabundinna verkfalla hótelstarfsmanna eftir tvær vikur, samþykki þrjú hundruð félagsmenn að leggja niður störf. Formaður félagsins væntir þess að fleiri fari í verkfall fallist atvinnurekendur ekki á kröfur þeirra. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 23.1.2023 18:07
Segir ummæli Skúla undarleg og fyrirslátt Dóttir konu sem lést eftir að hafa verið sett í lífslokameðferð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir ummæli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga í lífslokameðferð án tilefnis, vera undarleg og fyrirslátt. Hún segir svo virðast að Skúli Tómas sé ekki í tengslum við raunveruleikann. 22.1.2023 16:56
Edda og Páll rifja upp Heimaeyjargosið: Bæjarstjórinn á Hlíðarenda og símar fastir í vegg Hálf öld er liðin frá Heimaeyjargosinu sem hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. Fjallað var um þetta fyrsta eldgos sem hófst í byggð á Íslandi í þættinum 50 ár frá gosi, á Bylgjunni í morgun, sunnudag klukkan 9. Í þættinum spjallaði Sighvatur Jónsson við Eddu Andrésdóttur og Pál Magnússon um gosið. 22.1.2023 15:51
Flugvél hringsnerist og rakst í landgang Flugvél Icelandair snerist á staðnum á Keflavíkurflugvelli vegna hálku og vinds. Vinstri vængur vélarinnar rakst í landgang við flugstöðina. Vélin var blessunarlega tóm og engan sakaði. 22.1.2023 15:04
Flugi aflýst og fólk enn fast í flugvélum níu tímum eftir lendingu Icelandair hefur ákveðið að aflýsa öllu flugi sínu til Norður-Ameríku og Evrópu utan flugs til Ósló og Kaupmannahafnar sem seinkað verður fram á kvöld. Aftakaveður er á flugvellinum svo ekki er talið öruggt að fara með stigabíla að flugvélum sem eru úti á vellinum. Farþegar sex véla sitja því enn fastir. 22.1.2023 14:39
Hurð rifnaði af flugvallarbíl Hurð rifnaði af bíl á Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu. Vindhraði er mikill á vellinum og erfiðlega hefur gengið að ná fólki út úr flugvélum sem sitja þar fastar. 22.1.2023 14:04
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent