Reyndi áður fyrr að klæða kynhneigðina af sér Lífskúnstnernum, tónlistarmanninum og förðunarfræðingnum Úlfari Viktori Björnssyni er margt til lista lagt. Á unglingsárunum var hann að eigin sögn að berjast við innri djöfla og þorði ekki að láta ljós sitt skína en í dag er hann óhræddur við að fara eigin leiðir og vera samkvæmur sjálfum sér. Úlfar Viktor er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 4.3.2023 07:00
Vildi vera fyrst til að birta myndir af syni sínum Ofurstjarnan, tónlistarkonan og tískumógúllinn Rihanna prýðir forsíðu breska Vogue tímaritsins í mars mánuði ásamt fjölskyldu sinni. Í samtali við Vogue ræðir hún opinskátt um móðurhlutverkið og segir allt annað í lífinu ómerkilegt í samanburði við það. 2.3.2023 12:01
Örva skilningarvitin með skemmtilegri tilraunamennsku Katrín Gunnarsdóttir og Eva Signý Berger mynda listrænt teymi verksins Soft Shell sem er stöðugt verk í vinnslu. Á morgun geta gestir komið og séð afrakstur af vinnustofu sem þær standa fyrir í Gryfjunni, Ásmundarsal. 1.3.2023 15:01
Saga Matthildur mætt á Íslenska listann Idol stjarnan Saga Matthildur er mætt inn á Íslenska listann á FM957 með Idol lagið Leiðina heim. Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda í síðustu viku og er nú komið í 18. sæti listans. 25.2.2023 17:00
„Alltaf smá sirkus í mér“ Elísabet Alma Svendsen, eigandi Listval og lífskúnstner mikill, hefur alla tíð haft áhuga á tísku og farið eigin leiðir í persónulegum og einstökum stíl. Meginregla hennar er að líða alltaf vel í því sem hún klæðist. Elísabet Alma er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 25.2.2023 07:00
Anna Maggý og Ashley Tisdale á listamessunni LA Art Show Ljósmyndarinn, leikstjórinn og listakonan Anna Maggý er stödd í Kaliforníu um þessar mundir en hún er með bás á alþjóðlegu listamessunni LA Art Show. Með henni í för er Ásdís Þula, eigandi Gallerí Þulu, en blaðamaður tók aðeins púlsinn á þeim. 20.2.2023 11:31
„Erfitt að vera berskjölduð en ég hef gott af því“ Hin 24 ára gamla Saga Matthildur kom, sá og sigraði Idolið í ár með einstakri rödd sinni og einkennandi dulúð. Frá barnæsku dreymdi hana um að vinna við tónlist en lífið þvældist þó fyrir, sem fékk hana til að missa trúna á sjálfri sér um tíma. Hún hefur nú sigrast á ýmsum hindrunum og er að eigin sögn rétt að byrja. Blaðamaður settist niður með Sögu Matthildi og fékk nánari innsýn í líf hennar og listsköpun. 19.2.2023 10:02
Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór í topp fimm Það má með sanni segja að Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór séu með þekktari tónlistarmönnum okkar Íslendinga en síðasta samstarfsverkefni þeirra var lagið Vinn við það. Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda á Íslenska listanum á FM957 í síðustu viku og hefur nú stokkið beint í fimmta sæti listans. 18.2.2023 17:00
Myndi frekar vera á tánum en að klæðast gönguskóm Fyrirsætan Helen Óttarsdóttir hefur gert góða hluti í tískuheiminum og tekið að sér verkefni víða um heiminn. Tískan er órjúfanlegur hluti af starfi hennar og lífi en hún fær gjarnan að heyra að hún sé of fínt klædd fyrir tilefnið og hefur alla tíð neitað að fara í úlpu. Helen er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 18.2.2023 08:00
Eydís Evensen tilkynnir Evróputúr Það er mikið um að vera hjá tónskáldinu og píanóleikaranum Eydísi Evensen, sem hefur vakið athygli í hinum stóra heimi, en hún var að senda frá sér tónverkið Tephra Horizon og tónlistarmyndband við. Er um að ræða fyrstu smáskífu af væntanlegri plötu en Eydís er einnig á leið í stórt tónleikaferðalag. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá. 17.2.2023 11:30