Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús Jochum er umsjónarmaður Lífsins á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Eiður aug­lýsir tyrk­neska hárígræðsluklíník

Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnuþjálfari, sparkspekingur og fyrrverandi landsliðsmaður, kemur fyrir í nýrri auglýsingu tyrkneska skurðlæknisins Dr. Cinik sem sérhæfir sig í hárígræðslum. Sýnt er frá því þegar Eiður fór í hárígræðslu í klíník læknisins í Istanbúl í fyrra auk þess sem hár hans er sýnt fyrir og eftir hárígræðsluna.

Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna

Hrafnhildur Helga Össurardóttir, sjálfstætt starfandi hönnuður, og Árni Hjaltason, sem starfar við eignastýringu hjá Birtu lífeyrissjóði, hafa slitið sambandi sínu. Parið gifti sig sumarið 2023, eiga eitt barn saman og settu íbúð sína á Lokastíg á sölu í ágúst.

Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli

Rapparinn Lil Wayne hefur staðfest að hann sé trúlofaður 23 ára áhrifavaldinum Madison Cannon en 21 ár skilur parið að. Dægurmálamiðlar fjölluðu um trúlofunina fyrr á árinu en rapparinn þvertók fyrir það í sumar og sagði leiðir hafa skilið hjá parinu.

Matthías Már með krabba­mein

Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri Rásar 2, endaði á bráðamóttökunni fyrir tveimur vikum sökum orkuleysis og leiddu rannsóknir í ljós mikið blóðleysi. Ástæðan fyrir því var krabbamein í ristli sem hafði jafnframt dreift sér í lifrina. Nú taki við barátta sem þau hjónin ætli sér að vinna.

Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust

Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust.

Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið

Skemmtikrafturinn Steindi Jr. ætlar loksins að hlaupa í Bakgarðshlaupinu á morgun eftir að hafa talað um það í mörg ár. Hann er spenntur fyrir kolvetnasöfnun og hefur engar áhyggjur af of litlum svefni takist honum að hlaupa fram á nótt. Það eina sem hann óttast er að glænýir hlaupaskórnir geti komið honum í koll.

„Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“

Flugskarpur, eiturfyndinn, víðlesinn, vinmargur, leiftrandi gáfaður, ritfær með afbrigðum, gæskuríkur, blíður og hrjúfur í senn, engum öðrum líkur og ekki alltaf sjálfum sér bestur. Þannig er Karls Th. Birgissonar, rithöfundar, útvarpsmanns og ritstjóra, minnst af þeim ótalmörgu sem rita minningarorð um manninn.

„Ég ætlaði í lög­fræði en tón­listin tók völdin“

„Þegar ég byrjaði í Versló stefndi ég á að verða lögfræðingur. Ég þekki mikið af lögfræðingum, viðskiptafræðingum og fólki sem hefur lagt fyrir sig misgáfulega hluti á æðri stigum menntasviðs. Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin,“ segir Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikari.

Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður

Lena Dunham, rithöfundur, leikkona og höfundur sjónvarpsþáttanna Girls, eignaðist dóttur með eiginmanni sínum, Luis Felber, með hjálp staðgöngumóður í sumar. Dunham hefur verið opinská um glímu sína við endómetríósu og fór í legnám til að losna við króníska verki sem fylgja sjúkdómnum.

Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi

Streymisveitan Apple TV er nú loksins aðgengileg hér á landi. Fjölmargir Íslendingar með myndlykilinn Apple TV ráku upp stór augu í byrjun vikunnar þegar þeir gátu skyndilega nýtt sér streymisveituna Apple TV, sem áður hét Apple TV+.

Sjá meira