Sjáðu markið: Messi tryggði sigurinn með aukaspyrnu í uppbótartíma Það tók Lionel Messi ekki langan tíma að skora sitt fyrsta mark fyrir Inter Miami. Það var einkar glæsilegt en það kom úr aukaspyrnu í uppbótartíma þegar liðið vann 2-1 sigur á Cruz Azul frá Mexíkó í deildarbikarnum, keppni sem inniheldur bæði lið úr MLS og efstu deild í Mexíkó. 22.7.2023 10:15
Vítaspyrnur áfram þemað í öruggum sigrum Bandaríkjanna og Japans Tveir leikir fóru fram á HM kvenna i knattspyrnu í nótt. Bandaríkin unnu Víetnam 3-0 og Japan vann Zambíu 5-0. Vítaspyrnur voru dæmdar í báðum leikjum sem þýðir að það hefur verið bent á vítapunktinn í öllum leikjum mótsins til þessa. 22.7.2023 09:31
Þrútnir leikmenn Man United vekja athygli Myndir af þeim Marcus Rashford og Casemiro, leikmönnum enska knattspyrnufélagsins Manchester United, hafa vakið mikla athygli. Báðir leikmenn virka vel þrútnir eftir verðskuldað sumarfrí. 22.7.2023 08:01
Liverpool mætir til leiks með nýtt leikkerfi: Verður Trent á miðjunni? Þó oftast nær sé lítið sem ekkert að marka vináttuleiki þá vakti uppstilling Liverpool-liðsins í leiknum gegn þýska B-deildarliðinu Karlsruher athygli. Það virðist sem Jurgen Klopp ætli að breyta til í vetur. 22.7.2023 07:01
Dagskráin í dag: Opna og tölvuspil Golf og tölvuspil eru allt í öllu á þessum líka fína laugardegi á rásum Stöðvar 2 Sport. 22.7.2023 06:00
Blikar fá undanþágu Breiðablik má spila á Kópavogsvelli í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sá leikur var alltaf að fara fram á Kópavogsvelli en viðureign Blika í 3. umferð, sama hvort væri um Meistara- eða Evrópudeild var í uppnámi. 21.7.2023 23:31
Grótta fær tvo leikmenn frá Haukum Grótta hefur sótt tvo leikmenn frá Ásvöllum fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla í handbolta. Um er að ræða hinn 19 ára gamla Andra Fannar Elísson og hinn 22 ára gamla Ágúst Inga Óskarsson. 21.7.2023 23:00
Sveimhuginn Kim Ekdahl tekur við Hong Kong Hinn 33 ára gamli Kim Ekdahl du Rietz er nýr landsliðsþjálfari Hong Kong í handbolta. Segja má að hann hafi dottið inn í starfið en hann var staddur í landinu til að læra alþjóðasamskipti. 21.7.2023 22:31
Toppliðið skoraði níu Afturelding vann 9-0 sigur á Selfossi í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Fjölnir, Grótta og ÍA unnu sína leiki líka. 21.7.2023 21:45
Nökkvi Þeyr til toppliðs í Bandaríkjunum Nökkvi Þeyr Þórisson hefur samið við St. Louis í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Liðið trónir á toppi vesturhluta deildarinnar. 21.7.2023 20:21