

Stórsöngkonan Ariana Grande gefur barnaspítala í Manchester gjafir á ári hverju. Fimm ár eru liðin frá því að hryðjuverkaáras var gerð í Manchester-höllinni þar sem Ariana tróð upp.
Hashem Abedi, bróðir mannsins sem sprengdi sig í loft upp þegar fjöldi fólks var að yfirgefa tónleika Ariana Grande í Manchester árið 2017, hefur verið dæmdur í 55 ára fangelsi.
Rúmlega tvö ár eru liðin frá því að hryðjuverkamaður sprengdi sig í loft upp á tónleikum söngkonunnar Ariönu Grande í Manchester þann 22. maí 2017.
Borgarastyrjöld í Líbíu setur strik í reikninginn.
Fjórir starfsmenn Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, hafa orðið uppvísir að misferli við meðhöndlun háleynilegra gagna í tengslum við hryðjuverkaárásina í Manchester í fyrra.
Hjónin Victoria og David Beckham hafa ákveðið að gefa fötin sem þau klæddust í konunglega brúðkaupinu til góðgerðamála.
Söngkonan Ariana Grande segir að hún muni aldrei getað talað um sprengjuárásina í Manchester án þess að bresta í grát.
Frændsystkin á unglingsaldri segjast hafa fengið annað tækifæri í lífinu þegar þau sluppu ómeidd frá hryðjuverkaárás í Manchester í maí. Þau hafa nú sett á fót söfnunarvef fyrir stærsta barnaspítala borgarinnar, en þangað komu fjölmörg fórnarlömb árásarinnar og fengu aðhlynningu.
Stefnt er að því að þjálfa samtök til að aðstoða við að hafa auga með og bregðast við skilaboðum öfgamanna. Jafnframt verður stofnað þjónustuborð sem gerir fólki kleift að komast beint í samband við starfsfólk Facebook.
Helstu listamenn heims komu fram á styrktartónleikum Ariönu Grande í Manchester á dögunum og var það söngkonan sjálf sem skipulagði tónleikana.
Tónleikarnir hófust klukkan sex og má horfa á þá í beinni útsendingu í fréttinni.
Hugurinn hjá Robbie Williams leitaði óhjákvæmilega til fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar í Manchester á tónleikum hans á Etihad-vellinum í Manchester í gærkvöldi.
Styrktartónleikar Ariönu Grande fara fram á krikketvellinum Old Trafford annað kvöld.
Rúmlega 10 þúsund óvandaðir einstaklingar fullyrtu ranglega að þeir hafi verið á tónleikum Ariönu Grande í Manchester í síðasta mánuði til að fá fría miða á styrktartónleikana á sunnudag.
Tveimur mönnum, 20 og 24 ára, var sleppt en þeir voru báðir handteknir tveimur dögum eftir árásina í grennd við heimili árásarmannsins, Salman Abedi. Þá var 37 ára gömlum manni, sem handtekinn var í Blackley í norðurhluta Manchester einum degi á eftir ungu mönnunum tveimur, einnig sleppt.
Justin Bieber, Coldplay og Katy Perry eru meðal þeirra listamanna sem koma fram ásamt Ariana Grande á tónleikum sem verða tileinkaðir þeim sem létust í tónleikahöllinni Manchester Arena í hryðjuverkaárás í síðustu viku.
Lögregla í Bretlandi gerir nú húsleit á heimili í Wigan í tengslum við hryðjuverkaárásina í Manchester í síðustu viku þar sem 22 létust og tugir særðust.
Lögregla í Manchester handtók í dag 23 ára gamlan mann í Sussex í Englandi í tengslum við hryðjuverkin í Manchester. Þá sendu lögregluyfirvöld frá sér nýja mynd af árásarmanninum sem sýnir hann draga á eftir sér bláa ferðatösku fáeinum dögum fyrir árásina.
Vopnaðir lögregluþjónar gerðu áhlaup á íbúðarhús í Moss Side í Manchester í dag. Þá var 25 ára gamall maður handtekinn í Old Trafford, svæði suðvestan við miðborg Manchester, í dag.
Liam Gallagher, annar Oasis bræðranna, hefur ákveðið að gefa allan ágóða af tónleikum sem hann mun halda í næstu viku til aðstandenda fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar sem gerð var í Manchester á mánudag.
Viðbúnaðarstig í Bretlandi hefur verið lækkað að nýju eftir að hafa verið sett á hæsta stig í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti þetta í morgun.
Tveir karlmenn voru handteknir í nótt í tengslum við hryðjuverkaárásina í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Alls eru ellefu einstaklingar í haldi lögreglu vegna árásarinnar
Lögregluyfirvöld í Manchester segja að "mikilvægar handtökur“ hafi verið gerðar í tengslum við árásina í Manchester og að söfnun sönnunargagna hafi einnig skilað miklu.
Bandaríska sönkonan Ariana Grande hyllir aðdáendur sína í skilaboðum sem hún birti á Twitter síðdegis í dag.
Sprengjusveit hefur verið send á vettvang vegna grunsamlegs pakka. Engin hætta virðist lengur á ferðum.
Lögregluyfirvöld í Manchester hafa hætt að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um rannsókn hryðjuverkaárásarinnar þar í borg eftir að þeim var lekið í fjölmiðla.
Salman Abedi, maðurinn sem myrti 22 gesti á leið út af tónleikum Ariönu Grande í Manchester í vikunni, virtist ekki hafa neitt illt í hyggju þegar líbískur kunningi hans hitti hann fyrir tæpum mánuði.
Lögregla í Manchester hefur lagt hald á sprengiefni í húsleitum sínum í kjölfar árásarinnar á mánudagskvöld. Þá hafa fleiri verið handteknir í tengslum við árásina.
Þá hafa samtals fimm verið handteknir í tengslum við árásina, einn í gær og fjórir í dag. Þar á meðal eru tveir bræður árásarmannsins auk föðurins.
Næstu tónleikar Ariönu Grande verða þann 7. júní í París.