Landsréttarmálið

„Þetta á eftir að reynast okkur dýrt“
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður telur það afar ólíklegt að Landsréttardómararnir fjórir, sem Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra skipaði í Landsrétt þvert á tillögur hæfnisnefndar, taki aftur þátt í dómsuppkvaðningu í Landsrétti.

Sigríður ætlar ekki að segja af sér
Sigríður Á Andersen, dómsmálaráðherra, telur niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu ekki vera tilefni til þess að segja af sér. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Gerir ráð fyrir því að dómsmálaráðherra njóti stuðnings hjá samstarfsflokkum í ríkisstjórn
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir niðurstöðu MDE hvorki hrófla við skipan dómara við Landsrétt né niðurstöðu hans.

Málum frestað í Landsrétti vegna dóms MDE
Ákveðið hefur verið að fresta dómsmálum í Landsrétti vegna nýfallins dóms Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) þess efnis að ekki hafi verið staðið löglega að skipan dómara við réttinn.

Telja dómsmálaráðherra augljóslega hafa hunsað reglur
Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, er talin hafa augljóslega hunsað gildandi reglur um skipan dómara þegar hún vék frá tillögum hæfnisnefndar um dómara við Landsrétt árið 2017.

Vaktin: Spjótin beinast að ráðherra eftir dóm Mannréttindadómstólsins
Dómaraskipun Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra í Landsrétti braut gegn 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu sem fjallar um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.

Sannfærð um að dómsmálaráðherra segi af sér í dag: „Við erum að tala um algjöra réttaróvissu í landinu“
Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að ekki sé annað í boði en að Sigríður Andersen segi af sér.

Sigríður og Alþingi brutu grundvallarreglur réttarríkisins með skipan Landsréttardómara
Maður sem leitaði til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna skipanar dómara við Landsrétt vann í morgun mál sitt gegn íslenska ríkinu.

Landsréttarmál í Strassborg í dag
Dómur verður kveðinn upp í Mannréttindadómstól Evrópu í dag vegna máls íslensks manns sem dæmdur var fyrir umferðarlagabrot í Hæstarétti og vísaði máli sínu til Mannréttindadómstólsins vegna meints vanhæfis Arnfríðar Einarsdóttur til að dæma í málinu í Landsrétti.

Mannréttindadómstóll Evrópu kveður upp dóm í Landsréttarmálinu í mars
Mannréttindadómstóll Evrópu kveður upp dóm í Landsréttarmálinu um miðjan mars.

Ríkið dæmt til að greiða skaðabætur vegna skipanar dómara við Landsrétt
Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Jóni Höskuldssyni, héraðsdómara, fjórar milljónir króna í skaðabætur og 1,1 milljón króna í miskabætur vegna skipunar dómara við Landsrétt.

Dómsmálaráðherra gaf skýrslu í Landsréttarmáli
Þrír núverandi og fyrrverandi þingmenn gáfu einnig skýrslu í máli tveggja umsækjenda um dómaraembætti við Landsrétt gegn íslenska ríkinu.

Skipan dómstóla í Póllandi veki hugrenningatengsl við Ísland
Formaður Dómarafélagsins segir afskipti pólskra stjórnvalda af hæstarétti landsins vekja óheppileg hugrenningatengsl við Ísland.Stjórnvöld verði að axla ábyrgð ef áfellisdómur fellur hjá Mannréttindadómstólnum vegna ólögmætrar skipanar dómara við Landsrétt. Orðspor dómskerfisins á Íslandi sé í húfi.

Ísland Pólland
Það berast af því fréttir að ekkert réttaröryggi sé í Póllandi og ástandið minni á einræðisríki.

Dómar Landsréttar munu teljast bindandi
Lektor við lagadeild Háskóla Íslands segir að allir dómar Landsréttar muni teljast bindandi þrátt fyrir að Mannréttindadómstóll Evrópu komist að þeirri niðurstöðu að dómaraskipan hafi verið andstæð lögum.

Fagnar því að MDE vilji afgreiða Landsréttarmálið skjótt
Sigríður Á Andersen dómsmálaráðherra segir íslensk stjórnvöld vinna að því að svara fyrirspurnum mannréttindadómstóls Evrópu.

Mannréttindadómstóllinn tekur kæru vegna Landsréttarmálsins til meðferðar
Ástæða þessa er sögð alvarleg réttaróvissa sem skapist hér á landi vegna málsins.

Dómur Arnfríðar í Landsrétti stendur
Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Landsréttar í máli manns sem var dæmdur í 17 mánaða fangelsi fyrir margvísleg brot

Mál Arnfríðar fer fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur fallist á kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns um áfrýjunarleyfi í máli sem Arnfríður Einarsdóttir dæmdi í Landsrétti í mars.

Hæstiréttur vísar frá kröfu um vanhæfi dómara við Landsrétt
Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns, þess efnis að Arnfríður Einarsdóttir, dómari í Landsrétti, víki sæti í tilteknu sakamáli sökum vanhæfis.

Þingflokksformaður segir afstöðu Rósu og Andrésar visst áfall
Þingflokksformaður Vinstri grænna segir að það hafi verið visst áfall að tveir þingmanna flokksins hafi ekki greitt atkvæði með stjórnarmeirihlutanum við vantrauststillögu á dómsmálaráðherra á Alþingi í gær.

Forsætisráðherra: Hefur afleiðingar fyrir ríkisstjórnarsamstarfið ef vantraust á einn ráðherra er samþykkt
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, segir að það hafi verið vonbrigði að þingmenn VG, þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, greiddu atkvæði með vantrauststillögu á Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra á Alþingi í gær.

Vantrauststillaga Samfylkingar og Pírata felld
Tillagan var felld með 33 atkvæðum gegn 29.

Vantrauststillagan sýni að skipan dómara eigi að vera í höndum ráðherra en ekki hæfnisnefndar
Dómsmálaráðherra sagðist hafa fylgt lagabókstafnum í einu og öllu við skipan dómara við Landsrétt.

Bein útsending: Vantraust á dómsmálaráðherra rætt á Alþingi
Umræða um þingsályktunartillögu Samfylkingarinnar og Pírata um vantraust á Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, hefst klukkan 16:30 í dag.

Vantraust á dómsmálaráðherra rætt á Alþingi í dag
Tillaga Samfylkingarinnar og Pírata um vantraust á Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, verður tekin fyrir á Alþingi í dag.

Brýnt að skera úr um stuðning við dómsmálaráðherra að mati Loga
Forseti Alþingis fundar með þingflokksformönnum klukkan eitt þar sem væntanlega verður ákveðið hvenær vantrauststillaga Samfylkingarinnar og Píratafer fram og með hvaða hætti umræðan verður.

Telur að hún hafi stuðning þingsins
Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segist ávallt fagna því að geta rætt sín störf en Samfylkingin og Píratar hafa lagt fram vantrauststillögu á ráðherrann vegna Landsréttarmálsins.

„Kominn tími til þess að það taki allir afstöðu til þess hvort þeir treysti dómsmálaráðherra eða ekki“
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir að það gæti alveg verið að einhverjir stjórnarliðar muni styðja vantrauststillögu sem Samfylkingin og Píratar hafa lagt fram gegn Sigríði Andersen.

Hafa lagt fram tillögu um vantraust á dómsmálaráðherra
Samfylkingin og Píratar hafa lagt fram tillögu um vantraust á Sigríði Andersen, dómsmálaráðherra, vegna Landsréttarmálsins.