Kína
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 44 ›
Bitcoin og aðrar rafmyntir í frjálsu falli Rafmyntin Bitcoin hefur hrunið í virði í dag. Virði myntarinnar hefur lækkað stöðugt undanfarna fimm daga en botninn virðist taka úr þegar ráðmenn í Kína tilkynntu að herða ætti ólarnar á rafmyntum þar í landi. Viðskipti erlent 19.5.2021 15:31
Kínverjar lentu vélmenni á Mars Kínverjar hafa lent fyrsta lendingarfari sínu á Mars og urðu þeir þar með önnur þjóðin í heiminum sem tekst það. Vélmennið Zhurong er þegar byrjað að senda gögn til jarðarinnar eftir að hafa lent seint í gærkvöldi, að íslenskum tíma. Erlent 15.5.2021 08:00
Hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang Verulega hefur dregið úr fólksfjölgun í Kína og hefur 1,4 milljarða manna samfélagið þar verið að eldast töluvert. Víðsvegar um Kína er verið að hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang-héraði. Þar er þrýst á konur til að eignast færri börn og þær jafnvel þvingaðar í ófrjósemisaðgerðir. Erlent 11.5.2021 11:26
Kínverjum ekki fjölgað jafn hægt í marga áratugi Nýtt manntal í Kína sýnir að Kínverjum hefur ekki fjölgað jafn hægt síðan á sjöunda áratugi síðustu aldar, þegar Kínverjar voru að takast á við afleiðingar hungursneyðar. Erlent 11.5.2021 07:04
Skilja að fjallgöngumenn á Everest vegna faraldursins Kínversk yfirvöld ætla að láta koma upp línu til að koma í veg fyrir að fjallgöngumenn sem ganga á Everest-fjall frá Tíbet annars vegar og Nepal hins vegar komist í snertingu hver við aðra. Kórónuveirusmit hafa komið upp á meðal göngumanna í grunnbúðum í Nepal að undanförnu. Erlent 9.5.2021 14:36
Telja að kínverska eldflaugin hafi brunnið upp að mestu Geimvísindastofnun Kína fullyrðir að stærsta eldflaug hennar hafi komið inn í lofthjúp jarðar yfir Maldíveyjum í Indlandshafi og brunnið upp að mestu leyti í nótt. Sérfræðingar hafa sakað Kínverja um glannaskap með eldflaugina. Erlent 9.5.2021 08:25
WHO samþykkir bóluefni Sinopharm Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hefur veitt Covid-bóluefni kínverska lyfjaframleiðandans Sinopharm neyðarleyfi. Það er fyrsta bóluefnið sem ekki er framleitt á vesturlöndum sem fær samþykki stofnunarinnar. Erlent 7.5.2021 18:14
Telja Kínverja losa meira en allar aðrar þróaðar þjóðir samanlagt Kína átti um 27% af losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum árið 2019 samkvæmt nýju mati greiningarfyrirtækis. Það telur að Kínverjar hafi þannig losað meira en allar aðrar þróaðar þjóðir samanlagt. Erlent 7.5.2021 08:48
Fylgjast grannt með eldflaug sem á að hrapa til jarðar um helgina en enginn veit hvar Geimvísindamenn fylgjast nú náið með rúmlega tuttugu tonna eldflaug frá Kína sem er á braut um jörðu. Búist er við því að eldflaugin muni hrapa til jarðar um helgina og ekki er vitað hvar. Mögulegt er að hún brenni upp í gufuhvolfinu en líklegra þykir að hlutar hennar muni ná til jarðar. Erlent 6.5.2021 22:00
Ritstjóri Mogga vill að Kínverjar verði krafðir skýringa á veirum sem þaðan berast árlega Í leiðara Morgunblaðsins er vakin athygli á því að árvisst er að hvert haust berist flensa frá Kína sem felli fjölda manns í vesturheimi. Innlent 6.5.2021 10:47
Ósætti innan njósnabandalagsins Ósætti er innan „Five Eyes“, stærsta njósnabandalags heims, eftir að Nýja-Sjáland neitaði að taka þátt í gagnrýni á meint mannréttindabrot Kínverja. Erlent 5.5.2021 20:01
Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu. Erlent 3.5.2021 13:29
Telur Kínverja undirbúa innrás Utanríkisráðherra Taívans sagði í dag að útlit væri fyrir að Kínverjar væru að undirbúa innrás á eyjuna. Erlent 29.4.2021 17:30
Selunum sigað á Kína og Rússland Yfirmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að gera töluverðar breytingar á einhverjum frægust herdeildum sérsveitarmanna í heiminum. Með breytingunum eiga svokallaðir Selir að leggja minni áherslu á stríðið gegn hryðjuverkum og meiri áherslu á átök milli ríkja. Erlent 28.4.2021 15:07
Stefna að því að skjóta fyrsta hluta nýrrar geimstöðvar á loft á morgun Starfsmenn Geimvísindastofnunar Kína stefna að því að skjóta fyrsta hluta nýrrar geimstöðvar þeirra á loft á morgun. Þetta verður fyrsta af ellefu geimskotum sem tengjast byggingu geimstöðvarinnar, sem taka á í gagnið undir lok næsta árs. Erlent 28.4.2021 11:38
Rússi fékk loks lausn úr kínverskum sjónvarpsþætti Rússneskur maður er loksins laus úr kínverskum raunveruleikasjónvarpsþætti eftir að hafa beðið um að fá að hætta í þrjá mánuði. Hinn 27 ára gamli Vladislav Ívanóv vann sem túlkur við þættina Produce Camp 2021 og var boðið að taka þátt í leitinni að mönnum í nýja strákahljómsveit. Bíó og sjónvarp 27.4.2021 14:30
Lífseigu samstarfi í geimnum að ljúka og keppt til tunglsins Í rúma tvo áratugi hafa geimvísindamenn og geimfarar Rússlands og Bandaríkjanna unnið náið saman, samhliða því að samskipti ríkjanna tveggja hafa beðið verulega hnekki. Þó viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum hafi verið beitt á báða bóga hefur geimurinn verið sér á báti. Sá tími er nú liðinn. Erlent 27.4.2021 09:15
Xi vill sanngjarnari heimsstjórn Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því málefnum heimsins yrðu stýrt á sanngjarnari máta og að ríki heimsins legðu ekki tálma á önnur. Hann kallaði eftir aukinni ráðfærslu milli ríkja á alþjóðasviðinu og sagði að aðskilnaður og útskúfun á heimsmarkaði væri ekki jákvæð. Erlent 20.4.2021 10:48
Bandaríkin og Kina vinna saman í loftslagsmálum Ráðamenn í Kína og Bandaríkjunum segjast hafa komið að samkomulagi um að takast á við veðurfarsbreytingar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ríkin eru efst á lista ríkja sem losa hvað mestan koltvísýring út í andrúmsloftið. Innlent 18.4.2021 09:45
Segir aumingjaskap að beina þvingunaraðgerðum gegn almennum borgara Alþjóðastjórnmálafræðingur segir það aumingjaskap af hálfu kínverskra stjórnvalda að beina þvingunaraðgerðum gegn almennum borgara hér á landi. Um sé að ræða ágreining sem eigi að ræða á vettvangi stjórnmála. Innlent 17.4.2021 20:31
Segir aðgerðir Kínverja í samræmi við skilningsleysi þeirra á réttarríkinu Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir aðgerðir Kínverja í samræmi við skilningsleysi þeirra á réttarríkinu og öllum þeim grundvallarréttinum sem undir það heyra. Nefndin mun ræða mál Kínverja á næstunni. Innlent 17.4.2021 14:00
Vonar að hann verði á svörtum lista kínverskra stjórnvalda til frambúðar Lögmaðurinn Jónas Haraldsson segir líklegustu skýringuna á því að hann sé kominn á svartan lista í Kína vera skrif sín í Morgunblaðið. Hann hafi skrifað um ýmis málefni tengd Kína undanfarin sex ár en segist aðallega hissa á því að þeir hafi nennt að standa í þessu, eins og hann orðar það sjálfur. Innlent 16.4.2021 22:44
Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af innanríkismálum Kína Viðskiptaþvinganir Kína gegn íslenskum lögmanni byggja á ákvörðun yfirvalda hér á landi að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Kína vegna mannréttindabrota á Úígúrum þar í landi. Í stóryrtri yfirlýsingu frá sendiráði Kína hér á landi segir að ákvörðun stjórnvalda byggi á engu nema lygum og upplýsingafölsun. Innlent 16.4.2021 16:27
Auðjöfur í fangelsi vegna aðildar að mótmælunum í Hong Kong Dómstóll í Hong Kong hefur dæmt fjölmiðlamógúlinn og auðjöfurinn Jimmy Lai í tólf mánaða fangelsi eftir að hafa fundið hann sekan um að hafa brotið gegn reglum um samkomur. Erlent 16.4.2021 09:15
Segir óboðlegt að kínversk stjórnvöld refsi Íslendingi fyrir að nýta málfrelsið Lögmaðurinn Jónas Haraldsson er kominn á svartan lista í Kína. Hann má ekki ferðast til landsins og þá hafa mögulegar eignir hans þar verið frystar. Innlent 16.4.2021 08:37
Íslendingur settur á svartan lista í Kína fyrir gagnrýnin skrif Lögmaðurinn Jónas Haraldsson er á svörtum lista stjórnvalda í Kína, má ekki ferðast til landsins og þá hafa mögulegar eignir hans þar verið frystar. Innlent 16.4.2021 06:37
Svartur listi rauða drekans Íslenskur lögfræðingur hefur nú verið settur á svartan lista hjá stjórnvöldum í Kína og í kjölfarið fær maðurinn, Jónas Haraldsson ekki að stíga fæti á kínverska grundu og verða allir þeir fjármunir (sem hann er eflaust með) í Kína einnig frystir. Skoðun 15.4.2021 19:00
Stofna til nýrrar Kína-rannsóknar á tíu klukkustunda fresti Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur um 2.000 mál í rannsókn sem rekja má til kínverskra stjórnvalda. Þá er stofnað til nýrrar rannsóknar á „tíu klukkustunda fresti“, segir forstjóri stofnunarinnar. Erlent 15.4.2021 12:51
Segja Bandaríkjunum að hætta að leika sér að eldi Ráðamenn í Kína hafa lýst heræfingum sínum nærri Taívan sem æfingum fyrir átök og varað Bandaríkjamenn við því að eiga í samskiptum við eyríkið. Bandarískir erindrekar eru staddir í Taívan í ferð sem Hvíta húsið segir ætlað að sýna stuðning Bandaríkjanna við ríkið. Erlent 14.4.2021 10:11
Her Kína sagður gera út flota fiskiskipa Her Kína gerir út fjölmörg blá fiskiskip sem notuð eru sem sérstök sveit til að styrkja tilkall Kínverja til hafsvæða í Asíu og þá sérstaklega Suður-Kínahafi. Tilvist þessarar sveitar hefur ekki verið viðurkennd af ráðamönnum í Peking en sérfræðingar segja hundruð skipa og þúsundir áhafnarmeðlima tilheyra henni. Erlent 13.4.2021 14:29