Rússland
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 102 ›
Fyrstu árásirnar þegar hálftími var liðinn af nýja árinu Rússar héldu árásum sínum áfram á Úkraínu í dag og var fyrstu flugskeytunum skotið á höfuðborgina Kænugarð þegar einungis um hálftími var liðinn af nýja árinu. Skotið var á byggingar í tveimur hverfum höfuðborgarinnar og er að minnsta kosti einn látinn. Erlent 1.1.2023 22:40
Fjöldamargar loftárásir á Kænugarð Fjöldamargar loftárásir hafa verið gerðar á Kænugarð og fleiri borgir Úkraínu í dag. Volodómír Selenskí forseti Úkraínu segir Rússa hafa ætlað sér að eyðileggja nýársfögnuð Úkraínumanna með árásunum. Loftvarnarflautur hafa ómað í höfuðborginni í allan dag. Erlent 31.12.2022 13:25
Segir Ólympíunefndinni stýrt úr bandaríska utanríkisráðuneytinu Dmitry Chernyshenko, varaforsætisráðherra Rússlands, segir Alþjóðaólympíunefndina vera undir beinum áhrifum bandarískra stjórnvalda. Rússneskir íþróttamenn sæta banni frá nefndinni vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Sport 30.12.2022 13:01
Yfirrabbíninn í Moskvu hvetur gyðinga til að flýja Rússland Rabbíninn Pinchas Goldschmidt hefur hvatt gyðinga búsetta í Rússlandi til að yfirgefa landið á meðan þeir geta. Hann segist óttast að þeir verði gerðir að blórabögglum fyrir þeim erfiðleikum sem Rússland stendur frammi fyrir vegna innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 30.12.2022 08:36
Eldflaugum rigndi yfir Úkraínu: „Tilgangslaus villimennska“ Úkraínuher skaut niður meirihluta 69 eldflauga sem Rússlandsher skaut yfir landið í dag. Fjöldi heimila og mikilvægir innviðir skemmdust í árásunum. Erlent 29.12.2022 22:50
Segja yfir hundrað flugskeyti á lofti yfir Úkraínu Loftvarnaflautur eru sagðar hljóma víða um Úkraínu eins og stendur og þá hafa heyrst sprengingar í Kænugarði. Oleksiy Arestovyck, ráðgjafi Vólódímírs Selenskís, sagði í morgun að fleiri en 100 flugskeytum hefði verið skotið á loft af Rússum, í nokkrum bylgjum. Erlent 29.12.2022 07:47
Rússar hæfðu fæðingardeild í Kherson í stórskotaliðsárás Almennir borgarar í Kherson í Úkraínu flýja nú heimili sín unnvörpum en árásir Rússa á borgina hafa færst í vöxt síðustu tvo sólarhringana. Erlent 28.12.2022 14:48
Rússneskur pylsumógúll látinn eftir fall út um glugga Rússneski pylsumógúllinn og stjórnmálamaðurinn Pavel Anton fannst látinn eftir að hafa fallið af glugga á þriðju hæð hótels á Indlandi á jóladag. Tveimur dögum fyrr hafði vinur hans látist í sömu ferð. Erlent 28.12.2022 08:22
Stjórnvöld í Rússlandi greiða fyrir varðveislu sæðis hermanna Rússneska ríkisfréttastofan Tass greindi frá því í dag að heilbrigðirsráðuneytið hefði samþykkt að fjármagna áætlun sem mun gera rússneskum hermönnum kleift að láta frysta úr sér sæði, áður en þeir halda á vígsstöðvarnar í Úkraínu. Erlent 28.12.2022 07:38
Úkraínumenn fikri sig nær endurheimt lykilborga í Luhansk Margt bendir til þess að Úkraínumenn séu nú að fikra sig nær því að endurheimta Kreminna, lykilborg í Luhansk héraði, sem gæti opnað möguleika á frekari sókn. Harðir bardagar halda áfram bæði í austur- og suðurhluta Úkraínu. Erlent 27.12.2022 18:11
Musk metur martraðaspá Medvedev marklausa Dmitry Medvedev, náinn bandamaður Vladimír Pútín og fyrrverandi forseti Rússlands, birti í gær sína spá fyrir árið 2023. Margt í spánni mætti flokka sem galið en meðal þeirra sem svöruðu forsetanum fyrrverandi var Elon Musk, forstjóri Twitter. Hann sagði spána vera þá fáránlegustu sem hann hefur á ævi sinni heyrt. Erlent 27.12.2022 13:22
Rússar vilja undanþágu fyrir fatlaða íþróttamenn Ólympíunefnd fatlaðra í Rússlandi hefur sótt um undanþágu frá útilokun þarlendra keppenda til Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra. Forseti rússneska sambandsins segir þeir eigi að njóta vafans. Sport 27.12.2022 11:31
Selenskí segir átökin í Donbas „erfið og sársaukafull“ Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir átökin sem nú standa yfir í Donbas „erfið og sársaukafull“. Ástandið á framlínunni; í Bakhmut, Kreminna og víðar, krefðist styrks og einbeitingar, þar sem Rússar beittu öllum kröftum í að sækja fram. Erlent 27.12.2022 07:36
Úkraínskur dróni komst langt inn í Rússland Rússneski herinn skaut niður úkraínskan dróna við Engels herflugvöllinn. Engels er um sex hundruð kílómetra austur af landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 26.12.2022 10:38
Segir Rússa reiðubúna til að semja Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa reiðubúna til að semja um endalok innrásar þeirra í Úkraínu. Hann segir Úkraínumenn og vesturlönd ekki vilja ganga að samningaborðinu. Erlent 25.12.2022 13:44
Eldsvoði í ólöglegu neyðarskýli banaði tuttugu og tveimur Tuttugu og tveir eru látnir eftir að kviknaði í ólöglegu neyðarskýli í rússnesku borginni Kemerovo. Erlent 24.12.2022 12:16
Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra harðlega fyrir ummæli sem hún lét falla í sjónvarpsþætti í vikunni. Í þættinum gagnrýndi ráðherra rússnesk stjórnvöld en sendiráðið vísar ummælunum á bug. Innlent 23.12.2022 19:20
Evrópa í basli með skotfærabirgðir og framleiðslu Ríki Evrópu eiga í vandræðum með að auka framleiðslu hergagna, þrátt fyrir að mörg af stærstu vopnaframleiðslufyrirtækjum heims megi finna á heimsálfunni. Vandræðin snúa sérstaklega að framleiðslu skotfæra fyrir stórskotaliðsvopn. Erlent 23.12.2022 15:30
Afmá úkraínska menningu í Maríupól Undanfarnar vikur hafa rússneskir verktakar rifið fjölda rústa og bygginga í Maríupól. Með brakinu eru lík sem liggja enn í rústunum flutt á brott. Verið er að afmá úkraínska menningu borgarinnar og hafa götur Maríupól til að mynda fengið nöfn frá tímum Sovétríkjanna. Erlent 23.12.2022 10:31
Wagner málaliðahópurinn sagður hafa keypt vopn af Norður-Kóreu Bandaríkjamenn hafa sakað stjórnvöld í Norður-Kóreu um að hafa séð Wagner málaliðahópnum fyrir vopnun til notkunar í Úkraínu. Þeir segja söluna brjóta gegn ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 23.12.2022 07:54
Fyrrverandi yfirmaður Roscosmos særðist í Donetsk Dmitry Rogozin, fyrrverandi yfirmaður Geimvísindastofnunar Rússlands, Roscosmos, og núverandi hernaðarráðgjafi í Donbas, er sagður hafa særst í loftárás Úkraínumanna í Doentsk-borg. Erlent 22.12.2022 16:17
Pútín viðurkennir vandræði og styður stækkun hersins Vlaldimír Putín, forseti Rússlands, lýsti í gær yfir stuðningi við áætlun Varnarmálaráðuneytisins um að stækka rússneska herinn um um það bil helming. Þá sagði forsetinn að herinn þyrfti að ganga í gegnum ýmsar endurbætur og að engu væri sparað til. Erlent 22.12.2022 11:19
Úkraínuforseti færir Bandaríkjaforseta áritaðan fána hermanna á vígstöðvunum Bandarísk stjórnvöld munu staðfesta 45 milljarða dollara aðstoð við Úkraínu í óvæntri heimsókn Úkraínuforseta til Bandaríkjanna í kvöld. Zelenskyy heiðrari hermenn á víglínunni í Bakhmut í gær og sagði þá verja alla Úkraínu fyrir dauða og eyðileggingu sem Rússar skildu alls staðar eftir sig. Erlent 21.12.2022 19:20
Múrmansk svarar Akureyri í sömu mynt Borgarráð rússnesku borgarinnar Múrmansk hefur ákveðið að slíta vinabæjarsamstarfi við Akureyri, eftir að bæjarráð Akureyrar sleit samstarfinu við Múrmansk í síðasta mánuði. Innlent 21.12.2022 10:59
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Selenskí birtist óvænt í „hakkavélinni“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti óvænt Bakhmut í austurhluta Úkraínu í dag. Harðir bardagar hafa geisað um bæinn um mánaða skeið og hefur bænum verið lýst sem „hakkavél“. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði fyrr í morgun að ástandið í austurhluta Úkraínu væri „gífurlega flókið“ fyrir rússneska hermenn. Erlent 20.12.2022 14:49
Pútín, Lavrov og Shoigu allir í Hvíta-Rússlandi Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fer í dag á fund Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem Pútín sækir Lúkasjenka heim en hann er einn af fáum bandamönnum Pútíns. Erlent 19.12.2022 13:44
Drónaárásir á Kænugarð í morgunsárið Loftvarnaflautur hafa ómað í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í morgun vegna drónaárása rússneska hersins. Vítalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi sprenginga hafi heyrst í höfuðborginni í morgun. Erlent 19.12.2022 06:31
Auglýsingaherferð sýnir glæstan lífsstíl rússneskra hermanna Ný auglýsingaherferð Rússa sýnir ungan mann kaupa sér glænýjan bíl fyrir peningana sem hann fékk fyrir þátttöku í innrásinni í Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi halda áfram að sækja fleira fólk í herinn þrátt fyrir að hafa sagt að til væri feykinóg af hermönnum. Erlent 18.12.2022 18:53
Búist við auknum sóknarþunga Rússa Valdímír Pútin Rússlandsforseti hefur fundað með herforingjum sínum nú þegar hávær orðrómur er um að Rússar muni gera metnaðarfulla tilraun til að snúa vörn í sókn á vígvellinum. Erlent 17.12.2022 16:48
Griner þakkar Biden og stefnir á að spila á næstu leiktíð Brittney Griner þakkaði Bandaríkjaforseta þegar hún tjáði sig í fyrsta skipti opinberlega eftir að vera loks komin heim eftir tíu mánuði í rússnesku fangelsi. Þá stefnir hún á að spila með Phoenix Mercury í WNBA deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Körfubolti 17.12.2022 07:01