
Sigur Rós

Ágætis byrjun orðin tvítug
Sigur Rós býður almenningi í hlustunarpartí í Gamla bíói í kvöld til að fagna tuttugu ára afmæli plötunnar Ágætis byrjun. Georg Holm fer í huganum aftur til fortíðar.

Sigur Rósar-menn greiddu tæpar 80 milljónir í álag
Vilja frávísun á grundvelli þess að hafa verið refsað áður.

Liðsmenn Sigur Rósar krefjast frávísunar
Fyrirtaka í máli héraðssaksóknara gegn fjórum meðlimum Sigur Rósar vegna meintra skattsvika fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Meint skattsvik Jónsa nema 190 milljónum með nýrri ákæru
Jón Þór Birgisson, söngvari Sigur Rósar, og endurskoðandi hans, Gunnar Þór Ásgeirsson, hafa verið ákærðir fyrir að hafa komið félagi í eigu Jóns Þórs undan greiðslu tekjuskatts upp á 146 milljónir.

Liðsmenn Sigur Rósar neita allir sök í skattsvikamáli
Allir fjórir meðlimir Sigur Rósar sem ákærðir hafa verið fyrir skattalagabrot neituðu sök við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Endurskoðandi Jóns Þórs Birgissonar, söngvara sveitarinnar, sem einnig er ákærður í málinu, neitaði einnig sök við fyrirtökuna.

Félög í eigu Sigur Rósar eiga hundruð milljóna króna
Fá enn ríflega hundrað milljónir á ári í erlendar höfundarréttartekjur. Hljómplötu- og DVD-sala dvínar en skilar enn milljónum. Tugir milljóna króna greiddar í arð út úr félögunum frá stofnun. Ákærðir fyrir að telja ekki fram tekjur og arðgreiðslur frá félögunum og komast þannig hjá greiðslu alls 150 milljóna.

Meint skattsvik meðlima Sigur Rósar alls um 150 milljónir króna
Meint skattsvik fjögurra meðlima Sigur Rósar sem ákærðir hafa verið fyrir skattalagabrot nema alls um 150 milljónum króna þegar vangreiddur tekjuskattur og vangreiddur fjármagnstekjuskattur þeirra allra er talinn saman samkvæmt ákærunum.

Ákæran hryggir Sigur Rósar-menn en vona að málið skýrist fyrir dómi
Þeir hafi ávallt haft fullan ásetning til að standa í réttum skilum við skattayfirvöld og stóðu í þeirri trú að það hefði verið gert.

Meðlimir Sigur Rósar ákærðir fyrir skattsvik
Fjórir meðlimir hljómsveitarinnar Sigur Rósar hafa verið ákærðir fyrir skattsvik, þeir Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveinsson, Georg Holm og Orri Páll Dýrason.

Sigur Rós sendir frá sér lúxuspakka í tilefni af 20 ára afmæli Ágætis Byrjun
Platan Ágætis byrjun kom út árið 1999 á Íslandi og vakti strax gífurlega athygli hér heima sem og erlendis.

Héraðssaksóknari hefur lokið rannsókn á skattamálum Sigur Rósar
Ákvörðun um hvort ákært verður í málinu liggur ekki fyrir.

Jónsi og Lady Gaga slást um Óskarstilnefningu
Jón Þór Birgisson, betur þekktur sem Jónsi í Sigur Rós og Ástralska poppstjarnan Troy Sivan eru höfundar á laginu Revelation sem er titillag kvikmyndarinnar Boy Erased.

Eintómt klúður segir bassaleikari Sigur Rósar
Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar, segir að verið sé að vinna í því að laga það sem fór úrskeiðis varðandi uppgjör hans og tveggja annarra meðlima hljómsveitarinnar, þá Orra Páls Dýrasonar og Jóns Þórs Birgissonar, við skattayfirvöld.

Sjáðu magnaða lokatónleika Sigur Rósar á Norður og niður
Listahátíðin Norður og niður hófst í Hörpu þann 27. desember.

Sigur Rós fær tvær platínuplötur og tvær gullplötur
Það er ekki á hverjum degi sem íslensk hljómsveit fær afhentar tvær platínuplötur og tvær gullplötur. Strákarnir í Sigur Rós munu þó upplifa þetta í Gallerí humar eða frægð í dag.