

Saksóknarar í Þýskalandi hafa ákært sjö menn sem grunaðir eru um að hafa undirbúið hryðjuverkaárásir á vegum Íslamska ríkisins í Khorasan (ISKP) þar í landi og annarsstaðar í Vestur-Evrópu. Mennirnir eru sagðir hafa virt fyrir sér nokkur möguleg skotmörk og munu þeir hafa reynt að safna peningum og vopnum fyrir árásir.
Bandarískir embættismenn vöruðu rússneska kollega sína við því að tónleikahöllin í Crocus væri mögulegt skotmark vígamann Íslamska ríkisins í Khorasan, eða ISKP, rúmum tveimur vikum áður en fjórir menn myrtu þar minnst 144. Ráðamenn í Rússlandi hunsuðu viðvörunina og Vladimír Pútín, forseti, sagði nokkrum dögum fyrir árásina að Vesturlönd væru að reyna að kúga Rússland.
Þegar Kalífadæmi Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi féll í mars 2019 markaði það ekki endalok hryðjuverkasamtakanna sjálfra. Síðan þá hefur hver leiðtoginn á fætur öðrum verið felldur af bandarískum hermönnum en samtökin sjálf hafa þó tórað áfram, í einhverri mynd.
Tadsíkistan heldur áfram að slá í gegn í Asíukeppninni í fótbolta sem fram fer í Katar en liðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum í gær.
Að minnsta kosti 24 létu lífið í átökum á landamærum Kirgistan og Tadsíkistan í gær. Samkomulag um vopnahlé er á milli ríkjanna en báðar þjóðir saka hvora aðra um að brjóta samkomulagið.
Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn.
Yfirvöld í Kirgistan segja að minnst þrettán manns hafa fallið í átökum við hermenn Tadsíkistan. Þá hafi vel yfir hundrað manns særst, þar af tveir í alvarlegu ástandi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, mun láta af störfum sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE en hún hefur gengt starfinu undanfarin þrjú ár.
Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið hóp manna frá Tadsíkistan sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverkaárás þar í landi í nafni Íslamska ríkisins.
Sautján manns hið minnsta eru látnir eftir að árás var gerð á landamærastöð á landamærum Tadsíkistans og Úsbekistans í morgun.
Eini Tadsíkinn sem hefur unnið til gullverðlauna á Ólympíuleikunum hefur verið dæmdur í tímabundið bann vegna notkunar ólöglegra lyfja.
Þrír fangaverðir og 29 fangar eru látnir eftir uppþot íslamskra öfgamanna í öryggisfangelsi í Tadsíkistan.
Öflugur jarðskjálfti skók lönd í suðvesturhluta Asíu.
Harðir bardagar á milli öryggissveita Afganistan og Talíbana geysa nú nærri borginni Kunduz.