Miðbaugs-Gínea

Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri
Kynlífsskandall skekur nú afríkuríkið Miðbaugs-Gíneu, eitt fátækasta ríki heims. Á bilinu 150 til 400 kynlífsmyndböndum hefur verið lekið um netið síðustu daga sem sýna háttsettan embættismann og frænda forseta landsins, Baltasar Ebang Engonga, í kynlífsathöfnum við hinar ýmsu konur. Sumar þeirra eru eiginkonur annarra stjórnmálamanna landsins.

Fékk spark í bringuna en skoraði svo sigurmarkið
Gínea tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar í fótbolta með 1-0 sigri gegn Miðbaugs-Gíneu.

43 ár á valdastóli og með 99 prósent atkvæða
Flokkur Teodoro Obiang, forseta Miðbaugs-Gíneu, hefur tryggt sér 99 prósent atkvæða í kosningunum þar í landi. Það stefnir allt í að þaulsetnasti forseti heims sitji áfram á valdastóli.

98 látnir eftir sprengingarnar í Bata
Fjöldi látinna eftir sprengingarnar á herstöðinni í hafnarborginni Bata í Miðbaugs-Gíneu er nú kominn í 98. Auk þeirra slösuðust rúmlega sex hundruð manns og gæti fjöldi látinna því hækkað enn frekar þegar fram í sækir.

Tugir látnir eftir miklar sprengingar í Miðbaugs-Gíneu
Að minnsta kosti tuttugu fórust og um sex hundruð særðust þegar miklar sprengingar urðu við herstöð í borginni Bata í Miðbaugs-Gíneu í gærkvöldi.

Einangruð Bandaríki beittu neitunarvaldi í öryggisráðinu
Sendiherra Bandaríkjanna beitti fyrst neitunarvaldi gegn ályktun um ofbeldi gegn Palestínumönnum og fékk síðan ekki stuðning neins annars ríki við sína tillögu.

Sex ný ríki kjörin í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
Kjör Afríkuríkisins Miðbaugsgíneu í ráðið hefur verið harðlega gagnrýnt af mannréttindasamtökum.

Utanríkisráðherra Tsjad nýr framkvæmdastjóri Afríkusambandsins
Moussa Faki Mahamat tekur við stöðunni af hinni suður-afrísku Nkosazana Dlamini-Zuma.

Safnaði minjagripum tengdum Michael Jackson fyrir almannafé
Saksóknarar í Sviss lögðu hald á ellefu lúxusbíla í gær sem allir eru í eigu varaforseta Afríkuríkisins Miðbaugs-Gíneu.

Þaulsætnasti forseti heims endurkjörinn
Theodoro Obiang Nguema Mbasogo hlaut 99,2 prósent atkvæða í forsetakosningum Miðbaugs Gíneu.

Marokkó fær ekki að vera með í næstu tveimur Afríkukeppnum
Knattspyrnusamband Marokkó sektað um milljón dali fyrir að hætta við að halda Afríkukeppnina.