Sundlaugar og baðlón
1 2 3 4 5 6 … 19 ›
Loka sundlaugum vegna loðnuvertíðar Veitur biðla til íbúa og fyrirtækja á Akranesi að huga að notkun kalda vatnsins næstu vikur. Tveimur sundlaugum hefur verið lokað að beiðni Veitna en að baki er sögulega löng þurrkatíð og loðnuvertíðin fram undan. Innlent 20.2.2026 14:40
Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Vatnsborð í Laugarvatnshver sem sér Laugvetningum fyrir heitu vatni lækkaði vegna framkvæmda við heilsulindina Fontana í síðustu viku. Brugðist var við með því að hægja á rennsli til sundlaugarinnar í bænum. Innlent 19.2.2026 14:31
Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Allar sundlaugar í Árborg verða lokaðar fram yfir helgi vegna lakrar vatnsstöðu heita vatnsins. Staðan er vegna mikils kulda og þurrkatíðar undanfarna daga. Innlent 17.2.2026 23:00
Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Sundhöll Reykjavíkur hefur verið lokað tímabundið. Ástæðan er sú að vatnsþrýstingur féll í sundhöllinni með þeim afleiðingum að ekkert vatn er í sturtum. Innlent 17.2.2026 09:21
Jói Fel málar með puttunum Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum. Lífið 30.1.2026 21:05
Á bak við tært vatn sundlauganna, ósýnilegt hlutverk heilbrigðiseftirlits Íslensk sundlaugarmenning fékk nýlega formlega viðurkenningu UNESCO sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns. Merkilegt afrek sem á rætur sínar að rekja allt aftur til náttúrulauga landnámsmanna, nefndum í Íslendingasögum, til nútíma sundlauga vítt og breitt um landið. Skoðun 15.1.2026 07:00
Loka lauginni vegna veðurs Klébergslaug á Kjalarnesi hefur verið lokað vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Innlent 12.1.2026 13:38
Sundlaugum lokað vegna óöruggra aðstæðna Barna- og innilaug í Sundhöll Reykjavíkur hefur verið lokað vegna bilunar í loftræstingunni. Aðstæðurnar eru ekki taldar öruggar. Innlent 10.1.2026 10:39
Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Nýju vatnsrennibrautinni í sundlauginni í Þorlákshöfn hefur verið lokað. Rúm vika er síðan rennibrautin, sem ber heitið Drekinn, var opnuð almenningi. Innlent 3.1.2026 11:27
Hækka hitann í Breiðholtslaug Borgarstjórn hyggst hækka hitann í Breiðholtslaug upp í 35 gráður í febrúar til að koma til móts við ungbarnafjölskyldur. Tilraunin er meðal þriggja tillagna sem eiga að auka aðgengi ungbarnafjölskyldna að laugum borgarinnar. Innlent 16.12.2025 09:58
Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Gestir í Sundlaug Seltjarnarness ráku upp stór augu fyrir hádegi í dag þegar álft lenti í lauginni. Gesturinn hvíti virkaði særður og ekkert fararsnið á honum. Innlent 12.12.2025 13:24
Sundmenning Íslands á lista UNESCO Að stinga sér til sunds í íslenskri sundlaug er ekki lengur bara hversdagsleg athöfn. Ekki frekar en að setjast niður og borða heimatilbúna máltíð á Ítalíu. Hvoru tveggja bætist á lista UNESCO yfir óáþreifilegan menningararf í vikunni. Innlent 11.12.2025 10:19
Kynjaskiptir og ilmandi sánuklefar urðu undir í kosningu Niðurstöður íbúasamráðs um gufuböð í Vesturbæjarlaug liggja nú fyrir og í annarri sánunni verður heimilt að tala en ekki í hinni. Þá verður sú síðarnefndari heitari en hin. Ekkert verður af kynjaskiptingu sánanna eða að önnur verði ilmandi en ekki hin. Innlent 9.12.2025 13:08
Karlaklefunum lokað í Sundhöllinni vegna rakaskemmda Loka þarf karlaklefum í Sundhöll Reykjavíkur tímabundið vegna rakaskemmda. Klefarnir verða lokaðir frá og með 5. desember og verða opnaðir aftur eftir úrbætur og úttekt. Innlent 4.12.2025 14:47
Nýju sánurnar opnaðar á sögulegum degi í Vesturbænum Nýja sánur verða opnaðar í Vesturbæjarlaug á þriðjudaginn þegar 64 ár verða liðin frá því laugin var opnuð almenningi. Borgarstjóri opnar sánurnar við hátíðlega athöfn og verður ókeypis í laugina um morguninn. Um er að ræða þrjár sánur, ein innrauð og tvær hefðbundnar. Innlent 28.11.2025 10:19
Innlit í ævintýralega baðlónið Laugarás Lagoon Nýjasta baðlón landsins er Laugarás Lagoon er alveg einstakt. Lífið 19.11.2025 12:03
Pavel í baðstofubransann Körfuboltakappinn Pavel Ermolinskij hefur til skoðunar að setja upp potta og gufu á vannýttri lóð á Þingeyri. Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar tekur vel í erindið en bendir á að lóðin hafi áður hýst olíutanka. Pavel segir að um sé að ræða hugmynd á algjöru frumstigi. Viðskipti innlent 17.11.2025 10:25
Auglýsir eftir eiganda poka með hvítu dufti Á Facebook síðu Vesturbæjar Reykjavíkur var í kvöld auglýst eftir eiganda lítils plastpoka með hvítu dufti sem fannst við Vesturbæjarlaug. Kímnigáfa Vesturbæinga lét ekki á sér standa í umræðum um málið. Lífið 16.11.2025 22:40
Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Það var töfrandi stemning í SkyLagoon síðastliðinn miðvikudag þegar baðlónið tók forskot á sæluna með tónleikum í samvinnu með Airwaves hátíðina. Una Torfa flutti töfrandi tóna fyrir tónleikagesti sem allir klæddust baðsloppum og nutu í botn. Tónlist 11.11.2025 17:01
Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Bæjarráð Runavíkur í Færeyjum hefur samþykkt að ný sundhöll sveitarfélagsins fái heitið Bylgjan. Það er sama nafn og er þegar fyrir á íþróttahúsi sem sundhöllin er byggð við. Bæjarráðið segir að með viðbyggingunni bætist tvær nýjar bylgjur við og muni því öll íþróttamiðstöðin heita Bylgjan. Erlent 9.11.2025 07:37
Barni bjargað frá drukknun í Dalslaug Drengur á grunnskólaaldri var hætt kominn í skólasundi í Dalslaug í Úlfarsárdal í Reykjavík gær þegar hann missti meðvitund á meðan hann var í skólasundi. Brugðist var hratt við og er líðan drengsins góð. Innlent 6.11.2025 12:40
Borgin tekur út framkvæmdir við Vesturbæjarlaug Reykjavíkurborg hyggst ráðast í úttekt á sundlaug Vesturbæjar. Lauginni hefur ítrekað verið lokað síðustu mánuði vegna viðgerða. Innlent 1.11.2025 10:50
Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Áform eru uppi um að reisa nýja aðstöðu til sjó- og gufubaða í landi Þórustaða í Holtsfjöru í Önundarfirði undir heitinu Hvítisandur. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður 1,5 milljarðar króna. Verkefnið er í höndum Hvítasands ehf. sem hyggst senda deiliskipulagstillögu til Ísafjarðarbæjar í nóvember. Ef samþykki fæst gætu framkvæmdir hafist næsta sumar, eftir varptíma æðarfugls. Viðskipti innlent 29.10.2025 10:55
Vesturbæjarlaug opnuð enn eina ferðina eftir viðgerðir Barna- og aðallaug Vesturbæjarlaugar verða opnaðar aftur í fyrramálið en ráðist var í lagfæringar á þeim eftir að málning byrjaði að flagna í kjölfar umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda í sumar. Opnunin er tilkynnt með fyrirvara um að veður leyfi. Innlent 28.10.2025 19:50
Skellt í lás í sundlaugum borgarinnar vegna veðurs Sundlaugum Reykjavíkur var lokað klukkan tvö í dag vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar sökum mikillar snjókomu og skafrennings á höfuðborgarsvæðinu. Þær verða opnaðar aftur í fyrramálið venju samkvæmt. Innlent 28.10.2025 14:51
Sameiginlegt sundkort fyrir höfuðborgarsvæðið – löngu tímabært Viðreisn í Reykjavík leggur í dag fram tillögu í borgarstjórn sem miðar að því að bæta þjónustu við alla íbúa höfuðborgarsvæðisins, án þess að það hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin. Tillagan er einföld í framkvæmd, en gæti haft veruleg áhrif á daglegt líf mörg þúsund íbúa. Skoðun 21.10.2025 16:02
Fimmtíu ný störf í Bláskógabyggð vegna nýs baðlóns Fimmtíu ný störf urðu til í Bláskógabyggð í dag þegar nýtt baðlón var opnað í Laugarási. Bygging lónsins kostaði um þrjá milljarða króna en það er allt hið glæsilegasta. Innlent 15.10.2025 19:17
Enn vesen í Vesturbæjarlaug Reykjavíkurborg hefur, í samráði við starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins, tekið ákvörðun um að loka laugarkari Vesturbæjarlaugar tímabundið á meðan unnið er að lausn á flögnun á málningu. Fólk getur því ekki synt en þó notað heitu pottana, þann kalda og gufuböð. Innlent 13.10.2025 14:49
Mætti með hníf í sund og var vísað út Manni var vísað út úr sundhöll fyrr í dag og á daginn kom að hann var með hníf í fórum sínum. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en látinn laus að skýrslutöku lokinni. Innlent 11.10.2025 18:31
Færa Jarðböðin í nýtt hús og nýjan búning Jarðböðunum verður lokað í þrjá mánuði um áramótin á meðan framkvæmdir standa yfir við byggingu nýs hús. Jarðböðin munu taka upp erlenda heitið Earth Lagoon Mývatn en halda um leið íslenska nafninu Jarðböðin. Viðskipti innlent 8.10.2025 10:24