Kynferðisofbeldi
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 61 ›
Mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé búið undir kynfæralimlestingar á börnum Það er mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé undirbúið fyrir fjölgun á limlestingum á kynfærum barna. Það er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis. Innlent 9.7.2024 13:57
Einn rekinn heim vegna rasisma og tveir handteknir fyrir kynferðisbrot Keppnisferðalag franska ruðningslandsliðsins er fljótt að breytast úr draumi í martröð. Um helgina var einn leikmaður liðsins rekinn heim fyrir að láta rasísk ummæli falla á samfélagsmiðlum sínum og nú hafa tveir verið handteknir fyrir kynferðisbrot. Sport 9.7.2024 11:30
Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Árið 2020 voru 52 karlmenn með erlent ríkisfang grunaðir um kynferðisbrot hér á landi. Tveimur árum síðar voru þeir eitt hundrað. Innlent 5.7.2024 14:01
Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Hæstiréttur mun taka fyrir mál Inga Vals Davíðssonar, Ólafsfirðings á fertugsaldri, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Landsrétti í apríl síðastliðnum fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar síns. Innlent 5.7.2024 13:19
Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás og stórfelld brot í nánu sambandi, en meint brot mannsins beindust að unnustu hans. Honum er gefið að sök að hafa endurtekið og á sérstaklega sársaukafullan hátt ógnað lífi og heilsu konunnar með andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum. Innlent 5.7.2024 09:40
Fimmtán mánaða skilorð fyrir vörslu barnaníðsefnis Karlmaður um fimmtugt var á dögunum dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í vörslu sinni ljósmyndir og myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, og fyrir að hafa dreift slíku myndefni til ótilgreindra aðila í gegn um spjallhópa á netinu. Innlent 4.7.2024 18:04
Kolbeinn fer ekki fyrir Landsrétt Sýknudómi Kolbeins Sigþórssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í fótbolta, verður ekki áfrýjað til Landsréttar. Innlent 4.7.2024 13:21
Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Neil Gaiman, heimsfrægur höfundur bóka á borð við The Sandman og Good Omens, hefur verið sakaður um kynferðisofbeldi af tveimur konum. Konurnar tvær segja hann hafa beitt þær ofbeldi þegar þær voru 20 og 21 árs og í sambandi með honum. Gaiman þvertekur fyrir að hafa nokkuð gert af sér. Erlent 4.7.2024 07:54
Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Rannsókn á kynferðisbrotamáli sem á að hafa átt sér stað um borð í grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq er nú lokið og málið komið á borð ákærusviðs ríkislögreglustjóra. Innlent 3.7.2024 14:07
Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Karlmaður á Akranesi hefur verið ákærður fyrir fjölda grófra kynferðisbrota gegn andlega fatlaðri konu. Hann er einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn syni konunnar og annarri konu. Þau eru bæði andlega fötluð. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa nauðgað konunni og neytt son hennar til þess að fylgjast með. Innlent 2.7.2024 11:38
Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Ákæra hefur verið gefin út á hendur Alberti Guðmundssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, fyrir kynferðisbrot. Innlent 2.7.2024 10:21
Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í Vestmannaeyjum í september árið 2021. Hann hefur áður komist í kast við lögin vegna grófs ofbeldis. Innlent 1.7.2024 18:23
Flug frá Keflavík til Köben taki styttri tíma en meðaltími nauðgunar Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola, segist sitja upp með afleiðingar þess að lögregla hafi ekki sinnt rannsóknarskyldum sínum þegar hún varð fyrir grófu kynferðisbroti í eigin afmælisveislu. Hún segir meðaltíma sem kynferðisofbeldi standi yfir um fjórar og hálf klukkustund. Innlent 28.6.2024 15:47
Þriggja ára dómi fyrir að nauðga eiginkonu snúið við Maður sem var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi gagnvart eiginkonu sinni fyrir héraðsdómi var sýknaður fyrir Landsrétti í gær. Einkaréttarkröfu brotaþola var jafnframt vísað frá héraðsdómi. Innlent 28.6.2024 15:38
Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar Kynferðisofbeldi á ekkert skylt með kynlífi. Ofbeldið sem er beitt er í formi valdníðslu og djúprar fyrirlitningar. Markmiðið er að hafa vald yfir þér. Ef fólk hefur ekki velt því fyrir sér hver meðaltíminn er sem kynferðisofbeldi stendur yfir að þá eru það um 4,5 klukkustundir. Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar. Það má vera að sumir skilji ekki hvernig karlmaður gæti enst svona lengi en raunin er sú, enn og aftur, að kynferðisofbeldi er ekki kynlíf og á ekkert skylt við kynlíf. Skoðun 28.6.2024 15:31
Hörður Ellert dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Þegar stúlkan var níu til tólf ára braut hann margítrekað gegn henni, meðal annars með því að láta hana veita honum munnmök. Hann fékk síma stúlkunnar afhentan hjá lögreglu á meðan málið var til rannsóknar og fékk nálgunarbann á föður hennar um tíma. Innlent 28.6.2024 08:43
Á sér engar málsbætur vegna hrottafenginna brota gegn eiginkonu Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisrefsingu Heiðars Arnar Vilhjálmssonar vegna grófra brota gegn eiginkonu hans. Þó að Landsréttur hafi staðfest refsinguna sem Héraðsdómur Reykjaness lagði upp með sýknar Landsréttur hann fyrir brot sem Héraðsdómur hafði sakfellt hann fyrir. Innlent 27.6.2024 23:05
Fastagestur á níræðisaldri káfaði á konu í sundi Karlmaður fæddur árið 1940 hefur verið sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að káfa á konu í sundlaug á Vestfjörðum. Ákvörðun refsingar mannsins, sem er fastagestur í lauginni, var frestað og hún fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Innlent 27.6.2024 13:30
Braut gegn tveimur konum og þremur unglingsstúlkum Karlmaður á fertugsaldri hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði vegna tveggja kynferðisbrota. Sami maður hlaut átta mánaða fangelsisdóm í apríl vegna kynferðisbrota í garð þriggja unglingsstúlkna. Innlent 24.6.2024 18:08
Fullvissaði brotna dóttur sína um að þau væru ástfangin Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur. Innlent 21.6.2024 16:30
Krefst fræðslu um gyðingahatur eftir að tólf ára stúlku var nauðgað Tveir þrettán ára drengir hafa verið ákærðir fyrir að nauðga tólf ára stúlku í Frakklandi. Stúlkan er gyðingur og segir drengina hafa viðhaft hatursorðræðu um hana á meðan þeir nauðguðu henni. Frakklandsforseti hefur beint því til skólakerfisins að efla fræðslu um gyðingahatur. Erlent 20.6.2024 08:03
Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Tveir starfsmenn við lagadeild Háskóla Íslands, Brynhildur G. Flóvenz dósent emerita, og Ragnheiður Bragadóttir prófessor, telja dóm Hæstaréttar í máli Brynjars Joensen Creed, rangan. Þær vona að fordæminu verði snúið við, en þær birtu grein um dóminn í Úlfjóti í síðastliðnum mánuði. Innlent 17.6.2024 15:48
Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Landsréttur hefur mildað fangelsisdóm yfir tæplega sextugum karlmanni vegna ýmissa brota, þar á meðal vegna fjölda kynferðisbrota gegn konum með þroskaskerðingu. Hann hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í stað sex ára. Landsréttur var sammála héraðsdómi um að tornæmi mannsins stæði ekki í vegi fyrir því að hann yrði dæmdur til fangelsisvistar. Innlent 14.6.2024 15:54
Ofurkarlmennska geti reynst ávísun á hómófóbíu og kvenfyrirlitningu Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Nordref Foundation, veltir því upp í pistli hvort verið geti að tengsl séu milli atvinnumennsku í íþróttum og kynferðisofbeldis? Innlent 14.6.2024 14:35
Sakaður um tilraun til nauðgunar en sektaður fyrir að bera sig Benoît Kounkoud, samherji Hauks Þrastarsonar hjá Kielce í Póllandi og leikmaður franska landsliðsins í handbolta, var á mánudag sektaður fyrir að bera sig á almannafæri. Hann var upprunalega sakaður um tilraun til nauðgunar. Handbolti 12.6.2024 11:31
Nektarmyndum fækkar meðal ungmenna Hlutfall barna og ungmanna sem segist hafa fengið senda nektarmynd eða hafa verið beðin um að senda af sér nektarmynd lækkar frá árinu 2021. Þá eru einnig færri sem hafa upplifað hótanir, einelti, útilokanir frá hópum og ljót komment í tölvuleikjum eða á samfélagsmiðlum. Innlent 12.6.2024 07:58
Rannsaka kynferðisbrot en ekki innbrot Réttargæslumaður konu sem kært hefur kynferðisbrot um borð í skipinu Polar Nanoq, Áslaug Lára Lárusdóttir, segir staðhæfingar útgerðarstjóra Sigguk A/S um að rannsókn lögreglu snúi að innbroti um borð í Polar Nanoq alrangar. Lögregla rannsaki kynferðisbrot, ekki innbrot. Innlent 11.6.2024 18:21
Þrír liggja undir grun en eru líklegast komnir úr landi Mennirnir þrír sem voru handteknir á laugardaginn og yfirheyrðir vegna kynferðisbrots sem er sagt tengjast grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq sæta ekki farbanni vegna málsins. Allir þrír hafa þó stöðu sakbornings í málinu og liggja þar af leiðandi allir undir grun um kynferðisbrot. Innlent 10.6.2024 11:29
Þremur skipverjum verið sleppt úr haldi Enginn er í varðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot sem sagt er tengjast skipverja á grænlenska frystitoganum Polar Nanoq. RÚV greindi frá því í gær, samkvæmt heimildum, að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi handtekið skipverja vegna gruns um kynferðisbrot og að fleiri skipverjar hafi verið yfirheyrðir. Innlent 9.6.2024 10:56
Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Skipverji á grænlenska togaranum Polar Nanoq var handtekinn í morgun, grunaður um að hafa farið með konu um borð í togarann og brotið á henni kynferðislega. Innlent 8.6.2024 18:22