Skattar, tollar og gjöld

Fréttamynd

Kallar að­gerðirnar leik­tjöld og varar við verðstýringu

Samtök verslunar og þjónustu styðja tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti en telja að ríkisstjórnin sé um leið að setja upp óþarft eftirlitslag ofan á kerfi sem sé þegar til staðar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir þetta bera með sér vantraust á olíufélögin, kasta rýrð á þau að ósekju og opna á verðstýringu sem reynslan sýni að geti farið illa.

Innlent
Fréttamynd

Heimilar ráð­herra að á­kvarða há­marks­verð elds­neytis

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum, sem lækka mun virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið, felur í sér heimild atvinnuvegaráðherra til ákvarða hámarksverð á eldsneyti eða hámarksálagningu. Þá felur frumvarpið í sér heimild til álagningar stjórnvaldssekta skili virðisaukaskattslækkun sér ekki til viðskiptavina.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja að skatta­hvatar fyrir tækni- og hug­verka­iðnað verði festir í sessi

Samtök iðnaðarins, SI, segja mikilvægt að íslenskt menntakerfi verði eflt og sömuleiðis aðgengi að erlendum sérfræðimenntuðum mannauði. Samtökin hvetja í nýrri greiningu stjórnvöld einnig til að festa í sessi skattahvata vegna rannsókna og þróunar í tækni- og hugverkaiðnaði. Iðnaðurinn sé einn sá stærsti og hlutfall fjárfestinga hafi aldrei verið hærra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir stjórn­völd vinna gegn ferða­þjónustunni

Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir stjórnvöld vinna gegn fyrirtækjum í íslenskri ferðaþjónustu. Mikill kurr sé í aðilum á íslenska markaðnum og dæmi séu um söluaðila erlendis sem ekki selji ferðir til Íslands sökum óvissu um verð.

Innlent
Fréttamynd

Má lækka skatta?

Í vikunni kynnti Sjálfstæðisflokkurinn tillögur sínar að umbótum í efnahagsmálum, sem innihélt hugmyndir flokksins um víðtækar skattalækkanir, hagræðingar og takmörkun á umsvifum hins opinbera.

Skoðun
Fréttamynd

Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í dag forsetatilskipun sem felur í sér hundrað prósenta toll á innflutt lyf sem framleidd eru undir einkaleyfi. Framleiðendur geta komið sér hjá tollinum með því að semja við Bandaríkjastjórn um lægra verðlag eða skuldbinda sig til að framleiða lyfin innan Bandaríkjanna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna

Nú eru síðustu forvöð að skrá kílómetrastöðu ökutækja því eftir daginn í dag munu þeir sem ekki hafa skráð stöðuna fá tuttugu þúsund króna vanskráningargjald. Sem stendur eiga eigendur fimm þúsund ökutækja enn eftir að senda sína stöðu inn.

Innlent
Fréttamynd

Skatta­lækkanir vinni bein­línis gegn Seðla­bankanum

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að margt komi til greina til að draga úr verðbólgu, en ekki skattalækkanir; þær „vinni beinlínis gegn Seðlabankanum“. Hann telur að ríkið geti ekki eitt og sér lækkað verðbólgu í landinu. „Þjóðarsátt væri góð,“ segir hann.

Neytendur
Fréttamynd

Vilja 140 milljarða skatta­lækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða

Sjálfstæðisflokkurinn boðar 140 milljarða króna skattalækkanir, 160 milljarða króna hagræðingu í ríkisrekstri og sölu ríkiseigna fyrir meira en 680 milljarða króna samkvæmt efnahagstillögum sem flokkurinn kynnti í dag. Tillögunum er ætlað að auka ráðstöfunartekjur heimilanna, bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og lækka skuldir ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkis­sjóð

Boðaðar viðbótarskatttekjur fjármála- og efnahagsráðherra á fyrirtæki í fjármálageiranum eiga að skila sex milljörðum til ríkisins. Ráðherrann lét það ekki fylgja með í fjármálaáætluninni hversu hárrar upphæðar skatturinn ætti að afla en það gerði framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þau sem töluðu um hval­reka­skatt og hin sem þora að leggja hann á

Það átta sig sennilega flestir á að ein stærsta ástæðan fyrir því að við höfum verið að glíma við háa vexti og verðbólgu árum saman á sér rætur í þeim aðgerðum sem stjórnvöld á Íslandi gripu til í kórónuveirufaraldrinum, þegar ríkissjóður tók lán upp á mörg hundruð milljarða króna og dældi þeim út um allt samfélagið.

Skoðun
Fréttamynd

Innviðagjald og hækkun vasks eyði­leggi sam­keppnis­hæfni ferða­þjónustunnar

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur það verið rætt í atvinnuvegaráðuneytinu að nýtt innviðagjald, sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn munu þurfa að greiða, gæti numið fimm þúsundum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna renna blint í sjóinn og að þetta muni tvímælalaust skaða greinina mikið.

Innlent
Fréttamynd

Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrir­heit ríkis­stjórnarinnar

Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Segir meinta vegtolla ekki á dag­skrá

Fjármálaráðherra segir að ekki standi til að innheimta veggjöld á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðiinu með frumvarpi um nýtt innviðafélag þrátt fyrir að fram komi að það hafi verið til skoðunar í greinargerð með frumvarpinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi sjálfur stutt vegtolla á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Þúsundir hringja í Skattinn

Rúmlega 267 þúsund manns hafa skilað skattframtalinu þetta árið en landsmenn hafa verið eilítið duglegri við skilin en í fyrra. Skatturinn heldur úti sérstakri símavakt sem fólk getur leitað til ef það er í vandræðum. Þangað streyma símtölin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sam­búðar­slit: Hægt að rukka fyrr­verandi maka um skatta­skuldir hins aðilans í mörg ár

„Skatturinn hefur leyfi til að fara sex ár aftur í tímann vegna ógreiddra skatta- og gjalda sem þýðir að ef sambúðarfólk hefur verið samskattað getur skatturinn rukkað fyrrverandi um ógreidda skatta og gjöld hins aðilans, þótt liðin séu allt að sex ár frá því að sambúð var slitið,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum.

Áskorun
Fréttamynd

Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur al­veg rosa­lega vel“

Frestur einstaklinga til að skila skattframtali vegna tekna í fyrra rennur út á miðnætti. Deildarstjóri einstaklingsdeildar hjá Skattinum segir um 230 þúsund einstaklinga þegar hafa skilað framtali og búist sé við að rúmlega 30 þúsund til viðbótar geri það í dag. Þótt fresturinn renni út á miðnætti verði hægt að skila framtalinu eftir það en mikilvægt sé að gera það sem allra fyrst. Sé skilað eftir framtalsfrest aukist áhætta á að Skatturinn áætli tekjur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Dóm­stólar stað­festa að ostur er ostur“

Landsréttur vísaði máli Danóls ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar pitsaosts frá héraðsdómi í gær, á þeim grundvelli að dómur hefði þegar fallið um sama sakarefni. „Niðurstaða Landsréttar er í raun enn ein staðfestingin á því að ostur er og verður ostur,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hvernig fækkum við mis­tökum hjá Skattinum?

Frammistaða starfsmanna Skattsins í vinnunni sinni fær ekki góða umsögn hjá framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda í frétt sem birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag. Fjöldinn allur af röngum rukkunum vegna kílómetragjalds hefur verið sendur út frá því nýtt fyrirkomulag skattheimtu af ökutækjum var tekið upp um áramótin, með tilheyrandi veseni og hugarangri fyrir bíleigendur.

Skoðun