Hvar er best að búa?

Fréttamynd

Keyptu 250 fer­metra hús í Anda­lúsíu á fjöru­tíu milljónir

Rakel Eyfjörð Tryggvadóttir var einstæð móðir á Djúpavogi þegar hún kynntist Spánverja sem var að vinna í fiskvinnslu í bænum. Síðan þá hefur líf hennar snúist á hvolf, þau eru nú flutt til Andalúsíu þar sem þau fjárfestu í stóru húsi við Costa Tropical í Andalúsíu og ákváðu að ganga í heilagt víkingahjónaband undir funheitri Spánarsólinni.

Lífið
Fréttamynd

Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið

„Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn.

Lífið
Fréttamynd

Búið á tólf stöðum í tólf ára sam­bandi

Körfubolti stjórnar lífi ungra hjóna úr Njarðvík sem hafa búið sundur og saman á 11 stöðum utan Íslands í þeirra 12-13 ára sambandi. Í vetur deila þau Elvar Már Friðriksson, Ína María Einarsdóttir og sex ára sonur þeirra Erik Marel Elvarsson lífi sínu á milli Njarðvíkur þar sem þau hafa nýverið reist sér myndarlegt hús og Wloclawek í Póllandi þar sem Elvar spilar körfubolta í atvinnumennsku í vetur.

Lífið
Fréttamynd

„Þetta er bara fjár­hags­legt of­beldi“

Kjarnafjölskylda úr Hafnarfirði, ung hjón með 2 börn, ákváðu þann 26. ágúst 2022 að flytja til Spánar. Síðla þess dags sat húsmóðirin, Valdís Hrönn Berg Ingudóttir, að skoða spænskar fasteignasölusíður og eiginmaður hennar, Ómar Smári Jónsson, kom þreyttur inn úr vinnunni. Hún spyr hvort þau ekki bara að flytja og hann svarar umsvifalaust: „já“.

Lífið
Fréttamynd

For­ritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu

Íris E. Gísladóttir og Mathieu Grettir Skúlason eru liðlega þrítug og dvelja þessi misserin í París ásamt börnum sínum tveimur, þeim Evu 13 ára og Eric 4 ára. Ekki bara af því að þeim finnst frönsku vínin svo ljúffeng eða croissanturnar svo kræsilegar heldur var það samdóma niðurstaða fjölskyldunnar að í París gætu þau lifað betra lífi sem frumkvöðlar en á Íslandi.

Lífið
Fréttamynd

Krútteyjurnar Ischia og Sikil­ey: Ástu leist ekki á einnar evru húsin

Ásta Sigurðardóttir ævintýrakona fór fyrir fáeinum árum til Sikileyjar til að skoða einnar evru hús, en endaði á því að kaupa sér ekki hús á eina evru. Enda sá hún fram á að það yrði á endanum dýrara og tímafrekara að gera einnar evru hús íbúðarhæft, heldur en að kaupa dýrari eign. Sem hún gerði og hefur nú gert upp stórt hús í hjarta Salemi, sem er fjallaþorp á miðri Sikiley.

Lífið
Fréttamynd

Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði

„Þú getur leigt fína íbúð hérna á þessu svæði fyrir svona 50-60 þúsund kall. Þannig að ef þú ert með 150-200 þúsund krónur á mánuði, þá lifir þú bara eins og kóngur,“ segir Brynleifur Siglaugsson, 54 ára heimshornaflakkari og ævintýramaður sem býr á þremur stöðum í heiminum; í Hveragerði, Lettlandi og á Díaní Beach í Kenía.

Lífið
Fréttamynd

Komin til að vera í Miami: „Ég er ekki að fara neitt“

„Ísland verður alltaf heim,“ segir Kristján Olafsson sem býr ásamt eiginkonu sinni Hildu Olafsson og börnum þeirra fjórum á pálmaskrýddri golfvallareyju við Miami Beach. Þau hafa búið í bæði Los Angeles og New York en fyrir tilviljun þá leiddi vinnan hans Kristjáns þau suður til Flórída.

Lífið
Fréttamynd

Fluttu með alla fjöl­skylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“

„Frá því ég var 23 ára þá erum við Eva búin að stofna 10 fyrirtæki. Við erum búin að gera upp sjálfsagt einhverja 3500 fermetra á Íslandi og við vorum með líkamsræktarstöð, sjúkraþjálfun, veitingastað og fasteignafélag. Það var kominn tími til að bremsa sig aðeins af svo maður myndi nú ekki drepa sig á þessu,“ segir Davíð Kristinsson rafverktaki og lýsingarhönnuður sem flutti ásamt eiginkonu sinni Evu Ósk Elíasardóttur og þremur dætrum til Tenerife fyrir röskum tveimur árum.

Lífið
Fréttamynd

Unnur og Brynjar keyptu 200 fer­metra ein­býli á 4,5 milljónir

„Af hverju við fluttum? Það var sett á sölu húsið sem við bjuggum í og leigumarkaðurinn var algjörlega glataður. Ég varð svo pirruð yfir þessu að ég sagði bara: Af hverju prófum við ekki eitthvað nýtt?“ segir Unnur Eygló Bjarnadóttir en þau Brynjar Ingimarsson eiginmaður hennar ákváðu fyrir nokkrum árum að freista gæfunnar í finnskri sveit.

Lífið
Fréttamynd

Hamingju­samari í Síerra Leóne en á Ís­landi

„Þetta er mjög líflegt land og það er mjög skemmtilegt að búa hérna,“ segir Henry Alexander Henrysson en þau Regína Bjarnadóttir búa ásamt börnum sínum tveimur í einu fátækasta ríki veraldar Síerra Leóne.

Lífið
Fréttamynd

Fann franskan kærasta skömmu eftir tökur

„Mig hafði alltaf dreymt um að flytja til Frakklands, alveg frá því ég var unglingur,“ segir Unnur Sara Eldjárn sem seldi íbúðina sína í Reykjavík og yfirgaf öryggið á Íslandi til að elta drauminn um að búa í Frakklandi fyrir fáeinum árum.

Lífið
Fréttamynd

Strategían að flytja í miðju Co­vid heppnaðist

„Maður getur auðvitað bara hannað lífið, eins og maður vill hafa það,“ segir Einar Sævarsson frumkvöðull og einn af stofnendum midi.is sem flutti ásamt eiginkonu sinni Ólöfu Viktorsdóttur svæfingarlækni og sonum til New Haven í Bandaríkjunum í miðjum heimsfaraldri.

Lífið
Fréttamynd

Auðvitað er Ísland ekki best í heimi!

„Ég trúi því varla ennþá hvurslags lán það var þegar fyrrverandi sjónvarpsstjóri var einhvern tímann á hlaupum inn á fund og henti þessari setningu í fangið á mér: „Hvar er best að búa?“. Ég held að hún hafi verið að pæla í þáttaröð um það í hvaða sveitarfélagi á Íslandi er best að búa, en einhvern veginn möndlaðist það þannig í höndunum á mér að þetta varð mun skemmtilegra djobb“

Lífið